25.10.02

Ég átti ítarlegt og misgáfulegt spjall við Oddberg, Arnór, Ármann, Sverri, Gulla, Kalla og Hauk á Kaffistofunni í Árnagarði áðan. Það er gott að geta gengið að þessum spjöllum (því spjall hlýtur að vera spjöll í fleirtölu (þeir sem halda því fram að spjall sé ekki til í fleirtölu er bent á grein Höskulds Þráinssonar „Ekki til í fleirtölu“ sem birtist í Íslensku máli, 5. árgangi)). Í dag var rætt um raðmorðingjann í bandaríkjunum (ég hefi ákveðið að rita bandaríkin framvegis með litlum staf), Baug og auðhringi, kvikmyndina Red Dragon, Osta- og smjörsöluna, Fram og KR og margt misgáfulegra. Þessi spjöll eru nauðsynlegur liður í akademískri vinnu ein og Ásdís nokkur Egilsdóttir presenteraði þegar ég hóf nám í Árnagarði haustið 1996.

Arnór kom á spjallfundinn vopnaður köku ágætri sem reyndist vera afgangur afmælis hans frá í gær. Í tilefni af afmælinu fær Arnór hlekk á sig hér til hliðar. Enda tímabært þar sem hann hefur sjálfur hlekkjað mig um nokkurn tíma.

Kexdólgurinn hefur enn ekki komið í ljós. Ég vonast til þess að málið upplýsist á næstunni í kjölfar þess að komið hefur verið höndum yfir leyniskyttuna í bandaríkjunum. Stóra kexmálið hófst reyndar um svipað leyti og skyttan fór að skjóta saklausa borgara. Það skyldi þó ekki vera að þessi tvö mál væru tengd!?

23.10.02

Kexdólgurinn er enn á ferð! Um stund hélt ég að kexdólgurinn hefði látið af ósið sínum enda hafði ekki verið hreyft við kexpakkanum góða í nokkurn tíma. En þegar ég mætti til vinnu í morgun og ætlaði að fá mér eitt gott kexstykki með fyrsta kaffibollanum var kexpakkinn horfinn. Aðeins var eftir fátækleg mylsna. En hér er greinilega á ferð snyrtilegur kexdólgur því fyrir stundu kom ég auga á umbúðir kexpakkans í ruslinu inni á kaffistofu.

Er spurning hvort ég þurfi að fara að læsa kexpakkann hér inni á skrifstofu?

Hvað er ráða?