10.1.03

Í dag er föstudagur. Í kvöld er föstudagskvöld, eða föstukvöld einsog ég kýs að kalla það. Jú, í kvöld skal skemmt sér. Á morgun er kominn nýr dagur.

9.1.03

Merkileg var nóttin, en henni var að mestu eytt heima hjá Mumma. Mestmegnis spil en einnig fóru fram heitar og heimspekilegar umræður og jafnvel rifrildi um grunnhvatir mannsins og áhrif þeirra á hegðun hans. Það hélt ég því fram að maðurinn stjórnaðist af miklu leyti af eigingjörnum hvötum, sama hversu óeigingjarnar athafnir hans væru. Mummi var ekki sammála. Ég stefni að því að sannfæra Mumma á næstu mánuðum. Máski við tökum upp þessar samræður ef ég kem í heimsókn til hans til Minni Sóta.

líklega 18.-19. mars

7.1.03

Hér er alltaf kaffið búið! Hvernig stendur á því?
Sverrir hlekkjar mig sem Evrókratablogg. Jú, ætli það sé ekki bara nokkuð góð lýsingin. Það er þó líklega skammaryrði í hjá honum. Hjá mér: (H)rós í hnappagatið!
Já, Dagný. Auðvitað er Samfó að græða á að vera í umræðunni. En stór hluti af nýkomnu fylgi í skoðanakönnunum hlýtur að skrifast að mestu í Sólrúnu. Fólk sér nú að loks er kominn raunverulegur kostur í stað Davíðs Oddssonar. Það sjáum við líka í nýrri vinsældarkönnun stjórnmálamanna. Þar skorar Dabbi að venju hæst í vinsældum og óvinsældum. En Solla fylgir honum fast á eftir í vinsældum en fær töluvert betri útkomu hvað varðar óvinsældir. Þ.e. hún er mun minna óvinsæl en Davíð. Það sýnir vel hversu sterk Ingibjörg Sólrún er í sessi.

Frá síðustu kosingum hefur fylgi Samfylgkingar tekið dýfu en risið svo rólega upp aftur og á síðustu mánuðum hefur hún mælst þónokkuð yfir kjörfylgi. Hið lága fylgi stafaði einkum af vandræðagangi og byrjunarörðugleikum Samfylkingarinnar. Þau vandamál eru nú að baki og flokkurinn hefur styrkst verulega hið innra og hið ytra. Það sem einkum hefur háð Samfylkingunni er ótrúverðug forusta. Með tilkomu Sólrúnar hefur forustan styrkst og það var líka það eina sem vantaði. Nú er Samfylkingin orðin hinn stóri flokkurinn og gefur loksins von um vinstra vor. Húrra!
Davíð vinsælastur og Sólrún næstvinsælust. Össur kemst varla á blað en á eftir Sollu koma Steingrímur og Halldór. Sýnir það sig ekki að menn vilja Sollu í forustuna. Er þetta ekki nokkuð skýr ábending til Össurar. Hann ætti nú að taka þetta til sín blessaður.
Þorri og Þórunn farinn

Eitthvað samt eftir af vinum.

Svo sem ágætt að vera ekkert að hengja sig í vini -

febrúar verður strembinn mánuður - kosningar og svona!

Nú er bara spurningin - á maður að fara fram?
Síðustu daga hef ég verið að reyna að fikra mig fram úr action scripti í flash. Jújú... ég held ég sé að ná þessu bara.
on (press) {
startDrag("/dragme1", true);
}
on (release) {
stopDrag();
if (getProperty("/dragme1", _droptarget) eq "/target1") {
tellTarget ("/sound") {
gotoAndStop("yes1");
}
setProperty("/dragme1", _xscale, 0);
setProperty("/dragme1", _yscale, 0);
setProperty("/locked1", _xscale, 100);
setProperty("/locked1", _yscale, 100);
/:correct = Number(/:correct)+1;
} else {
setProperty("/dragme1", _x, /:origx1);
setProperty("/dragme1", _y, /:origy1);
/:wrong = Number(/:wrong)+1;
tellTarget ("/sound") {
gotoAndStop("no");
}
}
}