Ef "mokkurinn" ætlar í fjöllin í dag... vil ég nú fá að fara með .... rallarei
Reit Fjalsi klukkan 09:54
Í kvöld.... jújú.... Svitaball Röskvu... jamm og jei
Reit Fjalsi klukkan 09:38
Sit hérna í tölvuverinu í Árnagarði. Efstu frambjóðendur Vöku eru hér líka - í kosningafíling að lesa nýjustu skrifin um sig í bloggheiminum. Frekar sjálfsánægð og skemmtileg. Það er ágætt hjá þeim, enda skemmtilegur tími hjá þeim. Þau mættu þó hafa aðeins hljóðara um sig. Hér er nú fólk að reyna að vinna!
Reit Fjalsi klukkan 09:37
16.2.03
Athugasemdir mínar við H-listann hafa vakið athygli. Það er gott. Nú síðast var Strumpurinn að tjá sig e-ð. Punkturinn: Eru ekki kosningar nú þegar fulltrúakosningar? Jú, vissulega... kannski hefði ég átt að nota orðið einstaklingskosningar, eða einstaklingsfulltrúakosningar í staðinn. Góður punktur hjá Strumpinum. Enda kemur hann stundum með góða punkta.
Reit Fjalsi klukkan 20:14
Jövla var Björn Ingi tíkarlegur í Silfrinu í dag. Það er merkilegt hvað margt gott fólk blindast í störfum fyrir flokkinn sinn. Bíð þó með mínustigið handa Binga í bili. Hann hlýtur að sjá að sér bráðlega.
Reit Fjalsi klukkan 20:00
Hefði verið kúl að senda Botnleðju á júróvísjón? Jú, það held ég. Birgitta verðu nú samt kúl líka.
Reit Fjalsi klukkan 19:57
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík