27.6.02
Hið fræga veiðifélag Kolbeinn mun leggja land undir fót nú um helgina og reyna að saxa eitthvað á silunginn í Soginu (e. the Suck). Þar sem ég er í hinu alræmda veiðifélagi bíður mín nokkuð spennandi helgi á Sogsbökkum (e. Banks of river Suck).
Ég hef að vísu ekki farið í veiðiferð síðasta áratug eða svo og man ekki gjörla hvurnig þær fara fram. Hef ég þó heyrt marga tala um "veiði"ferðir og fylgir þá jafnan glott eða augnlokablikk eða álíka merki um grín og glens. Engu að síður verður veiðistöngin með í för því ég geri ráð fyrir að við berjum eitthvað vatnið og bleytum í færi.
Tilgangur þessara skrifa minna um veiðiferðir er mér glataður en sjálfsagt hafa átt að koma spaklegar vangaveltur um þetta fyrirbæri. En máski það hafi ekki verið svo merkilegt fyrst það hvarf svo léttilega úr minni mínu.
Ég verð því bara að láta þennan misheppnaða þankagang duga og lofa í staðinn að koma heim með svo sem eina veiðisögu í farteskinu (og kannski 10 punda silungsgrey)
25.6.02
24.6.02
Það er einkennilegt að lesa margt það sem fólk á hægri kanti stjórnmálanna skrifar. Oft virðast orð þeirra sett niður af vanþekkingu og hugsunarleysi.
Til dæmis var skrítið að lesa það á Vefþjóðviljanum síðasta fimmtudag að aðdáun á Ernesto "Che" Guevara væri álíka geðfelld og aðdáun á Hitler og Göbbels eða Lenín og Stalín. Þessi orð litast af einsýni og hræðsluáróðri kalda stríðins, uppáhalds tíma hægrimanna. Nafnlaus og félagar á Vefþjóðviljanum halda greinilega enn í þá skoðun að sósíalismi sé illur og að menn verði að berjast gegn honum með kjafti og klóm, áróðri og vitleysu.
Che Guevara starfaði í nafni frelsis (svipað fyrirbæri og Vefþjóðviljamönnum er svo tíðrætt um). Hann stríddi gegn einræðisstjórn Bastista á Kúbu og vildi losa íbúa Kúbu undan alræði hans. Liðið á Vefþjóðviljanum heldur, líkt og svo margir aðrir, að Che hafi ekki verið neitt annað en blóðþyrstur fjöldamorðingi. Það getur þó tæplega talist rétt lýsing. Hins vegar er Che Guevara alls ekki alsaklaus því rétt eins og margir aðrir hermenn varð hann nokkrum mönnum að bana.
En Che var ekki fjöldamorðingi. Hann var pólitískur skæruliði. Hann var byltingarleiðtogi. Hann var læknir. Hann var stjórnmálamaður. Hann var hugsjónamaður. Aldrei nokkurn tímann verður réttilega borið á Che Guevara að hann hafi staðið fyrir álíka hörmungum og Adolf Hitler eða Jósef Stalín. Slíkt er fásinna og eingöngu gert í því skyni að ýta undir missagnir, blekkingar og hræðsluáróður um kommúnisma og helstu forvígismenn hans.
Talandi um kommúnisma. Það er líka skrítið að sjá formann Heimdalls ganga um götur með skilti í hönd sem á stendur: Communism kills. Björgvin hlýtur að vita að kommúnismi drepur ekki heldur illmennin sem nýta sér fallega hugsjón til kúgunar. Svona líkt og krossfararnir sem drápu í nafni Kristni. Ég reyndar efast um að Björgvin Guðmundsson viti mikið um hvað kommúnismi snýst enda hljóma orð hans sem endurómur af skítkasti kalda stríðsins.
Ég get verið sammála Bjögvini að líklega gangi kommúnismi ekki upp í verki - ekki frekar en frjálshyggja. En ég tek seint undir það að kommúnisminn sem hugmyndafræði drepi fólk. Slíku er annaðhvort haldið fram af fáfræði eða hugsunarleysi.
