Með Finnboga í frelsi ég raula þetta lag
eins og undir Fjósakletti forðum.
Dísa drusla dansar. Það er hennar fag.
Því verður aðeins lýst með þessum orðum.
Reit Fjalsi klukkan 16:59
Í gær flutti ég frumsamin ljóð. Það var fjör.
Í gær samdi ég textann á útihátíðarlagi Andansmanna 2003
Þetta erindi finnst mér best:
Í kotruspil við tökum og kætumst yfir því
að kæliboxin eru full af bjór
Það verður fjör og frelsi Þrastaskógi í
á útihátíð syngjum við í kór
Í gær samdi ég lagið við textann. Ég held það sé stolið!
Reit Fjalsi klukkan 16:57
30.7.03
Jú. Í kvöld ætlar strákurinn bara að fara að lesa ljóð. Eins og hann kunni það eitthvað. Reyndar kann hann alveg að lesa upp ljóð. Spurningin er bara hvort hann kunni e-ð að yrkja. En hann ætlar að lesa upp fallegar myndir í ljóðum fyrir alla sem vilja heyra og hlusta á hann. Í kvöld á Bláa Barnum altso
Reit Fjalsi klukkan 09:52
28.7.03
Það er eitthvað svo stórkostlegt við það að sitja á báti á vatni með veiðistöng í hönd og fylgjast með flotholti sem marar í hálfu kafi. Svo þegar kippir í og hjartað tekur kipp í takt og maður áttar sig á að fiskur er á sem þá hefur sitt dauðastríð og maður hlakkar til að binda endi á líf hans, klappar létt á vasann til að fullvissa sig um að hnífurinn sé á réttum stað og dregur svo línuna smátt og smátt inn. Nógu hægt til að finna hvernig krafturinn fjarar út hjá dauðvona silungi, eða kannski urriða. Þó ekki laxi, ekki í þetta sinn.
Reit Fjalsi klukkan 11:54
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík