Hvað hugsa konur oft á dag?
Tvisvar - bæði fyrir og eftir hádegi!
Þessi mónólóg var í boði Maríu Mjallar.
Reit Fjalsi klukkan 15:03
Í dag ætlaði ég að vera gáfulegur og markviss. Það er eitthvað ekki alveg að ganga. Ég var meira að segja búinn að skrifa massa fína grein um villu frálshyggjunnar. Hún glataðist í villu tölvunnar minnar. En þá er bara að spýta í lófana og byrja upp á nýtt. Svo er líka að koma helgi.
Reit Fjalsi klukkan 15:02
Björn fer á kostum í snilldarpistli í dag um áfengi, ÁTVR og matvöruverslanir. Jamm - við Björn erum nefnilega oft sammála.
Reit Fjalsi klukkan 14:58
8.8.02
Kannski þú sért svo djöfulli leiðinleg að fólk bara nennir ekki að heilsa þér. Nja - bara svona pæling!
Reit Fjalsi klukkan 17:48
Heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins:
Hafið þið séð skemmti-ferða-skip?
Reit Fjalsi klukkan 10:53
Á morgun fer fram aðalfundur Heimdallar. Ég er svo sem ekkert að auglýsa hann sérstaklega en undanfarið hefur umræðan um tilvonandi stjórnarskipti á fundinum vakið athygli mína. Nú þekki ég ekki innanbúðarmál í Heimdalli, enda liggja áhugamál mín á öðrum sviðum, en undanfarin misseri hefur mér sýnst núverandi stjórn Heimdallar hafa gagnrýnt félaga sína í Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta í Háskóla Íslands, töluvert fyrir að selja hugsjón frjálshyggjunnar nokkuð ódýrt í skiptum fyrir svo sem fjögur atkvæði. Nú hef ég sjaldnast verið sammála forsvarsmönnum Heimdallar en ávallt virt þá fyrir að halda fast í hugsjón sína, berja óhikað á stjórnvöldum í landinu og vera nokkuð duglegir við að gagnrýna flokkinn sinn, Sjálfstæðisflokkinn. Það er reyndar ekki skrýtið að núverandi forysta í Heimdalli gagnrýni forystu Sjálfstæðisflokksins því þessi tvö öfl eiga fátt sameiginlegt, fyrir utan það að vera í Sjálfstæðisflokknum. Svo ofsalega eru skoðanir núverandi stjórnarmanna í Heimdalli frjálshyggnar að margir Sjálfstæðismenn skammast sín og sumum hefur jafnvel ofboðið. Tilvonandi stjórnarskipti hljóta því að friða flokkinn töluvert sem líklega hefur staðið stuggur af ofstæki núverandi forystu Heimdallar. Mér skilst sum sé að tvær fylkingar séu að bítast um völd í klúbbnum. Önnur svolítið frjálshyggin og hin svolítið minna frjálshyggin. Hin frjálshyggnari fylking ku vera leidd af Magnúsi Þór Gylfasyni, sem er einmitt maður frjálshygginn en hin minna frjálshyggnari er leidd af Þólindi Kjartanssyni, sem ég veit reyndar ekki hvar stendur í pólitík en ég veit þó að hann er gallharður Sjálfstæðismaður.
Í fylkingu Þórlinds er fjölmargt fólks hverju ég starfaði með, og á móti, í Stúdentaráði, þegar ég sat þar fyrir Röskvu. Þar er einmitt komið fólkið sem sat undir töluverðri gagnrýni frá Heimdalli vegna smásölu á frjálshyggjuhugsjóninni innan Háskólans. Sú gagnrýni er enda ekki undarleg, því oftar en ekki varð ég var við töluverðan undirlægjuhátt gagnvart stjórnvöldum hjá Þórlindi og kompaníi þegar kom að ályktunum Stúdentaráðs um hin og þessi málefni. Ályktanir máttu sjaldnast stríða gegn stefnu ríkistjórnarinnar og endurtekið kom Þórlindur með breytingartillögur þegar kom að gagnrýni á ráðherra Sjálfstæðiflokksins. Sem betur fer var meirihluti Stúdentaráðs þá skipaður fólki með bein í nefinu, en ekki Þórlindi og kompaníi.
Það verður því útlit fyrir friðsamari tíma innan Sjálfstæðisflokksins á næstunni ef fylking Þórlinds kemst til valda í Heimdalli. Svo maður tali nú ekki um félagslífið maður!
Reit Fjalsi klukkan 10:45
7.8.02
Kertafleyting í gær! Þá voru 57 ár liðin frá því atómbombu var varpað á Hiroshima. Þremur dögum síðar var annarri bombu varpað á Nagasaki. Þetta var ósköp hugguleg stund þarna í gærkvöldi, þó að tilefnið sé ekki beinlínis skemmtilegt. Árásirnar á Japan í ágúst 1945 eru mannskæðasta hefndarverk mannkynssögunnar og eyddu um 300.000 mannslífum, það er meir en öll íslenska þjóðin. Þessi hræðilegi atburður má aldrei gleymast. Það er einmitt tilgangur samkomunnar í gær. Til að minnast fórnarlambanna 6. og 9. ágúst 1945 og í raun allra fórnarlamba styrjalda og til að biðja fyrir heimsfriði. Eða sá er tilgangurinn í mínum augum og það var ástæða þess að ég tók þátt í athöfninni i gær.
Það var mikill fjöldi fólks sem kom saman við Tjörnina í gær. Marga þekkti ég úr ýmsum áttum. Þó vantaði bersýnilega kunningja mína úr einni áttinni, nemlig hægri væng stjórnmálanna. Hvar var allt hugsjónafólkið sem fylkti liði til að æpa á Jiang Zemin, forseta Kína á dögunum og Li Peng um árið? Kannski þau hafi bara verið heima hjá sér og hugsað um hörmungar atómbombunnar. Kannski þau hafi minnst fórnarlamba styrjalda í einrúmi, kveikt kerti í huganum og beðið um frið hjá sjálfu sér. Eða kannski er þeim bara alveg, sama. Það voru altént ekki Kínverjar sem vörpuðu bombunum þarna um árið!
Hræsni?
Ég skal ekki segja.
Reit Fjalsi klukkan 19:07
Heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins:
Afhverju er himininn blár?
Því hann væri svo hallærislegur ef hann væri bleikur!
Reit Fjalsi klukkan 15:44
6.8.02
Heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins:
Hvað sagði músin við hestinn?
Smelltu á mig!
Reit Fjalsi klukkan 10:46
Blogg --- allir blogga. Eitt sinn átti ég stutt samtal við Björn um blogg. Nú er Björninn farinn að blogga líka. Jamm... við fylgjumst með því. Ekki varð úr veiði okkar Björns í Soginu um helgina - enda líklega aldrei meiningin. Hvað um það. SKÁL!
Reit Fjalsi klukkan 10:45
Verslunarmannahelgi - búin? Jamm...
Merkilegur Andskoti - þetta veður --- fimmtudagur rann upp sólríkur og fagur --- svo kom verslunarmannahelgi með ausandi rigningu. Svo lauk henni og það stytti upp aftur. Jamm - íslendingum er ekki ætlað að halda útihátíðir.
Útihátíð Andansmanna heppnaðist þó vel, þrátt fryrir rigningu. Hún varð að vísu nokkuð styttri fyrir vikið en það var bara í lagi. Lundurinn er náttúrulega mikil gersemi og hélt öllum vindum í burtu. Rigningin kom þó að ofan - hvar einmitt eini veki blettur lundarins (jafnvel lundsins) er. Mummi var minn ferðafélagi í þetta sinn og eyddum við nóttinni saman í ágætis Tal-tjaldi sem hélt rigninguna betur út en flest hin tjöldin á svæðinu. Verst hvað laugardagsmorguninn fór fyrir lítið hjá Mumma - Hann segist þó hafa skemmt sér vel og það líkar mér. Nú vonum við bara að veðrið haldist í lagi næsta ár. Í lundinum voru líka lúll og læl og þau virtust skemmta sé hrossavel líka... þrátt fyrir að hafa þurft að sofa í bílnum sökum leka í tjaldinum þeirra.
En Útihátíð Andansmann varði í sólarhring og sá sólarhringur var frábær. Restinni af sólarhringnum var vari í bænum. Þar kom við sögu vídeó, bjór, djamm, labb, kaffihús, pizza, bíó o.fl.
Reit Fjalsi klukkan 10:41
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík