22.11.02

Þórdís er kona nokkur kölluð einnig Uppsalabloggari. Hennar fyrrum sæti vermi ég nú. Enda við hæfi þar sem hún hafði af mér Mjólkursamsölustyrkinn!
Þaðer nokkuð steikt hvernig Erna nær að skrifa eins og hún talar. Hinsvegar skil ég ekki hvaða lægð hún er að tala um hjá Bráðavaktinni. Mávera að persónur sé margar orðnar lúnar enda svo sem ekki öfundarstarf sem þær vinna. Égvil alls ekki viðurkenna að Bráðavaktin sé í lægð nú. Miklufrekar er að tala um rökrétta þróun söguþráðar.
Oroblu - eru það ekki annars nælonsokkabuxur?
Mikið er gaman að lesa moggann þessa dagana. Þar þverfótar varla fyrir framboðsauglýsingum sjálfstæðismanna. Þar er nú svo sem ekki fallegt fólk á ferð. Ég gef þeim þó fimmu. Það er ekki fall. Efstur trónir Geir Haarde - hann er sætur. Þó ekki jafn sætur og strákarnir í H-Ísland í gær. Ég er að spá í að taka þátt næsta ár. Stefni á að vinna titilinn Sæti Oroblu strákurinn. Það er töff!
Í dag hefndist mér fyrir körfuboltatilraunir mínir. Brotið bak og aumir öklar. Kannski ætti ég að sleppa þessari vitleysu á föstudögum.
Hér með tilkynnist. RHÍ er að öllum líkindum versta þjónustufyrirtæki sem ég hef skipt við. Nú hef ég verið netlaus í heila viku og setið og beðið og beðið og beðið og beðið og beðið.