Mikið helv... stríð stríð stríð... og ég vil frið frið...
Góð mæting á útifundinn í gær... nú er bara að vona að fólk flykkist fyrir utan Stjórnarráðið á morgun klukkan tvö... enga rauða málningu samt... en stöðum alla umferð á lækjargötu.... það ætti að kenna þeim..... uuuuhh
Bítlaball í kvöld... ég ætla að mæta í bítlaskónum mínum sem ég fann í geymslunni hjá foreldrum mínum --- hverju öðru? Verst að ég var að losa mig við bítlaklippingun.... osei... á einhver rúllukragabol??
Að öðru.... Dauði og djöfull ... MTT heldur áfram..... reyndar er fyrra T-ið hætta að vera jafn mikill faktor?
Reit Fjalsi klukkan 15:55
Föstudagur upprunninn og frelsið tekur völd
Reit Fjalsi klukkan 15:48
Ég er tuttuguogsex ára piparsveinn sem á ískáp og þvottavél ég er á götunni en smátt og smátt á leið í íbúð... finni ég meðleigjandann... jú, svo á ég líka 250 dollara... á ég að brenna þá... ???? Spurning
Reit Fjalsi klukkan 15:48
20.3.03
Jájá.... fullt af fólki á mótmælum í dag... þrátt fyrir prumpuveður... ljótt þó að sjá rauðu málninguna á Stjórnarráðinu... það er nóg að Davíð ati það hús sauri...
Hann er drulluhali...
Reit Fjalsi klukkan 20:05
19.3.03
Ég vona að það hafi ekki verið óbragð af matnum hjá Dagnýju í gær! Ég vona samt að Dóri hafi verið með óbragð í munninum. Miðað við yfirlýsingar fyrri daga...
hann er nú meiri sauðurinn... samt engin kynbótagimbur líkt og hún Dagný vinkona mín!
Reit Fjalsi klukkan 22:53
Hvar ég get ég sagt mig úr íslensku þjóðinni --- á Hagstofunni??
Reit Fjalsi klukkan 22:47
Svo ég gleymi ekki: Dauði og djöfull... MTT heldur áfram!!
Reit Fjalsi klukkan 22:46
Jamm og já... stríðið hafið... ég bjóst ekki við því fyrr en eftir þrjá tíma... en frá frá Búsha liggur á... hann getur ekki beðið hann er alveg í spreng - istuði. Jamm og ég hafði bara ekki hugmynd um að stríðið væri byrjað... frétti svona af því fyrir tilviljun frá Rauðvínskonunni !!
Í dag keypti ég dollara... ekki til að stunda gjaldeyrisbrask á stríðstímum, heldur til að nota í litla ferðalaginu mínu til Bandaríkjanna - eða Dellubæ eins og ég kalla það landssvæði. Spurning: Á ég að fjarlægja "Frjáls Palestína" merkið mitt úr jakkanum áður en ég held út? Eða á ég að taka sénsinn og athuga hvort að mér verði kippt afsíðis í tjatt við einhverja CIA gaura??
Tja....
Reit Fjalsi klukkan 22:45
18.3.03
Stríð. Allt er útlit fyrir. Svo hefur nú reyndar verið um langt skeið enda löngu búið að ákveða að út í þetta stríð yrði farið. Sjálfur hafði ég spáð stríði í kringum 28. febrúar. Á degi eins og í dag renna margar hugsanir í gegnum hausalinginn á manni. Vanmáttartilfinningin er alger. Hér hefur maður enga stjórn. Engin áhrif, ekki neitt.... staðfesting á manns tilgangslausu tilveru. Meir að segja hefur maður engin áhrif á þankagang úrhraka eins og þeirra sem fara með völd í þessu landi. Það eins sem maður getur gert er að hrópa ókvæðisorðum að utanríkisráðherra sem rauðþrútinn glottir á meðan hann treður sér í gegnum mannþröng mótmælenda. Forsætisráðherrann lætur ekki einu sinni sjá sig, hvílíkur er hroki hans í garð umbjóðenda hans. Þann drullusokk vildi ég dauðan ef ég væri ekki svona góð sál. En sé fjandinn til þá má Davíð Oddsson alveg fara til hans mín vegna.
Dauði og djöfull
En þrátt fyrir MTT þá þraukar maður og reynir á meðan að hafa áhrif, gera eitthvað, stöðva stríðið. Og á meðan maður hefur slíkar áhyggjur þá hættir maður að hugsa um eigin óhamingju og viðbjóðar tilvist. Reynum að gera gott úr þessu. Það versnar varla úr þessu. Or is it?
Reit Fjalsi klukkan 23:04
Mótmælt í dag. Löggan segir 300 manns.... Þar voru þó miklu fleiri. A.m.k. 500 manns á að ætla... líklega fleiri... Merkilegt hvað löggan er hógvær í talningum þegar kemur að því að telja mótmælendur.
Annars voru mótmælin í morgun vel sótt. Andskotans hroll fékk ég í nótt þegar ég hlýddi á Bush. Maðurinn, ef þetta sé þá maður, er náttúrulega geðsjúklingur.
Hversvegna eru svona fáir hægrimenn á móti þessu stríði. Eru þeir líka geðsjúkir. Ég er farinn að hallast að því. Þetta er bara rugl!
Reit Fjalsi klukkan 11:36
17.3.03
Einar Mar fjallar um líf sitt sem, öfugt við mitt, virðist fullt af tilgangi. Hann hitti ég um daginn, ölluheldur kvöldið. Hann harmaði fall mitt fyrir eigin hendi. Hann veit nú af upprisunni. --- Ég var að spá í að rita netsjálfsævisögu... "þegar ég var dauður" gæti verið viðeigandi titill.
Hvað um það... áfram með MTT
Reit Fjalsi klukkan 10:24
eins og jafnan áður ratast Hulla rétt orð á munn/blað/lyklaborð/skjá: tilgangsleysið rýkur af blogginu eins og heit kúkafýla af nýfæddu hrossataði. sökum þess efast maður um sjálfan sig oft og mörgum sinnum þegar maður byrjar að tuða um eitthvað sem maður þykist vita eitthvað um. það eina sem heldur í mann er ákveðinn fíkn sem fylgir þeirri skemmtilegu tilhugsun að eiga sér lítið líf á veraldarvefnum
Skál .... fyrir Hulla... þó hann sé eins og veturinn...
Reit Fjalsi klukkan 10:00
Mánudagur... byrjar svo sem ekki illa... ekkert vel heldur... byrjaði reyndar á samtali við X... upplífgandi og skemmtilegt... or is it?
Nú er bara að bíða og sjá hvaða hörmungar þessi dagur ber í skauti sér... kannski fliss og grátur á kaffistofunni yfir kjaftasögum frá Árshátíð...
Ég segi... leyfum þeim að blaðra... þetta eru allt saman skriðdýr og ræflar... tja nema kannski sumir...
Í gær... fór ég með Trodsky á Daredevil... hún var ömurleg... svona í samræmi við daginn... og flesta aðra daga...
Hvað um það... best að takast á við MTT... það er víst ekkert annað að gera
Góða stundir
Reit Fjalsi klukkan 09:53
16.3.03
Dauði og djöfull... MTT heldur áfram og að þessu sinni er líkamleg heilsa brostinn... get þar sjálfum mér um kennt og hefði ég átt að láta absintuna vera... man það kannski næst...
En sum sé... ég held áfram að strá þyrnum fram fyrir mig og er orðinn all sárfættur... Helvítis ég!
Reit Fjalsi klukkan 16:36
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík