Arab Strap í græjunum. Og ég nenni ekki að vinna. Ég held að það sé bein tenging þarna á milli. Arab Strap stendur ekki beinlínis í örvandi tónlistargerð. En engu að síður frábærri. Jamm, ég ætla einmitt að sjá þá á sviði í BARCELONA!!!
Annars vaskaði ég upp í gær. Það er svo sem skömm að því að nota frídag og baráttudag verkafólks til að standa í slíkum stórræðum. En ég kláraði uppvaskið og skellti mér svo í kröfugöngu. Mín krafa: uppþvottavélar eru mannréttindi!
Jamm. Einu sinni átti ég uppþvottavél. Þá var tilveran dásamleg. Núna? Tja tilveran er ekki jafn dásamleg.
Hún er samt þolanleg.
Reit Fjalsi klukkan 18:58
Jamm. Ég heyrði í gær að Dagný væri orðin dáldið sár yfir litlum stuðningi okkar vina hennar. Jamm.... Dagný er alveg frábær manneskja en því miður get ég alls ekki sagt það sama um flokkin hennar... hvað þá megnið af flokkssystkinum hennar.... bara því miður... en á meðan þetta er allt í gangi þá get ég svo sem sleppt því að tala illa um flokkinn hennar... segi samt þetta: NIÐUR MEÐ FOKKÍNG RÍKISSTJÓRNINA!!!!!
Reit Fjalsi klukkan 18:42
Við strákarnir ætlum nú bara ad vera heima hjá mér! Rauðvín og pasta.... svo líklega rólegheit... jamm
Reit Fjalsi klukkan 18:12
Maack ætti að fara að vitja appelsín lítrans (eða lítersins) hálfa áður en ég drekk hann hér í bongó blíðunni á Hugvísindastofnun...
Annars vildi ég nú bara óska ykkur öllum til hamingju með daginn. Jamm 1. maí er einn af mínum uppáhalds dögum. Og líklega Siggu Maju líka. Jamm... og já. Lifi byltingin!
Reit Fjalsi klukkan 18:04
Jamm... það er sérlega ánægjulegt að Dagný skuli hafa svona mikinn áhuga á slátrun. Það verður líka sérlega ánægjulegt hjá henni að fylgjast með síðustu sekúndum í lífi sauðfésins næsta haust. Hún mun hins vega ábyggilega bíða eftir að lömbin þagni í framhaldinu. Verði henni að góðu segi ég!!!
Reit Fjalsi klukkan 18:03
30.4.03
Jájá... en auðvitað er Samfó ekkert að fara í ríkisstjórn með Sjallanum. Við ætlum að mynda vinstristjórn með eina "alvöru vinstriflokknum". Það hef ég alltaf sagt... and mark my words krakkar mínir!
Og haldiði síðan kjafti!
Reit Fjalsi klukkan 16:32
Hún er svolítið skemmtileg taktíkinn hjá Grænum vinstrimönnum að tala um að nánast öruggt sé að Samfó ætli í ríkissstjórnarsamstarf við Sjallana. Jamm.. auðvitað segja þeir það svo að allt "alvöru vinstrafólkið" kjósi nú örugglega "alvöru vinstriflokkinn".
Reit Fjalsi klukkan 16:28
Auðvitað á Björn ekkert að vera að kjósa Sjálfstæðisflokkinn. Það er bara della. X-D fyrir Della!
Reit Fjalsi klukkan 14:34
Maður hlýtur að óska Finnsa Pé til lukku m/árangurinn: Og jú: Til lukku!
Reit Fjalsi klukkan 14:04
Helvítis veður. Helvítis helvíti.
Á morgun skín maísól! Vona ég..
Reit Fjalsi klukkan 13:57
29.4.03
Jájá, Vedderinn kom með nýja White Stripes diskinn í vinnuna. Hann rúllar á fullu og hvílík fegurð! Maður hlakkar til að sjá þá Á SVIÐI Í BARCELONA!!!!! Jamm - und já!
Svo var ég að fá póst frá Bjarka. Jú, hann og hans Hildur ætla að hýsa mig í Köben. Jamm. Það verður stutt stanz... en ábyggilega gama... svo þekkir maður nú líka ýmsa fleiri í Köben..
Átakið ::NÝTT LÍF:: hófst í dag. Við Gulli, nýi sambýlismaðurinn, byrjuðum daginn á sundferð.
Hvar var annars að tala um kuldakast næstu dag. Hér sit ég á stuttbuxum og ermalausum bol og svitna. Samt með nýju RollingStones derhúfuna á hausnum.
