3.5.02

Utli verði ekki lítið frí um helgina. R-listavinna á laug og svo prófarkalestur á ritgerð. Máski sunnudagurinn fari í afslappelsi. Kannski ekki. Annars er það nú allt í læ því það eru búnir að vera svo margir frídagar að undanförnu - þeir hafa að vísu flestir farið í eitthvað annað en frí. En það er líka allt í lagi. Eníhá. Ég nýttimér nískubíótilboð og smellti mér á Bubbleboy með Þrándi 1. maí. Þar varð ég vitni að huggulegri stúlku sem heitir Marley Shelton. Sko hún leikur í myndinni. Ég hafði svo sem ekki tekið eftir henni áður en hún lék samt í stuðmyndum á borð við Pleasentville og Never Been Kissed. Hvað um það - Marley þessi gerði sér lítið fyrir og skellti sér beint í T10 listann minn. Þar er reyndar í einu af efstu sætum Drew Barrymore sem lék aðalhlutverkið í Never Been Kissed.
Ég var að spá hvað það var sem Sjálfstæðismenn ætla að hreina úr miðborginni. Ég bý gjörsamlega niðrí miðbæ og finnst það bara helvíti kósí. Ekki nóg með að hann lúkki bara helvíti flott með nýjum og nýuppgerðum húsum heldur er flott bissnisslíf þar líka. Til dæmis er ég hálfa mínútu í: Eitt stykki flotta ostabúð, glæsilegt heilsuhús með fullt af spennandi stöffi og svo náttlla bankinn minn - SPRON og stærsta bókabúð landsins og þar við hliðina Vegamót með sinn snilldarmatseðil og bjór og Japis hinumegin við hornið, Dressmann ef mig vantar skyrtu fyrir djammið og næs saumastofu ef ég þarf að láta stytta jakkafötin úr Herrahúsinu. Allar gangstéttir og götur eru tipp topp og þær sem ekki er búið að sjæna upp eru annað hvort í miðri framkvæmd eða á leiðinni.
Svo maður tali nú ekki um samansöfnunina úr miðbænum eftir kl 3 sem búið er að leysa. Hmmm Mér finnst miðbærinn nettur og frábært að búa í honum. Svo ég prumpa bara á málflutning sjallanna

Sjallann burt úr borginni!!!!

2.5.02

Nóttin smóttin
Maður hefði nú haldið að það væri best að sofa á nóttunni og vaka á daginn, en sumir eru einfaldlegar geðsjúkir og að sjálfsögðu þarf að koma til móts við þá. Svo er líka svo þægilegt að geta bloggað allan sólarhringinn. En djúsis hvað ég hefði ekki nennt að vaka þarna upp í Odda á sínum tíma. Miklu betra að vera bara heima og sofa hjá kærustunni!!!
Frændi minn hann heitir Þrándur. Hann er ekki beinlínis best klæddi gæinn í bænum en hann má eiga það að hann klæðir sig eftir sinni eigin sannfæringu. Svo kann hann líka að mála og ætlar að mála mynd í rammann okkar Maríu. Annar frændi minn heitir Þorri. Hann er kominn með rautt skegg. Samt er hann ekki rauðhærður. Hann er í bókmenntafræði og vinnur á bókasafni. Hann kann ekki mikið að mála en hann lærði einusinni á píanó. Svo er Gulli líka frændi minn. Hann er að droppa út úr tölvunarfæði og hefur enga vinnu. Hann kann að teikna og spila á gítar. Hann var líka í fimleikum þegar hann var lítill. Hulli er bróðir hans Þorra og líka frændi minn. Hann kann að mála og teikna og svona. Hann er að fara að útskrifast úr LHÍ og hefur gaman af myndasögum. Svo er hann Örn líka frændi minn. Örn spilar á gítar. Hann er að fara að gifta sig í sumar og þá verður fjör. Þetta er hin svokallaða frændaklíka.
Þá er kominn maí. Að sjálfsögðu var farið í kröfugöngu í gær. Tók mig til og aðstoðaði við söfnun fyrir Ísland Palestínu. Það gekk nú bara vel og auðsótt mál var að safna pening. Það er líka ljóst að peningurinn kemur sér vel.

Annars tapaði Utah á mánudag og eru dottnir úr keppni. Þar fór sú von og kannski augljóst dæmi um spámennsku mína á íþróttasviðinu. Ekki nóg með það heldur er gamla góða liðið mittOrlando líka dottið út. Þeim hefur víst ekki gengið sem skyldi allt frá því að ég týndi húfunni góðu. En til að halda með einhverjum út sísonið þá ætla ég að veðja á Lakers. Þeir eru þegar komnir áfram og ættu að rúlla upp næstu mótherjum hvort sem það verða Spurs eða Sonics. Ætli ég verði þá ekki að spá Boston sem mótherjum í úrslitum. Fjör Fjör.

29.4.02

Hmm --- Mér skilst að tveir Múrarar séu ábyrgir fyrir rokkireykjavik lúkkinu. Það er kannski engin ástæða að leita langt yfir skammt.

Amma mín er áttatíuogeinsárs í dag. Til hamingju amma mín ef þú einhverntíma lest þetta!
Staðfestingin er komin. Ég er frjálslyndur vinstrimaður. Samkvæmt þessu prófi mælist ég á pólistíska kvarðanum:

Economic Left/Right: -4.62
Authoritarian/Libertarian: -4.77

Þ.e. á svipuðum stað og Gandhi - hmm ekki slæmt. Þetta staðfestir svosem bara það sem ég hef vitað lengi. Hvenær ætli Gandhi hafi annars tekið prófið?
Utah tapaði naumlega á laugardaginn 90-87. Utah spilaði samt vel og veitti Sacramento mikla mótspyrnu. Krúsíal mistök Malone á síðustu sekúndum gætu hafa kostað Utah sigur í þessum leik - en maður getur samt allaf sagt ef. Þá er bara að jafna 2-2 í leiknum í dag og spila svo spennandi oddaleik á fimmtudaginn.

Annars tapaði Boston líka í gær. Ég horfði á leikinn að hluta og hann var nokkuð góður. En allt um það hjá Mumma.
Rok - rokk --- Í dag fauk ég í tvistinn og fauk úr tvistinum og beint í vinnuna. Munaði þó minnstu að ég fyki framhjá vinnunni og beint út í sjó. En ég náði taki á stórum og myndarlegum ljósastaur og slapp við ósköpin. Mér finnst nú samt rok nokkuð kúl -- svona ef það fylgir því ekki nein andskotans rigning. Sandrok er samt suddalegt og stórhættulegt. En venjulegt þurrt kröftugt rok er notalegt, svona ef maður er þokkalega klæddur og í þungum skóm. Hvað um það. Í tvistinum í dag voru tvær stúlkur og tveir útlendingar. Ekkert gamalt fólk og engir geðsjúklíngar. Samt vafamál með aðra stelpuna. Hún var nokkuð geðsýkisleg í framan. Kannski var henni bara svona kalt. Það veit ég svo sem ekkert um en hitt veit ég að útlendingarnir voru ábygglega hjón og frekar asnaleg. Þeim þótti samt óskaplega gaman í strætó og hefur ábyggilega þótt voða spennandi að horfa á rokið. Þau fóru út í næstu stöð á undan mér og það var fyndið af því að útlenski kallinn datt í tröppunum og stóra fina kortið af Reykjavík fauk út í buskann. Útlenska eigingkona hans gerði þó nokkuð vonlausa tilraun til að elta kortið en gafst þó fljólega upp. En kallin stóð upp og dustaði jakkann og þau hlógu að þessu saman á þýsku - enda alsæl að vera á Íslandi. Strætóbílstjórinn keyrði í burtu alsæll og ég og selpurnar brostum út að eyrum. Já, það er gaman í strætó!