Flensan ætlar mig lifandi að drepa - enda er ekki hægt að drepa mann þegar maður er dauður. Hósti og hnerri og sviti og slef. Óþolandi pest sem aldrei ætlar að linna. Mikið ósköp er vont að vera veikur. Fann þó snilldar lyf sem heitir Day Nurse. Það inniheldur gæðastöff eins og Paracetamol, Phenylpropanolamine Hydrochloride og Dextromethorphan Hydrobromide. Jamm - þetta svínvirkar.
Reit Fjalsi klukkan 17:36
14.3.02
Hvað er málið. Ferðamálaskrifstofa ríkisstjórnar Ísraels að kynna ferðamannaparadísina Ísrael. Jamm - maður veit ekki hvort maður eigi að hlæja eða gráta! Ætli ég geri bara ekki bæði og mæti svo á mótmælin sem FÍP stendur fyrir í dag kl 17:30 fyrir utan Grand Hótel.
Reit Fjalsi klukkan 13:24
13.3.02
Jamm - ekki góður dagur í dag. Veikur heima og lét mér leiðast. Að vísu notaði ég tímann og las Sögu tímans eftir Stephen Hawking. Minn hugvísindaheili orðinn nokkuð fullur í bili eftir frumskóga stjarnvísindanna. Engu að síður merkileg lesning! Hvað um það - ekkert markvert gert - látið sig dreyma um að komast á bretti - kannski maður komist um helgina ef eitthvað snjóar aftur eftir umhleypingarnar í gær og í dag. Eníhá - farinn að horfa á West Wing.
Reit Fjalsi klukkan 21:16
12.3.02
Ég var að horfa á þátt á RÚV í gærkvöldi þar sem fjallað var á hættuna á bakvið langar flugferðir. Þar var talað um að langar setur í flugvélum gætu aukið hættuna á blóðtappa sem gæti leitt til dauða berist hann í lungun. Ég hef oft setið lengi í flugvél og ég er ekki dauður enn. Það er hins vegar skelfilegt til þess að vita að langar setur geti drepið mann. Það sem ég var að velta fyrir er hvort langar setur á skrifstofunni geti ekki líka drepið mann. Eða góður dagur uppi í sófa fyrir framan sjónvarpið. Ég hef oft legið uppí sófa tímunum saman án þess að hreyfa mig. Mun lengur en ég hef verið í nokkurri flugferð. Getur maður ekki líka drepist ef maður situr lengi á bát á leið til Köben. Það tekur miklu lengri tíma en að fljúga. Það má vera að það sé lítið pláss í flugvélum til að hreyfa sig. En andskotinn hafi það maður ætti nú að geta staðið upp af og til þó ekki væri nema til að fara á klósettið. Ja, nema að maður sér þeim mun feitari, en þá er maður hvort er er í meiri áhættuhópi til að fá blóðtappa. Hvað um það. Ég ætla að standa á fætur og hreyfa mig svo ég drepist ekki hérna fyrir framan tölvuna!
Reit Fjalsi klukkan 11:00
11.3.02
Böggur dagsins Talandi um útlit. Djöfull er Friðrik Weisenschnappsen flottur! Hann er ábyggilega einn sá flottasti í dag. Svo er hann líka svo greindur. Friðrik Weiselhappen er að öllum líkindum einn besti þáttastjórnandi sem Skjáreinn hefur alið af sér. Ég vildi að ég væri eins og Friðrik Weisenstappel!
Reit Fjalsi klukkan 16:40
Samkvæmt kaffiprófinu er ég Frappuccino! ískalt kaffi með mjólk og ísmolum, borið fram í háu glasi með röri. Hvernig kaffi ert þú eiginlega?
Merkilegt! Mér sem þykir kaffi með mjólk viðbjóður og kalt kaffi er nú ekki mikið skárra. Hvað þá ískalt kaffi með mjólk og ísmolum! Maður er greinilega svona flippaður. Við Magga og Haukur erum greinilega á svipuðum basa því við erum öll svona ísmolakaffi!
Reit Fjalsi klukkan 14:51
Ég vil þakka Eiríki fyrir gott partý um helgina. Er reyndar nokkuð sár á puttunum eftir slátt á strengi og trommur. Kannski ég fari að leggja gítarinn á hilluna og berja húðir í staðinn - það er fjör. Hvað um það. Eiríkur á hrós skilið - svo er hann líka svo fullorðinn!
Reit Fjalsi klukkan 12:15
Þetta er skemmtilegt. Bakgrunnslitirnir bera kóðann #abcdef og #fedcba. Afturábakogáfram! Reyndar dálítið gubbulegir litir en samt TÖFF!
Reit Fjalsi klukkan 12:06
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík