15.3.03

Laugardagur.... ömurleg byrjun á líklega vondum degi... mættur til vinnu klukkan 9... eftir lítinn svefn og ofmikla drykkju...

úff

engu að síður... nokkuð töff árshátíð í gær... kallinn fékk meira að segja verðlaun... og dansaði... oft og tíðum erótískan dans... þó ekki karabískan... ekki lengur !

13.3.03

Trúi ég á líf eftir Dauðann? ------ NEI

Hví hefi ég þá snúið aftur... er máski líf eftir dauðann... ríki Guðs á himnum... blogghimnum... og mér ekki heimil vist á þeim bæ... sökum falls fyrir eigin blogghendi? Er ég genginn aftur? Hefi ég verið dæmdur til ævarandi píslargöngu milli tveggja heima? Eða féll ég aldrei... var ég kannski aðeins í dái... dauðadái, lifandi, andvana, úrhrak og skepna?

Eða er ég bara aumingi sem get ekki annað en tekið til greina áskoranir vina, fjandmenna og fyrrverandi kærastna sem öll vilja innsýn í mína aumu tilveru? Hversvegna finn ég mig kúinn til að segja frá... kjafta um ekki neitt... eykur það ekki á tómleikatilfinningu mína að úttala mig aleinn á tölvutæku formi... í stað þess að ganga uppréttur, brosandi á meðal fólks... og ljúga að því að öllum að ég sé svo frjáls?

Hvað um það... til ykkar sem báðuð mig um að hætta ekki... eða byrja aftur... gjössogvel. Hér fáið þið áfram að skyggnast inn í mína trufluðu og tilgangslausu tilveru.... fyrst þið endilega viljið..............................................................................