Kristni er uppfull af fallegum boðskap um náungakærleik, frelsi og jöfnuð. Engu að síður hefur kristnin verið notuð sem kúgunartæki víðast hvar á vesturlöndum og milljónir manns hafa látið lífið í nafni kristinnar trúar. Kristnir menn hafa ofsótt samfélög annarrar trúar og styrjaldirnar sem háðar hafa verið til að útbreiða kristni skipta hundruðum. Þeir eru þó fáir sem ganga um götur og halda því fram að kristnin drepi.
Kristni og kommúnismi eiga það sameiginlegt að vera falleg hugmyndafræði sem gengur ekki upp í verki, útópísk hugmyndafræði sem erfitt er að heimfæra upp á mannlegt samfélag - líkt og á við um frjálshyggjuna. Þess vegna er líka rangt að halda því fram að kapítalismi hafi sigrað kommúnismann. Kommúnisminn einfaldlega féll um sjálfan sig - kapítalisminn kom þar hvergi nálægt. Það sést líka nú í fyrrum ríkjum kommúnismans þar sem kapítalisminn hefur rutt sér til rúms að ekki tók betra við. Þar logar allt í fátækt og glæpum. Margir hugsa með söknuði til öryggisnetsins í annars tregu kerfi kommúnismans.
En kommúnisminn drepur ekki. Það gera illvirkjar og misindismenn. Það gera illmenni sem nýta sér galla kommúnismans og beita honum sem þvingunartæki gegn þjóðum sínum. En slíkir menn eru ekki kommúnistar enda eiga mannréttindabrot, fjöldamorð og stríðglæpi ekkert skylt við hugsjónir og hugmyndafræði kommúnismans.
Það er ánægjulegt að sjá fólk hópast saman til að mómæla mannréttindabrotum. Ekki svo að skilja að það sé gleðiefni að fólk finni sig knúið til að ganga um götur til að mótmæla grimmd heimsins heldur að fólk skuli láta í sér heyra þegar því finnst á rétti sínum og annarra brotið. Þess vegna hlýnaði mér um hjartaræturnar þegar hundruð, ef ekki þúsundir manna tóku sig saman og mótmæltu þegar forseti Kína kom hingað til lands á dögunum. Þar í hópnum voru Björgvin Guðmundsson og kompaní í Heimdalli. Ég er viss um að BG og félögum sé umhugað að skera upp herör gegn mannréttindabrotum víða um heim, líkt og mér. En svo virðist sem það sé ekki alveg sama hverjir það eru sem fremja mannréttindabrot. Þannig hafa þessir sömu aðilar í Heimdalli þagað þunnu hljóði þegar vestræn ríki fremja mannréttindabrot. Heimdellingar beinlínis fögnuðu því þegar hingað komu ýmsir glæpamenn á vegum NATO. Björgvin Guðmundson og co. hafa ekki tjáð sig mikið um mannréttindabrot sem Ísraelar, "góðvinir" Íslendinga, fremja. En þegar hingað kemur kommúnistaleiðtogi frá Kína, þá skal sko mótmælt sem aldrei fyrr.
Hræsni? Ég skal ekki segja.
Þetta er nú undarleg Heimsmeistarakeppni. Samt nokkuð stuð að sjá svona sviptingar á toppnum. Það væri nú líka fjör ef Suður-Kórea ynni Þýskaland. Við vonum það --- þó að spáin standi - Brasilía- Þýskaland í úrslitum.
Helgar eru til margt nytsamlegar. Þessi helgi fór tam í hellulögn (eða hellulangningu (eða hellnalögn)). Fyrir utan enn eitt matarboðið á Hallveigarstígnum, tvö stykki útskriftarveislur og formúlubrunch.
En helluvinna er bara nokkuð skemmtileg þrátt fyrir að bakið mitt muni seint bíða þess bætur.