25.4.03

tilverupakkið er greinilega e-ð pirrað á femínistum... who cares... þetta eru flest allt fífl eníveis... þ.e. tilverupakkið... ekki femínistarinir... þó að sumir femínistar geti sjálfsagt líka verið fífl... ég þekki samt bara einn femínista sem er fífl...

ég er samt ekki femínisti.... ég er meira svona jafnréttissinni.... enda jafnaðarmaður

jamm og já ... hvað eru mörg joð í því.... tja amk ekki steingrímur joð!
magnað... Um daginn kynntist ég hljómsveitinni Starsailor... Í dag komst ég svo að því að hljómsveitin verður sérstök gestagrúbba Rolling Stones í Amsterdam.... og hver á einmitt miða á þá tónleika? jú ég! jahá.... þetta er alveg hreint magnað...
Vá!!!
Búinn að bóka flug til Barcelona und allez.... en það er reyndar ekki allt. Þorri þokkalegi og Tóta frænka voru að segja mér frá hinni árlegu Primavera Sound Festival sem þau ætla að redda miðum á fyrir okkur. Þar koma fram m.a. Arab Strap, Belle and Sebastian, Sonic Youth, Teenage Fan Club og The White Stripes. Úúúúú þetta verður veisla maður!
Ég er að spá hvort ég eigi að koma mér upp svona kommentakerfi. Hvað finnst ykkur? Hmmm endilega skiljið eftir komment og segið hvað ykkur finnst?
Jájá! Ég var að uppgötva! Í dag er föstudagur... er ekki komið nóg! Ætlar þessi apríl að vera endalaus helgi. Úff!
Það er ósköp skondið að lesa skrif sjálfstæðisfólks. Ekki orð um afhverju fólk ætti að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Hins vegar nóg um kvabb og kvein yfir Samfylkingunni og Ingibjörgu Sólrúnu. Jamm - eru menn farnir að skjálfa?!
Annars var maður nú rétt í þessu að enda við að bóka far til Barcelona í lok maí! Jamm og já... verð að vísu að gista eina nótt í Köben. Hmmm hvern þekkir maður í Köben?
Djamm! Nú verður maður að fara að hætta.

Við Steinmahl ötluðum að fá okkur EINN bjór eftir velheppnaða bíóferð síðasta miðvikudag........... jamm enduðum á skralli klukkan 9 um morgun e-s staðar í vesturbænum!
Fyrir vikið varð lítið úr sumardeginum fyrsta... sem var samt ósköp huggulegur... jamm og já!

Eitt skil ég ekki! Afhverju er sumardagurinn fyrsti frídagur....hvað er svona merkilegt við hann. Maður fær hvort eð er sumarfrí. Af hverju þarf maður þá líka frí daginn sem sumarið kemur. Og hver ákvað það líka. Að sumarið kæmi bara allt í einu einn daginn... er þetta ekki svona meira hæg þróun. Smátt og smátt kemur sumar með svona óljósum mörkum sumars og veturs sem kalla má vor, t.d.

Hvað um það... ég tók mér frí sumardaginn fyrsta... Svaf meir að segja megnið af deginum!

23.4.03

En fyrir áhugasama þá má einmitt benda á ágætis upptalningu á myndum sem fjalla um Palestínu .... sem sagt hér...
Jú... fór á píanistann í gær... hún er nokkuð góð... finnst ég samt vera búinn að sjá full margar myndir um hörmungar gyðinga í seinni heimstyrjöldinni...

afhverju eru ekki gerðar myndir um hörmungar palestínumanna síðustu öldina eða svo?
Heimsfrægð blasir við

22.4.03

Og Vodafone!!!

Jú, ekki er verra að vera orðinn viðskiptavinur Vodafone. Eitt skil ég þó ekki: HVAÐ OG VODAFONE? Við höfum Mál og menning, Villeroy og Boch, Adam og Eva, Mátturinn og dýrðin. En hvað og Vodafone?
Því reyna þeir að svara á vefsíðu sinni:

„Og”, fyrri hluti nafnsins, á einkar vel við ef horft er til starfsemi félagsins. Það er stutt og er notað, samkvæmt skilgreiningu Orðabókar Menningarsjóðs, „til að tengja tvö orð eða orðasambönd: ...komdu og talaðu við mig.” Þá tryggir samstarfið við Vodafone aðgang að einu öflugasta vörumerki í heimi sem er mjög sýnilegt hérlendis og erlendis. Það er því vissa stjórnenda félagsins að Og Vodafone sé rétt lausn í vörumerkjamálum og muni efla félagið verulega, hvort sem horft er til ytra eða innra markaðsstarfs.“

Hmmmm.... ???????????
Verð að viðurkenna... þurfti dálítið á klóra mér í kollinum yfir þessari frétt!
Ég hef lifað í 9727 daga... til hvers???