1. Ég vil byjar á að óska Mumma til hamingju með linkinn frá Dr. Gunna. Hann hlýtur að vera í skýjunum (þ.e. Mummi altént). Einnig vil ég þakka Mumma fyrir síðast (hvenær hann var einmitt tímabundinn Heimdellingur (og þá meina ég ekki Heimdellingur sem er svo bissí heldur Heimdellingur í stuttan tíma)).
2. Ég vil einnig þakka Tilverunni fyrir linkinn yfir á mig. En einmitt vegna þessa links hefur síðan mín verið ósnýnileg í tvær klst. nokkrum sinnum á dag. Kannski að ég hefði átt að versla meiri bandvídd?!. En hvað um það. Teljarinn hefur amk rokið upp um svo sem 1000 síðasta hálfa sólarhringinnn.
3. Svo vil ég lýsa ánægju minni með stórmyndina ALI hverja ég sá á myndbandi í gær. Ansihreint mögnuð ræma. Svo er Will Smith líklega ekki bara "rappari".
4. Að endingu: Heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins:
Eitt sinn voru api og gíraffi að tala saman.
Apinn: Afhverju ertu með svona langan háls?
Gíraffinn: Ég er ekkert með stóran haus!
Reit Fjalsi klukkan 11:33
15.8.02
að bera olíu á borðplötu getur verið mikið gaman - einnig er ekki ónýtt að lakka gólf. Svo má jafnvel leggja hellur. Annars var ég að spá að fara að saga tré nágrannanna. En kannski það eigi bara eftir að valda illdeilum. Hvað um það... afmæli Möggu og Finns á næsta leyti - mér skilst að maður eigi vona á konfekti. Verst að ég man bara ekki hvert í fjandanum þau ákváðu að flytja veisluna og búinn að tæma pósthólfið. Jæja... hvað um það... eða eins og Finnur myndi orða það: Rassgat!
Reit Fjalsi klukkan 14:38
Jamm - setti inn myndir úr fossasiginu. Þetta lítur mun flottar úr frá þessum sjónarhornum. Enda sá maður lítið í sjálfum fossinum. En mæli með fossasigi við hvern sem er!
Reit Fjalsi klukkan 14:28
14.8.02
Heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins: 2
Hvað kallar maður flugu sem hefur enga vængi?
Labba
(Í boði Gulla)
Reit Fjalsi klukkan 12:59
Gulli fékk sum sé að skrifa fyrsta blogg dagsins... svo var hann rokinn með það sama.
En
Heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins:
Hvenær drepur maður mann?
Þegar klukkan er tvö!
Reit Fjalsi klukkan 12:59
halló Hjörtur. Ég heit Gulli og ég er besti vinur þinn
Reit Fjalsi klukkan 12:57
13.8.02
Og svo:
Heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins:
Hvernig eru kýr á litinn?
hmmmmmm...
Reit Fjalsi klukkan 09:18
ég hef svo sem bara eitt að segja: fossasig er frábært... hmmm - jamm
Reit Fjalsi klukkan 09:17
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík