1.11.02

Ég get vottað að þessi uppskrift er frábær. Súpan líka!
KitKat - kex eða nammi? Það hlýtur að geta verið hvort tveggja. Mér finnst amk kex hið hesta sælgæti, og líklega kexdólgnum lika.

Tillaga Björns um að KitKat sé kexnammi er ágæt!
Ég ætla rétt að vona á sá sem setur upp Stúdentablaðið þiggi ekki laun fyrir það. Þar er peningum Stúdentaráðs illa varið. Hörmuleg uppsetningarvinna á annars ágætu blaði.

Annars er hann soldið skondinn hinn útbreiddi miskilningur að Stúdentablaðið sé sérstakur auglýsingakálfur Moggans. En hver veit? Kannski er það svo!
Á morgun: HÁKA = Hin Árlega Kokkteilakeppni Andansmanna! Þriðja árið í röð og ég að meðaltali í örðu sæti. Ég stefni að því að halda því. Fólk er orðið spennt uppfyrir haus og almenn gleði ríkjandi. Hvert verður leynivopnið? Það er einmitt leyndarmál. En ég get upplýst eitt. Kokkteillinn minn ber nafnið Mr. Bubbles. Úúúhhh... spennandi.

Eins gott þá að haga sér vel í kvöld því það getur tekið á að drekka 10 kokkteila í röð!

Enn úhúh besta að fara að senda liðinu póst.

ES. Blogger er drasl!
Er klukkan orðin fjögur ég kominn í helgarfrí í huganum. Að minnsta kosti nenni ég ekki að vinna hót heldur blogga bara eins og bumbulíus!
Mikið djöfulli er ég annars slappur i körfubolta. Hversvegna nennir aldrei neinn að spila handbolta? Þar er ég þó a heimavelli! En hvað um það. Körfan á föstudögum blívur. Annars er spurning hvort maður reyni ekki að fá hópinn til að taka i bandí einhvern daginn. Þar er þó íþrótt sem kemur manni í gírinn.
Kexdólgurinn er enn ekki fundinn. Kannski er ástæða til að hætta leitinni. Kexpakkin hefur staðið óhreyfður inni í skáp i viku!
Kata Jak telur mig eiga heima i vinstrigrænum. Ekki veit ég hvernig hún dregur þá ályktun. Kannski hún telji mér renna blóðið til skyldunnar þar sem hálfar ættir mínar virðast tilheyra þessu kompaníi. En ónei! Ég er sjálfstæðari en svo og sel ekki skoðanir mínar fyrir fjölskylduna. Jamms, ég er sósíalískur lýðræðissinni, eða var það lýðræðissinnaður sósíalisti - stundum kallaður krati. Það er annars fyndið hvað sósíalistunum í vinstrigrænum (sem eru þá líklega ekki lýðræðissinnaðir - eða hvað?) er illa við krata. Þeir nota meira að segja orðið 'krati' sem skammaryrði. En hvað er að því að tilheyra hópi fólks sem bætti lýðræðishugmyndum við hugmyndir Marx? Hmmmm... pæling?

31.10.02

Kexpakkinn hefur furðulítið látið á sjá. Skyldi kexdólgurinn lesa bloggið mitt? Er hann hættur að stela vegna ótta við harkaleg viðbrögð mín? Hefur hann lesið vangaveltur um laxerað kex eða eiturhernað eða því um líkt?

Annars var á á tímabili farinn að hallast að því að kexdólgurinn væri kona. Það ályktaði ég útfrá snyrtimennskunni við þjófnaðinn. Við nánari athugun hefur ég fallið frá þeirri kenningu. Fyrir því eru nokkrar ástæður.

1. Þeir karlmenn sem vinna hér i húsinu er margir hverjir afar kvenlegir og snyrtilegir.
2. Þær konur sem vinna hér i húsinu er margar hverjar lítið kvenlegar og sumar jafnvel sóðalegar.
3. Góður þjófur reynir vitaskuld að eyða vegsummerkjum og sönnunargögnum. Þess vegna hefur öll óþarfa kexmylsna verið fjarlægð og tómur kexpakki er ekkert annað en sönnunargagn.
4. Ég hef aldrei sér konu borða mjólkurkex - ekki svo ég muni a.m.k.