Jamm... ég er flottur ( :) )
Reit Fjalsi klukkan 12:12
28.4.03
Minn var aðeins að fikta í Quick Time... kannski ég fari bara að snúa mér að kvikmyndagerð!!
Reit Fjalsi klukkan 22:22
Haldiði að Gullinn minn sé bara ekki farinn að blogga!
Reit Fjalsi klukkan 21:44
Hér er allt að verða vitlaust (í vinnunni sko) Belle and Sebastian á fullu (og Viða syngur með eins og engill), áðan fékk White Stripes sinn tíma á sviðinu og næst er það Arab Strap. Jamm... sannkölluð tónlistarveisla! Og hvað er í gangi... jú minn að hita upp fyrir Primavera Sound Festival í Barcelona.... Jessssssssssssssssssssssssssssssssssssssss
Reit Fjalsi klukkan 17:48
Djöfulsins drasl er þetta LÍN..................................................................
argargarg............................................................................................
Reit Fjalsi klukkan 13:51
Mættur aftur til vinnu! Hér er ég bara alltaf... enda svo sem nóg að gera... Teenage Fanclub rúllar... jamm þettar er allt frekar gott...
Ég sé að ég fór greinlega í ranga fylkingu á sínum tíma. Hefði ég verið með Vöku ætti ég líklega góðan sjéns á að vera bankastjóri... amk... samkvæmt því sem kemur fram á baksíðunni á Mogganum í gær. Þá væri líka kannski sjans að ég ætti enn heima á Hallveigarstíg... hehe... or is it???
Reit Fjalsi klukkan 10:06
Jamm. Stina Nordenstam er líka kúl. Það vill svo skemmtilega til að hún kemur beint á eftir Starsailor á playlistanum hjá mér. Skyldi það vera vegna þess að hann skiptir flytjendum eftir stafrófsröð? Tja, ég skal ekki segja. Engu að síður. Klukkan er orðin margt. Og ég er enn ekki farinn í háttinn, svo er ég líka orðin nokkuð svangur. En ekkert til að borða heim. Ekkert til svo sem í vinnunni heldur. Og hvað er ég þá að hanga þar? Tja, skyldi það vera vegna þess að ég nenni ekki heim?
Hmmmm, það skyldi þó aldrei vera?
Engu að síður. Stina fær að rúlla í smá stund í viðbót.
Reit Fjalsi klukkan 03:19
Starsailor
Djöfulsins snilld....
Hánótt og loksins vinnufriður í vinnunni. Og Starsailor nokkuð stanslaust í græjunum.
Jamm þetta er frábært... það er amk ekkert leyndarmál
Reit Fjalsi klukkan 02:44
27.4.03
Í gær hitti ég Þorbjörgu frænku mína á djamminu... hún var full... hún spurði mig hvort mig vantaði konu til að fara heim með... hún benti mér á karlmannsþurfi vinkonu sína...
...ég afþakkaði boðið pent.... en þorbjörg frænka mín... hún rokkar !
jamm
Reit Fjalsi klukkan 18:44
Talandi um Gulla bein! Hann var nú fyrstur til að kommenta í nýja kerfinu hjá mér!!!! Hann fær því bókina.... þegar hann flytur inn til mín.... sem verður kannski á næstu dögum..... jamm ... og já!
Reit Fjalsi klukkan 18:27
Tjassko!
Merkilegur er þessi heimur... hér sit ég ásamt honum frænda mínum, Gulla, Beini... og okkur dreymdi sama drauminn í nótt!!! Hmmmm
Tóta frænka og Þorri þokkalegi voru komin heim... svona surprise... ég var að vísu frekar pirraður í mínum draumi, vegna þess að ég var nýbúinn að kaupa miða til að fara til þeirra í heimsókn... ég held samt að Gulli hafi verið frekar ánægður í sínum draumi.... en það skiptir kannski ekki máli
það merkilega er.... OKKUR DREYMDI SAMA DRAUMINN... SÖMU NÓTTINA.... og sváfum ekki einu sinni saman.... (enda væri það nú frekar skrýtið!!!)
hmmmmmmmmmmmmmm
Reit Fjalsi klukkan 18:23
Halló! Í samræmi við áskorun Maacks var tekin ákvörðun um kommentakerfið...
Því hefur nú verið komið upp..... fyrsti kommenterarinn fær verðlaun: Salka Valka eftir Halldór Laxness í kilju....
jamm og já!
Reit Fjalsi klukkan 16:46
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík