5.12.02

Haukur segir að Bráðavaktin sé að breytast í sápuóperu. Það er ekki rétt. Bráðavaktin ER og hefur alltaf verið sápuópera. Amk út frá mínum skilningi á hugtakinu sápuópera. Að vísu skylst mér að hugtakið sápuópera sé runnið frá sjónvarpsþáttum sem sponsoraðir voru af sápuframleiðendum. Í þeim skilningi er Bráðavaktin ekki sápuópera (er hún ekki sponsoruð af Lífís hér á landi?). Í dag er þó oftast átt við ákveðna tegund sjónvarpsefnis þegar talað er um sápuóperu og ég tel að Bráðavaktin hafi alltaf fallið undir þá skilgreiningu. Ég get ekki séð að persónur þáttanna eigi við einhver aukin eða flóknari vandamál að stríða í dag en þær áttu í upphafi. Í allra fyrsta þættinum var t.d. Hathaway hjúkku ekið inn á bráðavaktina eftir sjálfsmorðstilraun. Ef minni mitt brestur ekki gerði hún þá sjálfsmorðstilraun eftir að Doug Ross læknir sagði henni upp. Stórt persónulegt vandamál! Síðan þá hafa vandamál allra persóna verið rækilega kynnt áhorfendum. Það er ekkert nýtt að vandamálin komi við sögu og bara alls ekki slæmt. Það væri nú nokkuð þreytandi til lengdar að horfa bara á endalausar aðgerðir á sjúklingum en fá ekkert að kynnast persónulegu lifi aðalhetjanna. Það væri líka leiðinlegt til lengdar að horfa á þætti um normal starfsfólk sjúkrahúss. Þæ gæti maður alveg ein hangið uppá Landsspítala 45 mínútu í hverri viku og fylgst með liðinu þar.

Þessvegna höfum við sjálfsmorðshjúkkuna, flagarabarnalækninn, sætubarnalækninn, lesbíulækninn, aidslæknaaðstoðarmanninn, sætafíklalækninn, alkahjúkkuna, dópkrakkapabbalækninn, enskaskurðlæknagelluna, ruddastarfsmannastjóralækninn, myrtalæknanemann o.sfrv.

Bráðavaktin er sápuópera - líklega besta sápuópera í heimi!
Válaheiði er víst ekki til. Ég hefði svo geta svarið... Válaðsheiði gæti verið til, hún finnst þó ekki. Verðlaun í boði fyrir þann sem finnur merkinguna á Válaðsheiði.

1. Verðlaun: Mímir, 46. 37. árg. 1998 með árituðum starfsannál.
2. Verðlaun: Sony mínídiskur, tómur, 74 mínútna.
Manpanties - jamm kannski!

Að dreyma óánægju sína yfir verkfalli starfsmanna franska lestakerfisins, Berlín, Rannís og Icelandair veit varla á annað en gott. Sér í lagi ef maður týnir kærustunni sinni í sama draumi. Hvað það þýðir veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá, nema kannski fyrir spákonu (5622560).

Að dreyma afturbeygt fornafn er kannski vottur um geðröskun, eða geðbrigði. Er þá geðbrigði eitthvað annað en geðheilbrigði. Kannski er geðheilbrigði ein tegund geðbrigða. Þá væri til dæmis geðtilbrigði önnur tegund.

Afhverju var merkíngafræðikúrsinn lagður niður? Hefði hann veitt mér svör við spurningunum að ofan. Kemur maðurinn að ofan frá sama ofan og spurningarnar að ofan. Hversvegna er verra að segja erfiðleiki en erfiðleikar. Það er til frumleiki, eru til frumleikar. Eiga erfiðleikar e-ð skylt við fimleika. En hringleika?
Ernu vill það svo til happs að ég tók upp Bráðavaktarþátt gærkvöldsins. Ef hún á leið framhjá einhvern daginn gæti hún jafnvel fengið lánaða spóluna. Það er eins komið fyrir mér og Ernu að ég hefi varla misst af þætti síðustu sjö árin. Geðveiki, það veit ég ekki. Hins vegar eru þættirnir um bráðavaktina geðveikir!

4.12.02

Var Haukur að borða ostinn Mascarpone eða hvað? Var það kannski macaroni? Ég skildi ekki lýsinguna hjá honum. En hvað um það, verði honum að góðu!
Er ég pólitískt eyland? Hvað andskotans NATO-bull er að heyra frá Samfylkingunni. Andskotans vitleysa. Mér er skapi næst að snúa baki við þessu rugli. Og hvað á maður þá að gera? VG alltof mikið komma og græningjabull til að mark sé takandi á og Sjálfstæðisflokkurinn uppfullur af kapítalista svínum. Framsóknarflokkurinn, tja, hvað getur maður sagt!? Ja, fussumsvei. Kannski ég hætti bara að skipta mér að pólitík og gerist munkur upp á Válaheiði.

Hvað um það. RANNÍS bullið bíður. Má engan tíma missa!

Hvar er Válaheiði?

3.12.02

Haukur birtir skemmtilega hugleiðingu á Sellunni í dag. Ég held merkilegt nokk að flestir séu sammála þessum orðum hans. Engu síður taka allir þátt í þessari geðveiki á endanum og ég býst við því að maður sjálfur standi sig að verki á miðjum laugaveginum 23. des. með vísakortið á lofti og annars tómt seðlaveski. Annars hefi ég nú hingað til ekki tekið þátt í þessu stressi, enda ungur og barnlaus og þarf ekki að kvíða því að valda fjölskyldunni vonbrigðum með lásí jólum.

En nú er kominn desember og aðventan hafin og vissulega komst ég í ágætist jólaskap á Laugaveginum í gær þar sem ég arkaði heim úr Bónus undir fagurskreyttum jólatrjám sem límd hafa verið á húsveggi. Það var ekki laust við að nokkur hóhóhó heyrðust í fjarska. Þvi jólin geta verið ágætis tími ef maður asnast ekki til að láta markaðsöflin eyðileggja þau fyrir manni. Því hef ég ákveðið að njóta jólanna þetta árið og hætta að þusa yfir geðveikinni sem heltekur samfélagið. Ef fólk vill taka þátt í þessu rugli þá getur það gert það mín vegna. Ég ætla að vera í góðu jólaskapi í desember, láta gott af mér leiða, heiðra náungann og njóta lífsins.

Ég held barasta að það séum við trúleysingjarnir sem höldum þrátt fyrir allt á lofti hinum sanna jólaanda! Hversu öfugsnúið sem það er nú!

2.12.02

Maggamaggamagga

Hún mælir með gap.com þegar velja skal barnaföt. Vel má vera að Bilið/Gatið/Eyðan/Gloppan/Hyldýpið selji falleg föt og ódýr. En þau eru ötuð blóði og svita verkafólks í Lesotho, El Salvador, Indónesíu, Kambódíu, Mexíkó, Bangladesh og víðar. Hér er á ferð kapítalsiminn á ferð í sinni svörtustu mynd.

Magga og aðrir geta kynnt sér málið hér og hér og hér.

En spurningin er: Afhverju var Magga að kaupa barnaföt???