14.5.02

Það er getur valdið nokkrum svima að velta vöngum yfir málflutningi ýmissa hægri afla í þjóðfélaginu. Þessa stundina er ég í hið minnsta nokkuð ringlaður yfir ummælum hægri manna í tilefni ráðherrafundar NATÓ hér á landi. Eða á maður kannski að tala um ummælaleysi.

Fyrir um ári síðan kíkti hér í heimsókn glæpamaður nokkur að nafni Li Peng, sem talinn er bera ábyrgð á fjöldamorðum á stúdentum á Torgi hins himneska friðar árið 1989. Sú heimsókn olli nokkrum titringi í þjóðfélaginu og fannst mörgum réttilega skömm að slíkum mönnum væri boðið hingað til lands. Pólítískar fylkingar og félagasamtök úr öllum áttum ályktuðu um málið, sneru bökum saman og stóðu að nokkuð öflugum mótmæum víða um bæinn. Gott og vel.
Hann var nokkuð áberandi hitinn í Heimdellingum sem beittu sér afar í þessu máli og svo mátti greina mikla óánægju hjá Vöku, félagi lýðræðissinnaðra stúdenta. Þar var á ferð fólk sem sjaldséð er á útifundum og mótmælum en í þetta sinn mætt með kröfuspjöld og gjallarhorn á lofti. Enda ekki nema von þar sem fulltrúar kommúnistaríkis voru hér á ferð og ó vei að sú grýla nái tökum hér á landi á ný!

Það vekur hins vegar athygli að þegar hingað til lands er boðið bunkum af glæpamönnum og þjóðarmorðingjum þegja þessi öfl þunnu hljóði. Og ef þau þegja ekki þá beinlínis fagna þau og gleðjast yfir heimsókn þessa vafasama skríls.
Ekki einu sinni minnast Heimdellingar á þann gríðarlega kostnað sem íslenskir skattgreiðendur bera af ráðstefnunni. Þeir sem þó vanalega emja sem stungnir grísir í hvert skipti sem ríkið eyðir stakri krónu.

Nei slík er NATÓ-dýrkunin hjá þessu fólki að allar hugsjónir og rökfesta hverfa sem dögg fyrir sólu um leið og þessir kappar stíga hér á land. Hér eru jú á ferð boðberar "frelsis" og "mannréttinda" líkt og Colin Powell, Silvio Berlusconi, Ismail Cem o.fl. eru nú sannarlega - eða hvað.

Ég veit ekki með Heimdellinga og Vökumenn, en í dag klukkan 17:00 ætla ég að láta sjá mig fyrir utan Hótel Sögu og mótmæla, því af nógu er að taka þegar þessir gestir eru annars vegar!
Mín tillaga á nafni á lambið er eftirfarandi, enda liggur það í augum uppi. skal það heita!

13.5.02

Fólk í próflestri kvartar oft yfir því að vera í próflestri og segir að því leiðist og sé að missa af öllu. Það er hins vegar bara rugl því það er nákvæmlega ekkert að gerast á meðan allir eru í prófum. Undanfarið hafa t.d. allir mínir vinir verið í próflestri (en ekki ég þar sem ég er löngu búinn að klára mitt nám) hafa lokað sig inni á Hlöðunni og neitað að hitta mig. Á meðan neyðist maður bara til að vinna eða sofa eða athuga hvort einhver sé í bænum um helgar - en svo er að sjálfsögðu ekki þar sem allir eru í prófum. Þannig að í raun er mun leiðinlegra að vera ekki í prófum en að vera í prófum.

En helgin var fín því allir vinir mínir ákváðu að klára prófin og voru klárir í að hitta mig. Það endaði náttla bara með standandi veisluhöldum alla helgina. Jamms - þetta var fjör

Næst: flísar og borðplötur!!