16.11.02

Í gær var haldið í vísindaferð í Eddu miðlun og útgáfu. Ég lærði lítið nýtt í þeirri ferð. Fékk þó ókeypis fyllerí - jamm það er nokkuð ljóst að ég mun skipta við Eddu í framtíðinni!
Síðustu daga hef ég lifað við net-leysi. Jamm - „þjónustufyrirtækið“ reiknistofnun er víst bara með símatíma á milli kl. 9-12. Snillingarnir þar mæta hinsvegar greinilega seint til vinnu og fara snemma í mat. En að sjálfsögðu er boðið upp á að senda fyrirspurnin í tölvupósti - jamm ... það væri auðvitað þægileg leið EF tölvupósturinn væri í lagi!!

Hnuss!

12.11.02

Jamm - skrif mín um réttmæt orð í íslensku hafa vakið nokkrar athygli sér í lagi eftir að Víkverji birti brot úr þeim síðasta föstudag. Hins vegar hafa margir misskilið orð mín á þann hátt að mér finnist eiga að leyfa öllum hugsanlegum orðskrípum að standa í íslenskri orðabók. Svo er þó ekki. Ég tel að orðabækur eigi að hafa margþætt hlutverk, m.a. að lýsa þeim orðum sem helst eru notuð í íslenskri tungu en einnig þeim orðum sem lítið eru notuð í íslenskri tungu. Að ritstýra orðabok hlýtur að vera afar vandasamt verk og Mörður Árnason ekki öfundsverður, þó hann sé líklega á leiðinni á þing.

Flest þeirra orða sem standa í nýrri íslenskri orðabók hafa allan rétt á að vera þar. Hins vegar eru þar nokkur sem varla eiga heima í bókinni enda eru þau flest rækilega merkt með spurningamerkjum eða öðrum táknum. Sú umræða hvort ákveðin orð eigi heima í bókinni eða ekki er hins vegar til lítils því bókin er komin út og orðin í henni munu þar standa hvort sem fólki líkar betur eða verr.

Umræða um hvort ákveðin orð eigi heima í íslenskri tungu er aftur á móti þörf á hverjum tíma. Þar er ég þeirrar skoðunar að ekki eigi að útiloka mörg hver tökuorð og slettur sem samræmast að fullu íslensku hljóð- og beygingakerfi.

11.11.02

Merkilegt... ef maður flettir upp 'bull' á ha.is þá kemur síðan mín ítekað upp. Enda ekki skrýtið... þetta er nú flest andskotans bull sem hér stendur. Hvað er líka blogg annað en bull?
Jamms... ég veit ekki betur en að Vikverji hafi nýtt heilan dálk undir kvót í mig síðasta föstudag. Verst hvað þetta var mikil vitleysa sem ég var að skrifa. Samt líklega eitthvað til í þessu hjá mér.

Ég er amk frekar sáttur við niðurstöðuna í prófkjörinu á laugardag. Allir sem ég merkti við komust á blað. Reyndar í nokkuð annarri röð ég hefði vilja. Nýja fólkið hefði mátt skora dáldið hærra en það var svo sem ekki eins og það væri mikill ferskleiki í því úrvali sem fyrir var.