26.4.02

Stefán Jón hefur líklega ekki verið handknattleikskappi með Ármanni Jakobs eins og ég hélt í fyrstu, heldur íþróttafélaginu Ármanni. Stefán Jón var samt spyrill í Gettu Betur þeirri sömu og Ármann keppti í ásamt bróður sínum Sverri. Systir þeirra, Kata, var svo stigavörður í sömu keppni nokkrum árum síðar. Kata, Ármann og Sverrir eru öll í ritstjórn Múrsins eins og Stefán Pálsson sem akkúrat keppti í Gettu Betur fyrir mörgum árum. Í ritstjórn Múrsins er líka Kolbeinn Óttarsson Proppé sem er einmitt í framboði fyrir R-listann eins og Stefán Jón og Kata Jak. Stefán Páls, Kolbeinn og Sverrir eru allir sagnfræðingar en Kata og Ármann eru íslenskufræðingar eins og ég. Ég er samt ekki í framboði fyrir R-listann og hef ekkert komið nálægt Gettu Betur en ég var með Kötu í Stúdentaráði, Því hinu sama og Dagur B. Eggertsson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir og Ingibjörg Sólrún Gísladóttir voru formenn fyrir. Þau eru öll í framboði fyrir R-listann, eins og Kata. Björn Bjarnason var líka einu sinni formaður SHÍ en hann er reyndar í framboði fyrir Sjálfstæðisflokkinn.
Hvað hafa konur sem spóka sig um á sviði til sýnis eins og nautgripir að fela? Eru þær hvort eð er ekki búnar að missa alla reisn. Óháð hvort að Hrönn Sveinsdóttir sé undirförul tussa þá finnst mér þessi málshöfðun fíflaleg. En getur maður svo sem áfellst þær - ég meina þetta eru nú einusinni fegurðardísir !!!
Ég var að uppgötva vef sem ég vissi ekki að væri til. Þetta er vefur Sósíalistafélagsins. Hann er að vísu forljótur en innihaldið er merkilegt. Það stendur þó hvergi hverjir standa að þessum félagsskap, utan að það eru einhverjir sósíalistar. Nú er ég sósíalisti (í þeim skilningi að socialism þýðir í raun félagshyggja). Ég er þó að miklu leyti ósammála sósíalistunum í Sósíalistafélaginu enda virðast þetta vera meira og minna vera kommúnístar sem eru lítið skárri en kristnir ofsatrúarhópar (í þeim skilningi að kristni og kommúnismi eru álíka miklar útópíur (úpps nú er bara að vona að ég lendi ekki ritdeilu við Ragnar félaga minn Stefánsson)). Liðið í Sósíalistafélaginu eru að venju ákaflega hátíðlegt í skrifum: ?Sósíalistafélagið leitast við með starfi sínu að fletta ofan af auðvaldsskipulaginu og sýna fram á nauðsyn sósíalískrar baráttu til að aflétta þeirri kúgun og arðráni sem verkafólk á Íslandi býr við.?

Nú má ekki skilja skrif mín svo að ég sé á móti sósíalisma. Enda hef ég kennt mig við þá hugmyndafræði í gegnum tíðina. En for kræing át lát sko! Hvað með að koma fram úr þessar fortíðarþrá og stöðnun. Sósíalistarnir í Sósíalistafélaginu eru íhaldssamir kommar sem hafa ekki enn fattað að málstaður þeirra fær ekki hljómgrunn með þessari úreldu baráttuaðferð. Það er löngu kominn tími til að nútímavæðast og beita nýjum aðferðum í baráttunni gegn aðvaldinu. Hversvegna haldiði að heimurinn sé á leið til andskotans og auðvaldsins - vegna þess að enginn hlustar á ykkur --- kommon - gerið eitthvað nýtt!!!!!
Gleðilegt sumar (sagði hann með glamur í tönnum) IKEA-gaurinn kom svo á miðvikudaginn og í gærkvöldi var skápurinn settur saman. Borðstofan hefur tekið stakkaskiptum í kjölfarði - nú er bara að finna út úr helvítis rofanum. Lestu!

24.4.02

Mér finnst að Ísland ætti að ganga inn í ESB og út úr NATO. Svo ætti ESB að setja viðskiptabann á BNA og innlima PLO. Svo ætti líka að einkavæða SÁÁ og AA og nota peninginn í að lengja opnunartíma ÁTVR. RÚV ætti svo að kaupa sýningarréttinn á NBA í staðinn fyrir að klúðra HM. Þeit gætu til dæmis gert samning við NBC. Neisko - ég var að fá SMS í GSM símann minn.
Já - það er ekki búið enn. Utah vann leikinn í gær 93-86. Við erum sko ekkert að afskrifa Malon, Stockton og félaga. Glæsilegur leikur og Jazzararinr höfðu betur allan tíman. Stockton var án efa maður leiksins en að sjálfsögðu spilaði Malone stóra rullu. Minn maður, Andrei Kirilenko, stóð sig líka eins og hetja og skoraði 15 stig. Jamm nokkuð gott. Þriðji leikurinn er á laugardaginn. Leikurinn verður náttúrulega ekki sýndur hérna en á sunnudaginn skilst mér að sýnt verði frá leik Philadelphiu og Boston, það ætti að gleðja Mumma.

