Tilveran linkar á þetta í dag. Við fyrstu sýn virðast hér vera fleiri þúsund brjóst á ferð. En ef vel að gáð kemur í ljóst að einungis er um 154 brjóstapör að ræða. Hitt er greinilega bara copy-paste... jamm - mér finnst ég örlítið klárari núna. Það er sennilega bara vitleysa.
Reit Fjalsi klukkan 15:31
Þetta er búinn að vera vondur dagur. Að fara fótgangandi á innrömmunarstofur til að láta skera í karton er ekki gaman, sérstaklega í kjörveðri Reykjavíkur, roki og rigningu. Ef ekki hefði verið fyrir Pétur Maack hefði dagurinn vel geta orðið enn verri. Einnig gladdi hjartað að lesa að síðan mín er með þeim skemmtilegri sem Dagný les. Kannski hún lesi þá almennt svona vondar síður. Ég leyfi mér þó að halda annað.
Eins og alþjóð veit er Mummi að hefja nám í sagnfæði í Minnasóti í Bandaríkjunum. Síðan hann fór út hafa menn getað fylgst með upplifun hans þar ytra og verður að segjast að myndin af því er nokkuð glögg.
Mummi virðist hafa farið að ráðum mínum og keypt sér Heineken, sem einmitt er dýrari en flestur bjór í Bandaríkjunum, enda einn af fáum innfluttum. Ég segi: You go girl!
Það verður spennandi að sjá Mumma þegar hann kemur heim í jólafríinu. Eftir sex daga hefur hann sagt frá ferðum á Burger king, McDonalds, Papa John's pizza (þessir þrír á einum sólarhring!!), einhvern bagel skyndibitastað, aftur bagel, Steak&Knife og Chipotle.
Mun Mummi rúlla niður landganginn á Leifsstöð í desember? Mun hann jafnvel get slept því að taka flugvél og nýtt sjálfan sig sem mannlegan loftbelg?
En Mummi er skynsamur drengur enda gerir hann sér þegar "medvitadur um ohjakvaimlega thyngdaraukningu" sína.
Heyrðu - ég bið bara að heilsa þér Mummi minn!
Reit Fjalsi klukkan 14:33
27.8.02
Í dag er góður dagur - enda ekki lengur mánudagur
Í dag varð ég aðstoðarmaður Magnúsar Snædal dósents í málvísinum. Ég mun þetta misserið aðstoða hann með kúrsinn Inngangur að málvísindum I. Þar mun ég meðal annars þurfa að fræða nemendur um hljóðeðlisfræði. Úpps - best að fara að finna út hver fjárinn það er.
Í dag snæddi ég hádegismat með Jóni K.F. Geirssyni prófessor á hans kostnað.
Í dag reit ég grein á Selluna í fyrsta skipti í langan tíma.
Í dag mun ég ljúka við annan skammt af próförkum Íslenskrar Orðabókar.
Í dag uppgötvaði ég að Siv Friðleifsdóttir er með vefdagbók. Þar má finna myndir af ráðfrúnni huggulegu. Mér finnst þessi best.
Jamm - í dag er góður dagur - og honum er ekki lokið enn!
Reit Fjalsi klukkan 16:55
26.8.02
Helgin - var góð. Var fillerí? Já, og það báða dagana. Var gaman? Já, og meir en það. Á laugardaginn kvaddi Kolbeinn Bjarka. Hann er þó enn ekki farinn. Um leið var haldið útgáfupartý.
Reit Fjalsi klukkan 13:22
Mummi hefur náð sambandi við umheiminn um helgina. Nú bloggar hann um lífið í Minnasóti. Kannski ég hitti hann á MSN einhvern daginn. Kannski ekki.
Reit Fjalsi klukkan 13:19
Mánudagur! Þoli ég mánudaga? Varla. Ætíð finnst mér veðrið hið sama þegar ég horfi út um gluggann í vinnunni. Rok und rigning. Nóatúnsfánarnir þrír blakta sem þeir vilji fljúga af stöngunum og bílarnir aka í hringi frussandi vatni yfir hringtorgið og á tuttugumínútna fresti má sjá tvistinn æða í átt til og frá Granda. Ömurlegt? Ekki svo. Mánudagur? Já!
Reit Fjalsi klukkan 12:58
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík