Jei --- gulli hættur að vera aumingabloggari --- ég villtist á djammið í gær --- það endaði þó allt á góðu nótunum --- þorri kemur í kvöld --- þá verður djammað meir --- mér líður vel!
Reit Fjalsi klukkan 18:01
20.6.03
Ég hef fátt sagt af viti hér á þessari síðu og síðan þegar ég fer að fjalla um bloggleysi mitt með því að fjalla um hægðir mínar vekur það svona stórgóða lukku. Fólk meir að segja farið að senda fögnuðinn á vini og vandamenn og heilu ættarmótin... hvað er að!!!???
Reit Fjalsi klukkan 17:12
Einhver (194.144.36.225) sló inn Hjörtur Einarsdóttir á Leit.is og fann mig.
Þetta var föstudagsbrandarinn
Reit Fjalsi klukkan 16:35
19.6.03
Í dag er 19. júní! Þá minnumst við þess er konur (40 ára og eldri) fengu kosningarétt og kjörgengi til Alþingis árið 1915. Það er mikilvægt að minnast þessa dags. Sér í lagi af þeirri sorglegu staðreynd að nú, 88 árum síðar, eru eingöngu 19 konur af 63 manna þingliði. Tvær konur eru ráðherrar af tólf.
Á 88 árum hafa konur náð þriðjungi á þingi. Samkvæmt þeirri þróun ná þær helmingi eftir 58 ár. Ég nenni ekki að bíða eftir því. Aðgerða er þörf! Málum bæinn bleikan!
Hér með hefur það fengist staðfest: Einar Karl er hálfviti!
Reit Fjalsi klukkan 18:04
18.6.03
Merkilegt hvað er að gerast með vora túngu. Algegni þunglyndis hefur aukist. Verðbréfagaurar auka seljanleika hlutabréfa og mörg fyrirtæki landsins eru að skila miklum hagnaði. Þið kunnið að spyrja hvað þetta komi tungumálinu við. Tja, tungumálið er greinlega að sýna ákveðna þróun. Eruð þið að leggja skilning í orð mín?
Þetta var málfræðiblogg dagsins.
Reit Fjalsi klukkan 11:59
gaman að kíkja svona í heita pottinn svona að morgni. margt skrafað, t.d. um að Davíð hafi kostast kosningabaráttuna fyrir Halldór, að margt sé nú líkt með sovéska kommúnístaflokknum og sjálfstæðisflokknum. Að Bush sé nú lítið skárri en margir harðstjórar sögunnar og hitt og þetta.
Reit Fjalsi klukkan 09:32
16.6.03
Síðasta föstudag hitti ég Ingunni í bænum. Sú skammaði mig mikið fyrir að vera svona óduglegur að blogga. Ekki skil ég hvað hún átti við. Svo dansaði hún eins og brjáluð í Sirkus eins og ég og vel flestir þar inni. Jú, ég held ég hafi tekið Sirkus í sátt. Skemmtilega mikið brjálæði þar í gangi og bara stuð ef maður sleppir því að hanga á efri hæðinni sem hlýtur að þjóna meira tilgangi krabbameinskaffihúss en skemmitstaðar. Svo að já, Sirkus má það vera, svona þegar maður hefur fengið leið á Ölstofunni í bili. Annars er nú bara sveitin skemmtilegasti skemmtistaðurinn... sérstaklega í góðum hópi.
Þetta blogg er til heiðurs Ingunni. Hafðu þetta mín kæra!
Reit Fjalsi klukkan 17:45
Húsafell! Jú, ég náði að hálsbrjóta Döggu og bakbrjóta sjálfan mig. Eitt er víst að ég tek ekki þátt í vangadanskeppni aftur. Annars var ferðin mest tíðindalaus. Ef frá er talið brúðkaup mitt og Steinunnar.
Reit Fjalsi klukkan 13:47
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík