Já, mikið skil ég gremju Arnórs yfir selfossdruslunum á tónleikum Hellisins um daginn. Ekki skil ég hvað þetta FM skítapakk með træbaltattú og strípur var að villast inn á tónleika Nikulásar. Það er gott að hið rétta er komið í ljós því sannarlega hefðu hreppungar mínir ekki hagað sér svona, hvorki á hagyrðingakvöldi né á tónleikum Nikka!
Reit Fjalsi klukkan 11:24
13.12.02
Próf eru til margs nytsamleg. Þá getur maður t.d. tekið sér frí frá vinnu til að lesa og að sjálfsögðu þarf maður að taka sér frí frá lestrinum svona af og til og þá getur maður til dæmis eytt tímanum í vitleysu eins og að blogga.
Já, blogg er bull!
Reit Fjalsi klukkan 15:02
Arnór virðst gera í því að móðga mig og mín skyldmenni þessa dagana. Í fyrstu líkir hann Svarfdælingum við róna og fyllibyttur. Þegar ég benti honum á að það gæri varla átt við rök að styðjast bakkaði hann með þau orð en beindi þeim þess í stað að Austur-Gnúpverjum. Ekki veit ég hvort Arnór hafi komist í ættartölur mínar eða hvað, en svo vill til að ég er stórættaður úr Gnúpverjahreppi. Er það tilviljun að af öllum hreppum landsins skuli Arnór á skömmum tíma beina ókvæðisorðum að þeim tveimur hreppum sem ég á helst ættir mínar að rekja? Mér finnst þetta allt saman lykta langar leiðir og ekki veit ég hvað ég og hreppungar mínir, fyrir norðan og sunnan höfum gert til að eiga svona skilið svona framkomu.
Reit Fjalsi klukkan 10:58
12.12.02
Annað tækifæri
Þar sem enginn krafðist verðlauna fyrir að vera 7500. gesturinn verður lesendum síðunnar veitt annað tækifæri.
7600. gesturinn fær veglegverðlaun
Glæsilegan Sony mínídisk, 74 mínútna í grænum plastumbúðum.
7600. gesturinn þarf bara að senda mér afrit að skjámynd þar sem greinilega kemur fram talan 7600 á teljaranum hjá mér.
Hjözzi er maður hinna seinni tækifæra!
Reit Fjalsi klukkan 15:34
11.12.02
Erna er komin. Erna er farin. Erna er búin að koma.
Framundan er lestarkvöld með Bráðavaktarpásu.
Hjözzi er kominn í jólaskap. Hjözzi hefur ekki farið jafn snemma í jólaskap síðan jólin 1983. Þá var nú gaman að lifa.
Er Hjözzi þá búinn að koma í jólaskap?
Reit Fjalsi klukkan 14:01
Um daginn gerðumst við María styrktarforeldrar barns í Palestínu í gegnum SOS-barnaþorpin. Í kjölfarið fór ég að kynna mér konseptið á bak við þorpin. Þetta er magnað fyrirbæri. Hvet fólk til að kynna sér hér og hér.
Reit Fjalsi klukkan 11:14
Karólína er komin. Karólína er farin aftur. Er hún þá búin að koma? Hvað um það ritgerð í hús og skemmtilestur fyrirhugaður í kvöld.
Erna er á leiðinni.
Þetta er allt að koma!
Reit Fjalsi klukkan 11:11
Miðvikudagar eru Bráðavaktardagar. Erna hefur enn ekki sótt upptekinn seinasta þátt. Hún um það. Boðið varir ekki ætíð!
Karólína er enn ekki komin. Hún um það. Boðið varir ekki ætíð!
Guðlaugur Jón er enn ekki kominn. Hann um það boðið varir ekki ætíð.
Enginn hefur enn krafist verðlauna sem 7500 gesturinn. Hvað um það. Svo virðist sem ég fái að halda mínídisknum góða.
Reit Fjalsi klukkan 10:05
10.12.02
Sigurvegari í getrauninni um daginn var Guðlaugur Jón Árnason. Hann getur nálgast verðlaunin, Mími 46, á skrifstofur Vefseturs um íslenskt mál og menningu á Hugvísindastofnun Háskóla Íslands, Nýja Garði, 3. hæð.
Önnur verðlaun, mínídiskur, verða ekki veitt. Þess í stað verða þau send 7500 gestinum. Sendið skjámynd til staðfestingar að þér séuð gestur nr. 7500 og þér fáið sendan um hæl þennan glæsilega mínídisk í grænu plasti. Heilar 74 mínútur.
Reit Fjalsi klukkan 17:45
Hin nýja hvíta síða. Hugsuð sem uppbót fyrir allt snjóleysið!
Reit Fjalsi klukkan 16:50
Jarlaskáldið talaði (skrifaði) um tónleika Hellisbúans Nicks og yfirheyrslur á löggustöðinni. Þótta mér þat góð skemmtan að einhverju leyti. Þar til Jarlaskáldið fór að líkja fyllibyttum við Austur-Svarfdæli. Ég hefi að vísu aldreigi heyrt talað um þessa skiptingu. Við Svarfdælingar köllum okkur yfirleitt Svarfdælinga óháð því hvort við komum austan eða vestanmegin úr dalnum. Því er þó ekki að neita að stundum má greina nokkurn ríg á milli þessarra tveggja dalshluta sem Svarfaðardalsá skiptir nokkuð jafn, landfræðilega. En hagyrðingakvöld Austur-Svarfdæla myndi, að ég held, seint verða haldið. Það væri einfaldega hagyrðingakvöld Svarfdælinga og þar myndu sko engir skúnkar og halfvitar láta sjá sig, onei. Hitt er þó rétt að sennilega hljóta flestir þessara hálfvita að vera frá Selfossi, eins og svo margt slæmt í voru landi!
Reit Fjalsi klukkan 15:09
9.12.02
Heyrðu... það var Vaðlaheiði. Vaðlaheiði fyrir norðan. Æi maður er nú meiri!
Reit Fjalsi klukkan 15:00
með hvíta að vopni
krítina
ræðst hann á grænan
bakgrunninn,
steinrunninn
doktorinn
Reit Fjalsi klukkan 13:40
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík