Sum kvöld freistast maður til að fá sér einn bjór. Jafnvel fleiri. Stundum fer maður jafnvel á barinn. Stundum hefur maður svo ekki fengið nóg og fer í partý eftir barinn. Stundum vaknar maður þunnur og fer í vinnuna.
En bara stundum.
Skál
Reit Fjalsi klukkan 12:03
24.7.03
Love is a transparent wall between us....
Reit Fjalsi klukkan 12:03
23.7.03
Á svona dögum er maður bara þreyttur og pirraður.
og nennir
ekki
neinu
Reit Fjalsi klukkan 13:33
22.7.03
Ég skil hvernig flugvélar fljúga. Ég skil hvernig flugvélar lenda. En ég botna ekki í því hvernig þær í ósköpunum fara að því að taka á loft. Það bara gengur ekki upp. Enn eitt sem bendir til að þetta sé nú kannski ekki ekta veruleiki sem við erum að lifa... hmmmm.
Reit Fjalsi klukkan 15:18
21.7.03
Af einhverjum ástæðum finnst fólk við hæfi að kommentera á klippinguna hjá mér. Aðeins einu sinni hefur hár mitt vakið jafn mikla athygli. það var þegar ég litaði það bleikt. Það útlit fékk ekki að lifa lengi, enda var ég virkilega ógeðslegur með bleikt hár. En nú er ég bara með venjulegan háralit. Það eina sem ég gerði var að skilja eftir smá hár frá hnakka og niður.
Merkilegt hvað fólki finnst merkilegt.
Reit Fjalsi klukkan 17:01
Björn skrifar stórgóðan pistil um tekjur háskóla á Íslandi. Þar kemst hann að því sem ég og fleiri höfum bent á lengi, að ríkisskólar á Íslandi bera skarðan hlut frá borði þegar kemur að greiðslum til skóla og samkeppnishæfi.
Reit Fjalsi klukkan 15:13
Dagur. Einn til viðbótar. Endalausir dagar framundan. Þar til kannski dómsdagur rennur upp. Hvenær sem það svo sem verður. Þessi dagur. Blautur. Helgin ekki en þó. Allt einhvernveginn öfugsnúið og skrýtið. Undarlegt og leiðinlegt. Gaman og sorglegt og fáránlegt. Svitna. Hlæ og brosi og græt. Þetta var allt einhvernveginn svona.
Reit Fjalsi klukkan 13:00
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík