Maack heldur áfram að mæla í véfréttastíl: „Þó að ég sakni sumra ekki neitt þá eru aðrir sem ég hef saknað meira...“
Hvað er maðurinn að tala um. Hverjir eru þessir sumir sem hann saknar ekki neitt. Og hverjir eru þessir sumir sem hann saknar. Skyldu það vera hinir sömu og fá „meiri kveðjur en aðrir“!!!???
Þetta er ærið undarlegt,
Reit Fjalsi klukkan 20:01
Miðvikudagur og matarboð. Verið er að plana veislu á sunnudaginn. Þá eru væntanlega páska. Jú, að sjálfsögðu: Páskalamb á borðum. Leigjandi á leið í hús. Þrándur hefur ákveðið að nýta sér aðstöðuna. Veri hann velkominn. En fyrst... vinna, skóli, matur, drykkja og ..... tja
Hið stórkostlega veiðifélag Kolbeinn hélt fund á laugardaginn. Afar gagnlegur fundur þar sem veiðin í sumar var plönuð. Lagt á ráðin um stórfellda veiði. Leikið var fagurt hljóðverk Kolbeins. Dásemd og dýrð. Ójá. Rokið svo út á djammið og gleymt sér í algleyminu á Kaffibarnum. Aldeilis gaman.
Reit Fjalsi klukkan 19:18
Burt burt burt.... af þessu helvítis skeri.... jibbíjei (samt sautjándi júní fyrst)
Reit Fjalsi klukkan 19:06
122 dagar til brottfarar. Það er ekki svo mikið.
Reit Fjalsi klukkan 19:06
Ég vaskaði upp um daginn. Það var leiðinlegt. Einu sinni átti ég uppþvottavél. Nú á ég enga uppþvottavél. Konan stal henni af mér. Einmitt sama konan og ég horfði á sjónvarpið með. Núna situr hún ábyggilega og horfir á sjónvarpið með uppþvottavélina á fullu. Jamm og já.
Reit Fjalsi klukkan 18:59
Ekki verður farið norður þessa páskana. Ekki verður heldur farið á snjóbretti. Eitt er þó víst að föstudagurinn verður langur og sitthvað um að vera á Tryggvagötu.
Reit Fjalsi klukkan 18:56
Ármann bíður spenntur eftir áframhaldandi ritdeilu okkar Kötu. Jamm, hann getur beðið.
Reit Fjalsi klukkan 18:54
Ég er ekki með sjónvarp. Jamm. Ég er nefnilega ekki með sjónvarp og það er bara fínt. Þá eyði ég ekki tíma í þá vitleysu. Onei. Einu sinni átti ég sjónvarp. Þá átti ég líka konu sem ég horfði á sjónvarpið með. Við eyddum mörgum stundum fyrir framan þetta helvíti. Áttum okkur uppáhalds sjónvarpsþætti og svoleiðis. En nú á ég enga konu og ekkert sjónvarp - og viti menn það er bara fínt. Amk sjónvarpleysið. Í staðinn les ég í bók eða spila á gítar. Minna um ástarleiki, því jú, konan fór ásamt sjónvarpinu.
Reit Fjalsi klukkan 18:53
Dagný nýtti sénsinn og á ekki á hættu að hljóta aumingjabloggaranafnbótina... gott hjá henni... Annars þarf Dagný að fara að halda góða tölu yfir mér til sannfæra mig um að Framsókn sé treystandi í frekara rískisstjórnarstarf... ja sveiattann
Annars var nú eitthvað loðin kveðjan frá Pétri: „sumir fá meiri kveðjur en aðrir“. hverjir eru þessir sumir... eru þetta sumar... eða kannski sum... hmmm
Reit Fjalsi klukkan 17:06
Jú... umsóknin flogin til Hollands og brátt ég líka... en fyrst: apríl, maí, júní, júlí, ágúst...
Jú... þetta er allt að koma
Reit Fjalsi klukkan 15:57
14.4.03
Farinn að undirbúa Hollandsförina enda kominn í Utrecht og umsóknin í UvA fer í póst á morgun. Samvæmt hiptravelguide er þetta besta kaffihúsið í Amsterdam... jamm og já!
MIkið djöfull flaug þessi dagur eitthvað í burt. En Nói Albínói er hins vegar góð ræma, mikil ósköp. En nú hefjast þýðingar en þó ekki helgar, beinlínis.