1.8.02
Hvað kallast lögga á þríhjóli?
Sigrún (hverrar sporum væri ég í mér myndi líka vera illa við Hard Rock) veltir fyrir sér hvar hún eigi að eyða Verslunarmannahelginni. Tjah... hún gæti tam mætt á Útihátíð Andansmanna.
Mummi.... (hver ætlar á útihátíð og ég verð líklega búinn að hringja í áður en hann les þetta) þú mætir bara með tjald, svefnpoka, drykkjarföng og mat á grillið. Ég pikka þig svo upp um 16:00 á morg. Annars hringi ég í þig á eftir.
Óli Veigar.... (hvern ég hef nú þegar talað við um morgundaginn í síma) við sjáumst á morgun.
Haukur (hver ætlar einmitt á útihátíð Andansmanna líkt og Mummi og Óli) joronn með félagsskapinn umtalaða ;)
Finnur og Magga (hver fá einmitt að fljóta með í lundinn á bílnum hvern við getum kallað Air Force One eða kannski frekar Ground Force One) við gerum ráð fyrir brottför um 1600
Dagný... (hver ætlar jafnvel að mæta tvisvar á útihátíð þetta árið) þú mannst eftir birgðunum!
31.7.02
Hvað sagði ljóskan þegar hún sá manninn í apabúningnum?
"Nei sko - api!"
30.7.02
Guffi eða Glópnir kallast mörgum nöfnum um allan heim. T.a.m. kalla Færeyingar hann Klossmund og í Noregi kallast hann Langbein, Jan Långben í Svíþjóð og Bondock á arabísku.
Í raun kallaðist Glópnir Dippy Dawg í fyrsta sinni sem hann birtist en sökum hvursu bjánalegur hann þótti fékk hann fljótt nafnið Goofy sem fer honum bara ágætlega.
En það sem hefur reyndar vafist frekar fyrir mönnum er hvernig beri að flokka fyrirbærið sem við skulum kalla Glópni. Ég hef alltaf staðið í þeirri meiningu að Glópnir sé hundur enda bera döpur augun, lafandi eyrun og framlangt trýnið vott um það. Mörgum hefur þó þótt það nokkuð truflandi þar sem Glópni hefur margsinnis verið stillt upp með hundinum Plútó og eru þeir öngvir jafningjar og má það þykja ósanngjarnt gagvart Plútó greyinu. Slíkt þykir þó alls ekki óvenjulegt í Músabæ og Andabæ þar sem oft má sjá endur ríða hestum, hesta mjólka kýr og mýs veiða fisk. Þar eru sumum dýrum gefnir mannlegir eiginleikar á meðan örðum er það ekki.
Afhverju finnst Helga Björnssyni rigningin góð?
Afþví að hann er hálfviti.
29.7.02
Heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins:
Hvað kallast hestur sem lærir?
Náms hestur : Þ
En það varð sum sé ekkert úr lauksúpunni á föstudaginn þar sem enginn vildi þiggja hana og við María ákváðum að bíða með hana og pöntuðum okkur þessa líka fínu pizzu frá Domino's. Reyndar tvær pizzur -- amm - amminamm. Svo kom Magga í heimsókn og svo líka Rún svo við fórum fjögur (Magga, Rún, María og ég) á Vegamót. Hvar ég hitti Hauk #3 sem skrifar skemmtilega punkta um mæðu örvhentra. Við Haukur erum líka bræður í baráttunni og það eru ekki bara kaffivélar og örbylgjuofnar sem snúa vitlaust. Oftar en ekki hangir t.d. klósettpappír á almenningssalernum hægra megin og ég þarf yfirleitt að endurraða borðbúnaði þegar ég snæði á veitingahúsum. Allir stólar með fastri borðplötu í Háskólanum eru ætlaðir fyrir "rétt"henta. Það var að vísu mér til mikillar gleði sem ég uppgötvaði að sætin lengst til vinstri í litlu sölunum í Háskólabíó eru ætluð fyrir menn eins og mig og Hauk. Á móti endar maður að vísu með myndarlegan hálsríg eftir hafa þurft að snúa hausnum þessar 30 gráður til hægri - til að fylgjast með kennaranum á miðju sviðinu. Það er spuning hvort við Haukur eigum ekki bara að stofna samtök. Við gætum kallað þau - Samtök vinstrimanna - í orðsins fyllstu merkingu.