14.6.02

Fjarhitun.is

Síðan hefur fengið nýjan lesanda frá fjarhitun.is. Þar veit ég ekki til þess að ég þekki neinn nema Hólmfríði Karlsdóttur, gamla bekkjasystur mína úr Vestubæjarskóla. Hún gerðist fræg á dögunum fyrir að hanna sjálfvirkan kattamatsskammtara.

Ég veit svo sem ekki hvort að það sé Hólmfríður sem er að lesa síðuna mína - ef svo er þá segi ég bara hæ. Ef ekki þá bið ég að heilsa henni.

Hver sagði: Í dag er góður dagur til að mótmæla? Hmmm hvað um það. Finnur kíkti í heimsókn í gær til að gæða sér á skosku guðaveigunum sem ég kom með frá Bretlandi. Við vorum nokkuð sáttir báðir. Svo sáttir vorum við að frelsið tók öll völd stofunni og við sömdum næsta útihátíðarlag Andansmanna - sem virðist bara vera skrambi gott. Nú er bara að fullklára textann og svo í stúdíó. En þangað til vil ég benda á lagið frá í fyrra.

13.6.02

Jæja. Stúdentaráð er aðili að mótmælunum á morgun. Það er svo sem gott og blessað. Hins vegar bar ekki mikið á mótmælum frá því þegar hingað var boðið glæpahyskinu í NATÓ. Það virðast bara ákveðnir aðilar sem fremja mannréttindabrot sem fá suma til að opna munninn. Hmmmm hræsni?

Annars vekur athygli mína að Vaka og Röskva eru líka aðilar að mótmælunum. Svona eins og það sé ekki nóg að gera það í nafni Stúdentaráðs. Hefði ekki bara verið nóg að fylkingarnar stæðu hvor að mótmælunum og nýttu Stúdentaráð sem samráðsvettvang um hagsmuni stúdenta. Þetta náttúrulega bara spurning um hlutverk Stúdentaráðs. Ef það á að vera stefna þess að mótmæla mannréttindabrotum í heiminum vil ég benda á þau grófu mannréttindabrot sem palestínskir stúdentar verða fyrir dags daglega eða herskyldu barna í Sierra Leone, pyntingar í Írak eða lögregluofbeldi í Malasíu. Af nógu er að taka krakkar mínir!

Ég ætla allavega að fara á Austurvöll á morgun og mótmæla í eigin nafni. Því ég er á móti mannréttindabrotum alls staðar (ekki bara í Kína!)
Humm --- hér er nú allt að fara til fjandans, tja nema sólin. En - ég nenni ekkert að vera að babbla um það. Mummi kominn í rifrildi út af fótbolta eða einhverju - en ég nenni nú eiginlega ekkert að vera að setja mig inn í það - held bara með dönunum og vona að þeir smelli út Beckham og co. enda enska liðið hundleiðinlegt. Annars er nú í fínu lagi að halda með Brözzunum enda oft stórskemmtilegir. En djöfull vildi ég hafa verið í París þegar þeir töpuðu fyrir Danskerne um daginn - ha --- munaði bara tveimur dögum..... en kannski næst. Annars eru frakkarnir líka hundleiðinlegt.... það hefði samt verið gaman að sjá Saxana og Frönskurnar mætast. Tvö leiðinleg lið - það hlýtur að bjóða upp á stórskemmtillegan leik... finn ekki alveg afleiðsluna hjá mér en hvað um það. Annars veit ég ekki hvaða leiðir maður á að fara til að velja sér lið til að halda með. Núna held ég með Dönum af því að Hollendingar eru ekki með. Danir eru næstir í röðinni því ekki fer ég að halda með Belgum eða Þjóðverjum! Annars held ég vanalega með Hollendingum því mér finnst hollenskur bjór svo góður. Ég hélt til dæmis með Orlando í NBA af því að ég fann/stal húfu með merkinu þeirra fyrir 10 árum. Ég hélt með ManUtd vegna þess að allir aðrir héldu með Liverpool og ég hélt með Val af því að ég ólst upp í KR- hverfi. Svo hefur maður náttla haldið með Víkingi í handboltanum frá því maður var 8 ára. Mummi man eftir því - því með honum fór ég á einasta íþróttaleik sem ég hef farið á á æfinni (fyrir utan formúluna á SPA - en ðennagen, er formúlan íþrótt??). Í formúlunni held ég með Villeneuve því hann er svo mikill töffari.
I'm Dawson's Creek!
What WB drama are you?

Ég þarf greinilega að fara að kíkja á þetta Davson Krík... á hvaða stöð er það sýnt?

12.6.02

Reykjavík lítur nú bara vel út í svona góðu veðri. London og París líta líka vel út í góðu veðri. Svo er maður líka að fara til Þingvalla í dag. Jamm - nóg að gera.

Annars hefur maður bara ekkert verið að blogga að undaförnu, enda í sumarfríi og hvað á maður að vera að blogga eins og vitleysingur í fríinu sínu. Frekar að fá sér öl í London og Rauðvín í París og slappa af á bökkum Thames/Signu.

En svo kemur maður aftur úr fíi og í þetta líka fína veður og hvað er maður þá að hanga inni og blogga eins og einhver viltleysingur.

jæja.... svo á maður líka að vera að vinna og hvað er maður þá að eyða tímanum í að blogga eins og einhver vitleysingur?