4.10.02

Svarfaðardalur er án efa fallegasti dalur jarðar. Þar í laufbrekkum lækirnir hjala. Mér er kliður sá kær ég vil koma honum nær. Hann er öndvegi íslenskra dala. Norðurslóð flytur fregnir úr Svarfaðardal

3.10.02

Ég vona nú að Ármann sé ekkert að verða alvarlega veikur!

1.10.02

Að taka strætó getur verð góð skemmtun. Að bíða eftir strætó er hins vegar hundleiðinlegt. Sérstaklega þegar maður er lengur að bíða eftir strætó en að ferðast með honum. Jamm strætókerfið í Reykjavík og nágrenni er ömurlegt. Svo voru menn ekkert að segja mér að 112 væri hættur að keyra fram hjá kringlunni. O, seiseinei! Maður er lengur að ferðasta með strætó upp í kringlu en á milli Utrecht og Amsterdam með lest, og eru það þó 30 km. Jamm - þetta er skítt.

En sem sagt ég beið í roki og rigningu eftir strætó sem aldrei kom heldur einhver allt annar strætó sem birtist eftir að ég var búinn að bíða í 25 mínútur, sem hlýtur að þýða að sá vagn hafi verið amk 5 mínútum of seinn.

Hvað er líka með unglingsstelpur í dag sem ferðast með strætó. Þær líta flesta út eins og portkonur. Svo eru þær líka svo illa klæddar í þessu veðri... eitthvað að klikka þarna.
Í dag á María Mjöll afmæli. Fær hún af því tilefni sérstaka afmæliskveðju!