Annars kom IKEA-gaurinn ekki í gær. Ætli bíllin hafi ekki bara verið enn á verkstæði. Ef hann kemur ekki í dag verð ég frekar fúll út í Sænsku keðjuna. Annars er mér nú frekar vel við flest sænsk fyrirtæki, ja nema Saab sem útvega Ísraelum milliterístöff - skamm skamm.

Nú fyrst ég er farinn að skammast: Bárður, þjónustufulltrúi hjá SPRON er fífl og letingi sem vill ekkert fyrir mann gera. Ekki fara til hans ef þið þurfið hjálp, talið heldur við þjónustustelpurnar, þær eru hressar!

23.4.02

Jæja- ég veit ég það. Upplýsingar um vörur frá Ísrael finnast hér. Þá er bara að renna yfir hann og svo bojkötta! Svo er líka hægt að kíkja á strikamerkið:

Þettar er kóðinn fyrir ísraelskar vörur!

UVG hvetja til þess að sniðganga vörur frá Ísrael. Fínt hjá þeim. Að vísu hef ég ekki hugmynd um hvaða vörur aðrar en appelsínur eru á íslenskum markaði. Þangað til ég kemst að því ætla ég amk að hætta að kaupa appelsínur.
Já - var það ekki!!!

I'm so like Homer!

I'm Homer, who are you? by Lexi
Aftur að IKEA -- við María réðumst í það í gærkveldi að setja nýja skápinn saman. Ofsa spennt enda búin að bíða lengi eftir að geta keypt hann. En viti menn -- þegar við vorum að púsla honum sama mölbrotnar bara hliðin á honum. Við urðum náttúrulega alveg miður okkar og sáum ekki fram á að koma skápnum upp það kvöldið og fórum þessi í stað að horfa á the Practice, annars alveg stórgóðan þátt. Hvað um það, María hringdi í IKEA í morgun og þeir ætluðu að senda mann að kíkja á þetta um leið og bíllinn þeirra kæmist af verkstæði. Við teljum okkur eiga rétt á nýjum skáp þar sem skemmdin er klárlega tilkomin af slælegum frágangi frekar en klaufalegum vinnubrögðum okkar, enda búin að setja saman tugi ikeahúsgagna. Hingað til hef ég verið nokkur sáttur við þjónustu IKEA - nú er bara að sjá hvort þeir bregðist okkur nokkuð.
Þetta er nú meiri letidagurinn! Við María vöknuðum ekki fyrr en kl 10 og svo þegar ég drullast í vinnuna rétt fyrir hádegi er Laxnessupplestur í gangi sem maður vill nú ekki missa af svo að þetta er svona doldill rokkogróldagur hjá manni. Ég er þó búinn að afreka að fara með nýju jakkafatabuxurnar í styttingu. Maður er svo lítill trítill að það þarf að stytta allt sem ég kaupi mér, þegar ég loks er búinn að finna föt sem passa nokkurnvegin á mig. Jamm - en margur er knár, segir máltækið.

22.4.02

Berfætta dívan frá Grænhöfðaeyjum, Cesaria Evora, er komin til landsins. Ég sá hana á Leifsstöð fyrir hálftíma. Ég held að ég sé fyrstur með fréttirnar!!!
Systir mín á afmæli í dag - og líka Tóta frænka. Þær eru samtals 43 ára sem gæti einmitt þýtt að önnur þeirra sé 11 ára og hin 32. Það er að vísu ekki svo. Hvað um það - til hamingju báðar!!!
Annars finnst mér IKEA alveg magnað fyrirbæri - eins og kannski sést ef fólk kemur í heimsókn til mín - ekki nóg með að selja nokkuð smekklega hluti heldu kosta þeir ekkert svo mikið. Talandi um að kosta mikið - þá keypti ég mér sum sé jakkaföt á laugardag og þau kostuðu sko ekki mikið - jamms fékk mér þessi líka fínu jakkaföt hjá Hanz - Kannski að ég klæðist jakkafötunum á meðan við María setjum saman (ikea)skápinn í kvöld.
Jæja -- Utah tapaði víst leiknum á laugardaginn 89-86. Að vísu mátti litlu muna og ef ekki hefði verið fyrir sauðina þá Quincy Lewis og Scott Padgett hefðu þeir jafnvel unnið. Lewis klúðraði þriggja stiga skoti í lokin og Padgett eyðilagði glæsilegt þriggjastiga skot Stocktons á síðustu sekúndunni. En so be it - næsti leikur á morgun og þá er bara að vinna hann.
Jæja --- þá er þessi helgi búin ---- Hún flaug nokkuð áfram en ég afrekaði að spila Pacific við Mumma og Þorra, kaupa glasa/diskaskáp í eldhúsið, jakkaföt og þrjár afmælisgjafir, prófarkalesa 50 bls ritgerð, fara í afmæli til Gulla, Þórunnar og Berglindar, kíkja á djammið í bænum, fara í morgunkaffi til Hönnuömmu, fara í kaffi til tengdapabba, kaupa tvær afmælisgjafir í viðbót, fara í afmæli til Systu, hjálpa Sveini fyrir samræmdaprófið í íslensku og svo svaf ég líka smá.
Allt í allt - nokkuð góð helgi!