1.3.02

B-dagurinn í dag. Í tilefni af því ritaði ég netta grein á Andansmenn.com. Fínn dagur til drykkju og vitað mál hvað ég geri í kvöld. Magga Andansmaður númer 1 er öll að koma til og fór á hressilegt pöbbarölt í gærkvöldi. Ég hlakka til að fá hana inn í starfið. Að vísu er hún að fara í MIT þanning að maður sér nú lítið af henni í bráð. En hvað getur maður svo sem annað sagt en TIL HAMINGJU!!! En hvað um það... LESTU

28.2.02

Friðbjörn Orri Ketilsson skrifar merkilega grein á frjalshyggja.is þar sem hann fjallar á einfeldningslegan hátt um skatta. Frissi talar um að ríkið taki peninga „lögum samkvæmt ófrjálsri hendi af landsmönnum„ í formi skatta. Frissi virðist ekki átta sig á að "ríkið" er skapað af íbúum landsins og vinnur fyrir íbúa landsins (þó oft virðist eins og það sé öfugt). Þegar Frissi er að borga skatta er hann að greiða fyrir samfélagslega þjónustu sem honum er opin og hann hefur án efa nýtt sér í gegnum tíðina og mun gera um ókomin ár. Ríkið er ekki að stela peningum. Friðbjörn er að greiða ríkinu pening. Við getum kallað það svo að Frissi sé að borga ríkinu leigu fyrir að búa hér. Ef Frissi borgar ekki skattana sína er hann að stela þessvegna er hann settur í fangelsi. Skattar takmarka ekki frelsi, þeir auka það.
Skrapp í smá ferðalag á vefinn í hádeginu. Sá að frjálshyggja.is er komin í gang. Lítur svo sem ekkert illa út en þetta er náttúrulega bara andskotans bull sem er verið að skrifa þarna, enda er aðal frelsið í dalnum.
Svo kíkti ég líka á gömlu síðuna hennar Möggu. SNILLD!!!! Hún var eitthvað að kvarta yfir frames hjá mér... Jæja magga ertu sátt núna???
Síðasti febrúar í dag! Þá fer þessum ræfilslega mánuði að ljúka. Andansmenn halda kveðjuhóf af því tilefni á Kaffibarnum í kvöld klukkan níu. Þangað er gott að kíkja enda Andansmenn besta fólk. Nú er bara að bíða eftir meira snjó til að brettafærið batni annars er bara málið að skella sér til Salt Lake enda Ólympían búin og TESOL næst á dagskra. Andri Snær kominn í Þjóðmenningarhúsið og Gísli Marteinn á leið í borgarstjórn og fuglarnir farnir að syngja, amk hrafnarnir fyrir utan gluggann hjá mér. En hvað um það. LESTU.

27.2.02

Þetta er allt farið að skýrast eftir örstutt byrjunarproblem. En hvað um það. Nú er bara að fara að fegra þetta lúkk örítið og svo bara blogga á fullu því nóg hefur maður víst að segja. En í dag er lítið að segja því nóg er að gera í vinnunni. Þannig að ég má ekkert vera að þessu. En á meðan bendi ég bara þá þennan link. Helv... góður!

26.2.02

Jæja - þá er maður farinn að blogga og planið er að gera það á fullu í byrjun mars. En áður en lengra er haldið..... Húrra Svo bíðum við bara róleg!!!