Það er nú meira hvað sumir eru hörundsárir. En Mundi er nú ábyggliega besta skinn þó hann þoli ekki „móralinn“ í mér. Annars var ég nú aldrei var við neinn móral því lífið er jú víst dásamlegt. En hvað um það ég var einu sinni Árngerðingur og hef ekki kunnað á tölvur síðan. Jamm - svona er nú heimurinn skrítinn - alveg eins og Svansson.
Reit Fjalsi klukkan 15:52
Gúndi Svansson, eins og restin í Vöku, er á móti Árngerðingum. Æhh er heimurinn ekki dásamlegur!?
Reit Fjalsi klukkan 10:59
Ragnar Stefánsson skáfrændi minn skrifaði í DV í gær grein sem hafði fyrirögnina „ESB - eflum andstöðuna" eða e-ð slíkt. Í dag birtist í Mogganum grein eftir hann sem segir eitthvað eins og „Efla þarf andstöðuna við einkavæðingarstefnuna“. Ragnar tilheyrir vinstri armi VG (reyndar er nú ekki hægt að tala um að Ragnar tilheyri neinum) og er á móti öllu. Hann er á móti einkavæðingu. Hann er á móti ESB. Hann er á móti NATO. Hann er á móti ríkisstjórninni. Hann er á móti virkjunaráformum á hálendinu. Ég hef þekkt Ragnar í mörg ár og hef aldrei heyrt að hann sé hlynntur neinu, ja nema kannski kommúnisma. En Ragnar er fínn kall og ég ætla að heimsækja hann um páskana.
Reit Fjalsi klukkan 10:54
Talandi um tvistinn. Afhverju er ásinn hættur að ganga? Og hvert gekk hann á sínum tíma? Ég man að núllið fór frítt niður Laugaveginn. Man einhver hvaða leið ásinn gekk?? Og ahverju tala menn um að strætó gangi???
Reit Fjalsi klukkan 10:45
Jamm - eins og áður hefur komið fram tek ég tvistinn í vinnuna. Einhver snillingurinn hefur lagt það í vana sinn að skilja eftir Fréttablaðið í einhverju sæti vagnsins. Þannig að þegar ég stekk upp í strætó á Lækjartorgi bíður hann mín þar blessaður til að ég lesi hann. Þetta finnst mér sniðugt. Skildi þetta vera gert í örðum leiðum líka. Eða er tvisturinn einfaldlega besti vagninn í bænum??
Reit Fjalsi klukkan 10:41
26.3.02
Í gær skrifaði ég stuttan pistil á Selluna um framkomu Davíðs Oddssonar Í Silfri Egils á sunnudag. Þar gagnrýndi ég þann hátt Dabba að mæta ekki andstæðingum sínum í sjónvarpi. Egill skrifar í dag pistil um þetta á Strikinu og bendir á að það sama gildi um Halldór Ásgrímsson. Jamm - Egill klikkar ekki!
Reit Fjalsi klukkan 11:22
Jamm - ég er sammála Björgvin Inga. Tók einmitt góðan tíma í morgun og fletti öllum Mogganum og öllu Fréttablaðinu. Verst hvað þetta tekur langan tíma - svona ef maður les þetta staf fyrir staf. Reyndar sleppti ég minningargreinunum að þessu sinni. Það er að vísu synd því þrátt fyrir tilefnið er oft um að ræða bráðskemmtileg skrif! Ég tók líka eftir því að fyrirsagnirnar í Fréttablaðinu eru mun skemmtilegri og klikkaðri en í Mogganum. Sumir blaðamannanna á Fréttablaðinu eru greinilega nett-flippaðir.
Hvað er þetta líka með forsíðuna á mbl.is!!! Þar er allt á fleygiferð. Það er varla hægt að lesa fréttirnar fyrir blikkandi auglýsingaborðum og fljúgandi pepsiflöskum. Ég veit ekki alveg með þetta...... hmmmmmm
Reit Fjalsi klukkan 11:08
25.3.02
Haukur og Sigga Maja eignuðust son aðfaranótt laugardagsins. Eiríkur Jónsson kom með þá hugmynd að drengurinn yrði skírður í höfuðið á honum. Það væri snjallt enda væri fullt nafn stráksins þá Eiríkur Hauksson. Hugmynd!!! Hvað um það.... til hamingju!!!!!!!!
Reit Fjalsi klukkan 12:07
Ég er semsagt forfallinn skjáreinnisti. Gærdagurinn fór að mestu leyti í dagskránna hjá Skjá Einum. Horfði því meðal annars á Málið hans Eyþórs Arnalds. Hann er víst ekki alveg búinn að sætta sig við að verða ekki borgarstjóri. Hann var eitthvað að mala um bílastæði og stöðumæla. Hehe... hann er ágætur... svo verður hann líka næsti framkvæmdastjóri SHÍ.
Reit Fjalsi klukkan 12:00
Jæja - best að vera ekkert að fela þetta. Ég fíla Innlit-Útlit í tætlur. Þetta eru massaþættir og Vala Matt er snillingur á sínu sviði. Fíflið hann Frikki Weisenschwein er meira að segja ekki sem verstur (ehm). Hvað um það - búinn að fá fullt að hugmyndum fyrir íbúðina okkar Maríu. Nú er bara að bretta upp ermarna og fara að flísaleggja. ...annars er nú Innlit-Útlit síðan á Strikinu merkilega steikt.....
Reit Fjalsi klukkan 11:54
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík