Djöfull er Destiny's Child hrottalega gott stöff þegar maður þarf á einhverju fjörugi til að halda dampi í flashgerðinni! Ætli Magga sé sammála?
Reit Fjalsi klukkan 13:44
Maack bloggar á ný. Þar með losnar hann við aumingjabloggaranafnbótina. Annars er ég enn að hlusta á Zeilsteen Radio og þar er svona spjallþáttur, sem ég reyndar skil ekki boffs í þar sem ég er enn ekki búinn að læra neitt í hollensku. Nema hvað. Þessum spjallþætti stjórnar kona sem hljómar bara nákvæmlega eins og Lísa Páls. Merkilegt. Þessi kona og íþróttafréttamaðurinn í Færeyjum fá mann til spá hvort útvarpsheimurinn á Íslandi eigi sér svona parallel universe þannig að sama útvarpsfólkið er til staðar í öllum löndum. Jájá eða eitthvað svoleiðis. Kannski finn ég Bjarna Fel í Finnlandi og Gerði Bé á Spáni. Hmmm, pæling!
Reit Fjalsi klukkan 10:42
Jájá... best að fara að æfa sig líka í hollenskunni. Hlusta nú á Zeilsteen Radio á Netinu. Magnað þetta internet. Ég held barasta að það sé komið til að vera. Svo ég kvóti nú í merkan mann.
Reit Fjalsi klukkan 10:01
Jájá... er akkúrat núna að hlusta á Útvarp Føroyar á Netinu. Þar er íþróttafréttamaður sem hljómar alveg nákvæmlega eins og Hemmi Gunn, nema að hann tala færeysku. Það er svona pínulítið eins og að hlusta á blindfullan Hemma. Hvurt veit. Kannski er þetta bara blindfullur Hemmi Gunn, kominn í gamla djobbið, í Færeyjum. Hmmmm...
Reit Fjalsi klukkan 08:51
Líkt og öll skynsemi væri á burt flogin var í gær af Hirti (mér) sú tekin ákvörðun að til Færeyja skyldi haldið síðsumars á Ólafsvöku. Þrátt fyrir að engan eigi ég aur og í raun ekki neitt nema rúm, ísskáp und þvottavél. En engu síður. Þetta hlýtur að verða nokkuð gaman. Eða slíkt hið sama vona ég.
Reit Fjalsi klukkan 08:30
11.6.03
Ég hef hægðir einusinni á dag. Eiga svona upplýsingar heima í opinberri vefdagbók? Afhverju ekki? Kemur fólki ekki alveg eins við hvað ég kúka oft eins og hvað ég fékk mér í kvöldmat eða hvað ég gerði síðustu helgi? Hvor er meiri pervert, sá sem heldur úti svona vefdagbók eða sá sem les hana? Einu sinni hætti ég að blogga. Tilkynnti það formlega sem vefsjálfsmorð. Næstu viku fékk ég vart frið fyrir fólki sem tjáði mér hvursu mikill harmur það var að uppgötva að ég væri hættur að segja frá örmurtilveru minni. Jafnvel þó að ég væri ekkert að leggja til málanna. Bara að tala um hvursu mikið mér leiddist og væri gramur út í lífið. Vart gat það talist skemmtiefni sem ég skrifaði í vefdagbókina. Ekki skil ég hvers fólk var að sakna. En ég ákvað þó að rísa upp á ný og halda áfram að básúna um mitt annars fremur tilgangslausa líf. Fyrir alla pervertana sem fá kikkið út úr því að lesa dagbækur annarra. Og þess vegna ert þú, kæri lesandi, að fræðast um magn hægðalosunar minnar. Sum sé, einu sinni á dag, þessa dagana. Ég tel hægðir mínar bera vott um heilbrigði og hamingju. Stórir og myndarlegir hlunkar hrapa úr rassgati mínu niður í klósett víða um bæinn með tilheyrandi skvettum og látum. Reyndar hef ég náð valdi á ágætri tækni til að draga úr skvettum þegar fögur afkvæmi mín snerta yfirborð klósettvatnsins (eða hvað þetta kallast). Smá flís af tojilettpappír skal leggjast varlega á yfirborðið svo fljóti. Þá lendir drullan fyrst á honum sem dregur væntanlega úr þrýstingsbreytingu á yfirborðsspennu eða eitthvað. Ég féll í eðlisfræði og hef ekki hugmynd um hvaða lögmál eru að verki við vatnsskvettur. Mig grunar þó að hugmyndir Newtons um aðdráttarafl og þess háttar geti útskýrt þetta að einhverju leyti. En hvað veit ég... ég er á leið í mastersnám í málvísindum for kræjing át lát. Ef skítur kynni að tala gæti ég líklega frætt ykkur um það. En skvamp og skvettur veit ég ekkert um. Það eina sem er víst er að ég hef hægðir einu sinni á dag og hef náð að lágmarka skvettur og skvamp við athöfnina.
Reit Fjalsi klukkan 17:33
Nokkrar breytingar á hlekkjasafninu hér til hliðar. Þeir sem ekkert hafa bloggað þennan mánuðinn fá nafnbótina „aumingjablogg“ og svo bætast tveir nýir við.
Reit Fjalsi klukkan 16:08
Silvía, sú ítalska. Er búin að fá tilboð um tvær íbúðir í Amsterdam. Önnur í 20 mín fjarlægð frá miðbænum sem rúmar þrjá og hin í 5 mínútna fjarlægð sem rúmar tvo. Rétt í þessu vorum við Silvía að taka þá ákvörðun að dissa bandaríska gaurinn sem hafði áhuga á að leigja með okkur og nappa íbúðinni sem er nær miðbænum. Hún er minni en ódýrari. Silvía ætlar svo að láta mig vita í dag hvort við fáum íbúðina. 350 kall á mann á mánuði, nánast í miðbænum með tvítugri ítalskri snót. Gæti það verið betra?
Tja....
Reit Fjalsi klukkan 13:47
10.6.03
Ég pantaði Watership Down hjá Máli og menningu í gær. Merkilega fáir hafa heyrt nokkuð um þessa bók. Engu að síður poppar hún upp á fjölmörgum listum yfir bestu skáldsögur skrifaðar. En sum sé. Bókin er í pöntun og kemur ekki fyrr en eftir tvær til þrjár vikur. Þess vegna verður hliðrað til þann 15. júní og byrjað á Ulysses. En reyndar er aðalvandamálið að klára helvítis Fávitann. Var ekki nógu duglegur um helgina. Það er við lesturinn. Reyndar var ég hörkuduglegur um helgina. Kleif Snæfellsjökul og renndi mér niður hann aftur. Jamm og já!
Reit Fjalsi klukkan 15:12
Hvað í andskotanum á Verslunarskólinn við með slagorðinu stefndu hærra!
Mér finnst þetta soldið súrt ef ég á að segja eins og er. Jú komdu til okkar af því að við þá getur þú orðið ríkur eins og hann pabbi þinn!
Dæmigert fyrir þann hugsunarhátt sem virðist ætla að fara tröllríða þessu skítasamfélagi sem við búum í. Ekkert er nógu gott nema að þú þurfir að borga fyrir það nógu mikinn pening. Allt annað er bara drasl fyrir almúgamenn og fátæklinga.
Rugl
Reit Fjalsi klukkan 14:35
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík