Í gær fór ég á tónleika. Tómleika. Sendi meint fyllerís-sms. Þar var þó full meining að baki. Enda strákurinn alls ekki fullur.
Appelsín og Sex and the city. Og svo Ómar Ragnarsson.
Reit Fjalsi klukkan 11:40
7.8.03
Gundurinn var að kvarta... hann er víst farinn að blogga á ný... því missir hann aumingjabloggaratitilinn... en þá er líka eins gott að hann standi sig.
Við Gulli bjuggum einu sinni saman. Þá var gaman. Það var á Ásvallagötunni. Þá vorum við kallaðir strákarnir á Ásvallagötunni og fólk kom í heimsókn ég fékk kaffi. Gulli svaf í litla herberginu. Enda kom hann inn í íbúðina nokkru eftir að ég tók hana á leigu. Í staðinn borgaði hann ekki af rafmagninu. Ég ekki heldur... svo að nú skulda ég slatta í rafmagn.
Á kvöldin sátum við Gulli stundum og drukkum kannski bjór og spiluðum á gítarinn. Svo fór Gulli að sofa af því að hann þurfti að vakna alltaf svo snemma. Stundum vakti ég lengur og horfði á hann sofa. Hann er svo fallegur þegar hann sefur. Hann Gulli minn.
Nú búum við Gulli ekki lengur saman. Það er skrýtið. Það er líka doldið erfitt. Núna þegar við Gulli erum kannski á kaffihúsi seint um kvöld segir hann... jæja, nú ætla ég heim! Þá segi ég... ég líka! Svo göngum við saman í sitthvora áttina...
Svona er lífið
svona
skrítið
Reit Fjalsi klukkan 11:18
6.8.03
Sólin á Austurvelli bakar. Það er gott og gott að liggja. Bubbi sagði einu sinni: Sumarið er tíminn þegar mér líður vel með stúlkunni minn við Arnarhól. Þetta á vel við. Nema í mínu tilviki er það Austurvöllur. Enda alltaf rok þarna á þessum blessaða hól.
Nú er ég kominn með Adressu: Dolhaantjestraat 20 í Amsterdam. Jamm Lúkkar vel, ekki satt?
Bara 11 dagar þangað til. Blendnar tilfinningar maður!!!
Vá
Reit Fjalsi klukkan 15:41
5.8.03
Litirnir á himninum voru einn daginn svo margræðir og djúpir. Og þarna lá ég og lét hugann reika um endalaust djúpið í leit að svari sem aldrei fékkst og fæst kannski aldrei. Var ég þreyttur eða of drukkinn? Eða var þetta bara allt í kollinum á mér. Margt sem ég veit ekki en líka margt sem ég veit. Og ég veit að ég er ekki einn um þetta. Og það. Það er best í heimi. Lang best.
En líka svo sárt.
Reit Fjalsi klukkan 13:55
Ingunn var alveg að rokka þessa helgina. Enda ekki kölluð Gunna rokk að ástæðulausu!
Reit Fjalsi klukkan 09:52
Í dag er mánudagur. En þó ekki. Í dag er þriðjudagur í gervi mánudags. Sem gerir það að verkum að þessi mánudagur er sérlega skemmtilegur. Eins og þessi helgi.
Þessari helgi má lýsa með einu orði:
VEI!
jamm og já... og meira jamm.
Reit Fjalsi klukkan 09:50
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík