7.3.02

Internetið er snilld! Svo virðist sem allir séu á Netinu alltaf. Þá er hann Gummi Svans kominn með blogg síðu og eins og allir sannir umhverfisverndarsinnar endurvinnur hann notað útlit. Jamm svona líst mér á. Nú er bara að bíða eftir að það komi eitthvað af viti frá honum Gumma!
Andansmenn.com
Andansmenn Andansmenn Andansmenn Andansmenn Andansmenn Andansmenn Andansmenn Andansmenn Andansmenn Andansmenn
Ég vildi bara koma þessu að.
Jæja - það kom að því ... litli „þjófnaðurinn“ minn komst upp! Ég er líklega engu skárri en Árni Johnsen. Tommi pottur var maðurinn sem kom upp um mig, ekki leitt að vera spottaður af annarri eins mannvitsbrekku! Jamm - templeitið mitt ku víst stælað af stórglæsilegri Deiglunni. Mér finnst nú samt litanotkunin mín miklu flottari. Það er eitthvað við þennan frjálshyggju-grátón sem hefur aldrei heillað mig. Nú látum við reyna á það hjá dómstólum hvort ég hafi stolið lúkkinu hjá Deiglunni eða einfaldlega þróað það í betri átt.

6.3.02

Jamm - ég rakst á villu í síðasta bloggi - ég setti vitlaust póstnúmer á Berverly Hills. Það á að sjálfsögðu að vera 90210. Ég vildi bara nefna það að ég hefði spottað það áður en ég færi að fá einhvern leiðinlegan póst um að ég hefði sett inn rangt póstnúmer.
Hvað um að. Traffíkin hingað inn hefur verið merkileg. 277 á einni viku! Ég hlýt að vera nokkuð sáttur við það. 33% af þeim koma frá síðunni hennar Möggu sem hlýtur að þýða að hún er að rúlla upp heimsóknum á sína síðu. En hvað um það. Ég er svo sem ekkert í neinu kappi.
Talandi um kapp. Þá skellti ég mér einu sinni á formúkeppni á SPA brautinni í Belgíu ásamt Finni félaga. Vildi bara svona koma því að í kjölfar allrar formúluumfjöllunarinnar hjá Möggu. Jamm, það var sko einum sunnudegi illa varið. Ég skal sko segja ykkur það að formúlan er ekkert annað en sjónvarpssport. Ég meina það eina sem maður sá voru strik sem flugu framhjá manni annars lagið. Og svo var þessi yfirgnæfandi hávaði svo maður varð að hafa eyrnatappa í eyrunum og það var varla að virka. Svo var ég svo drulluþunnur og það er sko allt annað en að vera drulluþunnur uppí í sófa og horfa á ósköpin. Og þar sem við vorum í Belgíu var það eina matarkyns að fá hvít bjúgu steikt í olíu. Fyrir utan allt það lentum við í mestu rigningu ég hef kynnst. Nei - ég ætla sko aldrei aftur að fara í formúluferð. Ja, nema að maður fái svona gott tilboð eins og seinast... þá sleppir maður sko að fara á brautina og skellir sér bara á fyllerí!!!
Annars er fínt að formúlan skulu vera byrjuð aftur. Nú er bara að vona að minn maður geri það gott í ár.
Miðvikudagur í dag. Af því tilefni horfði ég á síðasta þátt af Bráðavaktinni sem sýndur var fyrir viku. Missti nemlig af honum en var svo heppinn að Hulli tók hann upp. Enda var þetta líka massa þáttur með dæmigerðum lokaþáttsendi þar sem maður er skilinn eftir í tómi hugsandi svo margt sem maður ekki fær óhugsað fyrr en ný sería tekur við.
Þá er líka bara að vona að RÚV haldi áfram að sýna seríuna næsta haust. Það væri svo sem alveg eftir þeim að leggja niður sýningar og segja að fólk sé orðið þreytt á þessu. Eins og þeir gerðu með Simpsons og eitthvað fleira. Sögðu að menn væru orðnir þreyttir á Simpsons og fóru að sýna Berverly Hills 90201 sem ég persónulega var kominn með ógeð á án þess að hafa nokkurn tíma horft á einn einasta þátt. Jamm svona eru menn nú þenkjandi þarna á RÚV. ... En hvað um það LESTU

5.3.02

Í dag eru 49 ár frá því að Jósef Stalín drapst. Það þarf svo sem ekki að deila um það að Stalín var einn grimmasti þjóðarleiðtogi veraldarsögunnar. Engu að síður og kannski einmitt þessvegna er hann líka einn merkasti þjóðarleiðtogi sem sögur fara af. En nú ætla ég að hætta að tala um Stalín áður en fólk fer að halda að ég sé Stalínisti og ég verð hengdur úti á götu. Lestu
Nýtt lúkk! og vefurinn ekki vikugamall. Annars er maður nú bara helvíti sáttur!!!

4.3.02

Í dag birtust í Fréttablaðinu niðurstöður úr skoðanakönnun þar sem spurt var hvort fólk væri hlynnt eða andvígt því að Sturla Böðvarsson segði af sér í kjölfar Landssímamálsins. Niðstaðan var ótvíræð: 66% eru hlynnt því að Sturla segi af sér. Þessi skoðun er nokkuð afdráttarlaus. Jafnvel þó deila megi um aðferðafræði könnunarinnar. En hvað segir Sturla? „Það er fjarri öllu lagi“. Meira mark tekur Sturla ekki á vilja meirihluta þjóðarinnar.
Það má vel vera rétt að Sturla hafi beinlínis ekki brotið af sér í málefnum Landssímans. Það má jafnvel vera að krafan um afsögn sé að einhverju leyti ósanngjörn. En þegar viljinn í landinu er jafn afgerandi og þegar á ráðherra nýtur ekki lengur trausts á hann að segja af sér, þó ekki væri nema samvisku sinnar vegna.