30.11.02

Má ég kynna hið nýja lúkk! Margir gætu haldið að hér væri á ferð óður til vinstrigrænna. Svo er þó ekki.

Njótið á meðan þið hafið.

Við getum kallað þetta stundarbrjálæði.

29.11.02

Síðasta færsla er tileinkuð Páli Hilmarz --- hann á samt ekki afmæli fyrr en í maí, 8. eins og afi minn. Engu að síður, eða eins og Herbert orðaði það: Þettertiþííín!
Nenni....


...ekki neinu



Farinn heim ...


matur
rauðvín
Þannig að við finnurmagnusson.com verðum bara nágrannar á næstunni. Þetta virðist bara snoturt pleis. Til lukke!

(Hversvegna var Finnur að taka við ávísun frá Joð ??)
Þetta próf var einfaldlega of klikkað til að sleppa.

Hvernig fór ég annars að því að verða Halldór?





NATO-fundir eru frábærir, því þá finnst þér þú ekki vera lítill og áhrifalaus lengur. Stundum finnst þér samt að hinir NATO-ráðherrarnir líti niður á þig vegna þess að Ísland á engan her.
Mikið væri gaman að eiga her...



Taktu "Hvaða stríðsæsingamaður ert þú?" prófið





28.11.02

Hin bráða vakt

Ég gat ekki betur séð en að Dr. Green og dóttir hans, Rachel, hafi verið að horfa á Return of the Killer Tomatoes í byrjun þáttarins í gær. Ef mér sýndist rétt þá var þar á ferð frábærlega langsóttur brandari. Afhverju? Jú, George Clooney lék einmitt í þeirri mynd. Var e-r annar sem tók eftir þessu eða sýndist mér rangt? Þarna gæti líka hafa verið á ferð myndin á undan, Attack of the Killer Tomatoes eða e-ð álíka. Voru ekki líka einhverjir þættir með þessum tómötum, þetta gætu hafa verið þeir. Hvað um það. Tengingin er frábær. Hlýtur að vera með ráðum gert. Kannski finn ég e-ð um þetta á netinu. Það er jú ár síðan þátturinn var sýndur ytra.

27.11.02

Sverrir hefur veitt mér þann heiður að hlekkja á mig undir heitinu „meira málfarsblogg“. Ég hlýt að þakka fyrir mig og svara í sömu mynt þó að hlekkur frá minni síðu hljóti að teljast nokkuð verðminni en hlekkur frá Sverris. Engu síður er Sverrir nú hlekkjaður hér til vinstri.

Reyndar er nú kominn tími til að taka til í hlekkjahorninu. Olav nokkur er tam ekki búinn að blogga neitt frá því í september. Hann hlýtur að vera löngu búinn að vinna sér inn nafnbótina „Aumingjabloggari“.
Erna og félagar klóra sér í höfðunum yfir athugasemd minni um stíl hennar. Ekki bjóst ég við því að þessi athugasemd myndi valda þessu hugarangri. Þess vegna læt ég líka vera að útskýra hana nánar. Hún er þó á engan veg illa meint, nema síður sé!

Varðandi Bráðavaktarumræðuhóp þá er ég ávallt tilbúinn til að endurvekja hann, hafi hann einhvern tíma dáið. Það er einmitt þáttur í kvöld sem hlýtur að kalla á hressilegar umræður í hádeginu á morgun. Erna ætti að vita hvar mig verður að finna þá!

25.11.02

Ha - eru blóm hérna frammi!?

Síðasta föstudag fór fram leikfimitími í félaginu Í=GS. Þar náði ég að brjóta mitt bak. Körvubolti er líklega ein versta íþrótt sem ég hefi stundað. Ég vona að næst verði tekið í bandí eða kannski blak. Dróttinn forði oss frá körvubolta meir.

Helginni eyddi ég að mestu í lausn verkefnis um skrif málfræðingsins fyrsta. Hafði ég af því nokkuð gaman og jafnvel eitthvurt gagn.

En helgin fór ekki öll í verkefnislausn því á laugardaginn fór ég á stórkostlega tónleika með Sálinni og Sinfóníunni. Mikil guðsgjöf var þar á ferð og mátti, ef vel var gáð, líta sælutár á kinnum tónleikagesta. Voru tónleikarnir í raun svo ólýsanleg sæla að ekki verður einu sinni gerð tilraun til að lýsa þeim hér. Þeir sem misstu af snilldinni geta grátið í laumi, eða á útopnu. Mér er svo sem sama.

Einnig var skellt sér á „jólahlaðborð“ í Norræna húsinu í gærkveldi. Samkoman var hin skemmtilegasta þar sem við í vefsetrinu tókum á móti samstarfsfólki okkar frá Bandaríkjunum. En eitthvað fór nú lítið fyrir þessu hlaðborði. Þetta var í raun ekkert hlaðborð heldur tveir litlir diskar á mann. Annar bar grafinn og reyktan lax en hinn kjötbollur og lifrakæfu. Ég hugsa að þetta hafi í raun verið julefrokost. Ég fór amk svangur heim!