Jájá... minn bara kominn til Barcelona eftir magnad aevintyri. flaug hingad a Bissnissklass en missti strákurinn af fluginu frá Koben... juju... Olla hellti fjelagann fullan svo ad hann atti ekki afturkvaimt fra thessu ollu saman. Eins og ekki hafi verid nóg ad gleyma midanum til Koben.... hvad tha ad standa i theirri meingu ad eg vairi ad fara degi fyrr en raun var... hvad er ad gerast. En engu ad sidur... thá er madur bara i Barce i gooooodum fíling med tótu frainku og Thorra thokkalega.... eru ad fara ad hlaupa a Primvera sound festival... vei... Tóta komin úr sturtu og Thorri ad opna bjór.... jamm allt ad gerars (glúgglúggglúgg... tsssss) heyrist therar bjornum er hellt i glasid
Sjáumst seinna
Reit Fjalsi klukkan 15:18
20.5.03
Ekki skil ég hvernig Birni getur þótt Sigurður Kári ágætur „...sér í lagi ef maður hlustar á það sem hann hefur að segja...“. Ég hef aldrei heyrt Sigurð þennan segja nokkuð af viti og flest sem upp úr honum stígur ber vott um einstaklega brenglað sjónarhorn á daglegan raunveruleik. Ég myndi einmitt telja Sigður Kára ágætan á meðan maður heyrir ekki hvað hann er að bulla. Ásjóna hans pirrar mig þó lítið þó að vaflaust megi færa fyrir því rök að hann sé nú ekki myndarlegur maður.
Reit Fjalsi klukkan 17:40
Einhvernveginn datt ég inn á bloggsíðu Gísla Marteins og Loga Bergmanns frá Riga. Þeir eru náttúrulega rugludallar frá helvíti. En samt gaman að fylgjast með bullinu í þeim. Hvernig er það. Ætla þeir báðir að lýsa keppninni? Þá missir maður af því og hlustar í staðinn á einhvern spánskan þul... eða þylja Spánverjar keppnina? Ja, ég kemst að minnsta kosti að því bráðum. Jájá.
En fyrst: Köben!
Reit Fjalsi klukkan 16:13
Jamm ég er snillingur! Fattaði seint í gær að ég væri ekki að fara út í dag heldur á morgun. Jamm - það hefði nú samt verið dáldið skemmtilegt ævintýri að standa á Leifsstöð í hádeginu í dag og framvísa brosandi farmiðanum í tékkinninu og segja: „Hæ, ég er að fara til Köben“. Afgreiðslustúlkan hefði líklega brosað í laumi og sett svo upp alvarlega svip. „Reyndar ertu nú ekki að fara fyrr en á morgun samkvæmt þessum flugmiða.“ Ætli ég hefði ekki roðnað niður í tær og hent mér svo í gólfið og grátið, nakinn með leðurgrímu.
En nei, sem betur fer þá áttaði ég mig á því í gær að það var nítjándi og samkvæmt því hlyti tuttugastiogfyrsti að vera á miðvikudaginn en ekki á þriðjudaginn eins og ég er búinn að telja mér trú um síðustu tvær vikur.
En þetta kom sér hins vegar vel því ég náði ekki að klára ritgerðina eins og ég ætlaði mér. Þá hef ég heilan auka dag sem hlýtur bara að duga. Þannig að fátt er nú svo með öllu illt að eigi boði nokkuð gott. Hmmm... er það ekki bara
Annars hafa fjórir aðilar kommentað á Sellugreinina mína frá í gær. Öll kommentin voru meir að segja góð.
Reit Fjalsi klukkan 14:08
19.5.03
Einu sinni fór ég á árshátíð. Reyndar hefi ég nokkuð oft farið á árshátíð. En einu sinni fór ég á árshátíð í vetur. Á þeirri árshátíð vann ég ferð fyrir tvo í svo kölluðu river-rafting sem gengur víst út á það að sullast niður á á einhverri gúmmítuðru. Sem sagt nokkuð spennandi. Nú er sum sé í gangi keppni meðal vina og kunningja um hver fær að fljóta niður ánna með mér. Þarna er ég því í prímastöðu til að velja mér vini.
Hvað segiði - hvern langar með mér í Rafting?
Reit Fjalsi klukkan 20:55
Ég held nú að Tryggvi Hjaltason og Örn Orri Ólafsson séu eitthvað pínulítið misþroska. Eða bara vitlausir. Þeir eru að minnsta kosti ekki sannir karlmenn ;)
Jú... æfingar Rússa á bátunum sínum sýna svo sannarlega fram á brýna þörf á NATÓ-beisinu á Miðnesheiði. Og það stafar náttúrulega mikil ógn af þessum rússnesku flugvélum sem villast hér inn í lofthelgina. GUÐI SÉ LOF að við höfum hér bandarískan her til að verja okkur gegn þessari ógn... ég meina KALDA STRÍÐIÐ og allt það.
Ég held að það þurfi að fara að taka eitthvað til þarna uppi í Utanríkisráðuneyti... HA!
Reit Fjalsi klukkan 14:41
Þegar pleilistinn með Cash klárast (einmitt eftir tæpt korter) þá læt ég lokið ritgerðarsmíð að sinni. Tek upp þráðinn í fyrramálið og rek mig eitthvað eftir honum áleiðis að algörri visku um orðið kuldahrollur.
Pfjú
Reit Fjalsi klukkan 02:33
Annars er ég búinn að vera að hlusta á Johnny Cash síðustu tvo klukkutímana (búinn að safna mér 2,25 klst tónlist með kappanum á pleilista). Konan hans, June Carter Cash, lést sl. fimmtudag 73 ára að aldri. Við skulum því öll hugsa hlýlega til Johnny... hann hefur svo aldeilist veitt okkur hlýju með tónlistinni sinni. Nú gefum við eitthvað til baka, ekki satt?
Reit Fjalsi klukkan 02:31
Ég hef svona verið að spá í það afhverju fólk er að lesa þessa síðu mína. Ekki er ég að segja merkilega hluti. Aðallega svona smá glefsur úr mínu ómerkilega lífi. Ég læt meira að segja vera að segja frá merkilegustu hlutunum og rabba bara um einhverja hversdagslega hluti eins og oststykki, Bónusferðir og samskipti okkar Gulla. Ég er alveg laus við að vera fyndinn og segi ekkert sem ætti að geta hneykslað fólk eða vakið til umhugsunar. Engu að síður sjá að meðaltali 30 manns einhverja þörf á að kíkja á síðuna mína á hverjum degi og fer þeim fjölgandi með hverjum degi. Í síðustu viku voru skráðar 349 heimsóknir og er það næstheimsóknamesta vikan frá upphafi.
Nei... ekki skil ég ykkur fólk... en verið velkomin... vonandi skemmtið þið ykkur vel
Reit Fjalsi klukkan 02:27
18.5.03
Tók mér frí frá skriftum (því maður á að vera góður við sjálfan sig) og sá The Matrix. Slöpp fyrir hlé (fyrir utan síðasta atriðið fyrir hlé) en hörkugóð eftir hlé. Allt í allt.... tja... Hjössin varð fyrir vonbrigðurm.
Reit Fjalsi klukkan 20:56
Tveir dagar...jamm...og...svo...1...köben...und...6...barce...ahhh
Kenndi vinkonu að hössla karlmenn í gær. Það gekk ekki betur en svo að hún endaði heima hjá mér í pasta. Jamm... enda hef ég aldrei hösslað karlmann.
Reit Fjalsi klukkan 16:15
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík