Hafa tölur liti? Mér finnst og Hulla finnst það. En okkur finnst ekki sömu tölurnar hafa sömu liti. Mér finnst 5 vera rauð tala, mig minni að Hulla finnst 5 vera brún tala. 4 er í mínu huga blár og 2 er grænn. Einn er svartur og þrír er gulur.
Þetta er dulítið magnað... en samt ekki ótrúlegt...
jassgo
Reit Fjalsi klukkan 09:59
Gaman er að drekka appelsín uppi í sófa. Þá getur verið gaman að stinga lakkrísröri í flöskuna og súpa. Gaman er að sitja í sófa og lesa blaðið og fylgjast með öðru auga með ömurlegum lögguþætti í sjónvarpinu. Gaman er að liggja í sófa undir teppi og leggja aftur augun. Í smá stund, þó maður sofni ekki, heldur liggi í móki, sælumóki.
Reit Fjalsi klukkan 09:53
17.7.03
Í dag er ekki stóri baðdagurinn. Hins vegar er klippidagurinn mikli í dag. Því í dag fer ég í klippingu. Einu sinni þoldi ég ekki að fara í klippingu. Sagði ég sem svo: Hversvegna að fara til klippara þegar maður getur klippt sig sjálfur? Þess vegna klippti ég míns eigins hár í mörg ár. Kom það yfirleitt bara vel út. Ef ekki þá skellti ég bara rakvélinni á skallann og gekk um með hann snoðaðan. Þannig tel ég mig hafa sparað mörg þúsund króna.
En nú er árið annað. Mér finnst ofsa gaman að fara til klippara og fer á eina dýrustu klippibúlluna í landinu og fæ espresso með og fletti magasínum og ræði lífsmálin við klipparann minn. Svo fer ég út, ofsa töff um hausinn og ánægður og sæll með lífið. Og svo fer ég í spútnikk og kaupi mér flotta boli og skoða skó í búðargluggum og finnst allt svo frábært og kúl enda sjálfur svo hipp og kúl
Jess beibí, I'm a material girl in a material world.......
Reit Fjalsi klukkan 09:56
16.7.03
Á dögum eins og í dag á að gefa Íslendingum frí. Enginn á að vinna á svona degi sem kannski kemur einu sinni á ári. Þá á að opna íssölurnar þar sem að sjálfsögðu verður sjálfsafgreiðsla, opna sundlaugarnar og húsdýragarðinn fyrir öllum. Á svona dögum á að halda 17. júní og 1. maí og sumardaginn fyrsta. Á svona dögum eiga allir að vera í góðu skapi, enda allir í fríi að synda eða í sólbaði eða að slá garðinn hjá sér eða að byggja kofa. Þá er nú gaman að vera til.
Reit Fjalsi klukkan 13:19
Einhvern tíma ætla ég að búa í sveitinni ásamt ástinni minni og tína sóleyjar af túnum og mála myndir í skýin. Sigla út í hólmann og grilla og telja fuglana og veiða í ánni. Stelpan verður berfætt í grasinu og byggir lítinn kofa fyrir okkur að kúra inni í. Á haustin tínum við bláber og sultum og bruggum og súpum og söftum og á veturna liggjum við undir teppi og sötrum bláberjarauðvín og spilum og hlustum á fuglana í trjánum eða bara Johnny Cash í útvarpinu. Svo koma jólin, blessuð jólin og þá prjóna ég ullarteppi sem við vefjum okkur inn í, stelpan og ég.
Góður draumur maður......
Reit Fjalsi klukkan 10:58
Þegar ég var lítið barn keypti hún mamma mín malt handa mér þegar ég var veikur. Oft kom hún kannski með eina malt og spitermanblað eða tarzanblað. Þá fékk maður að liggja veikur uppi í rúmi og drekka malt og lesa myndasögur. Þetta voru góðir tímar, svona í minningunni, þegar maður var veikt barn. Nú þegar maður verður veikur er enginn til að gefa manni malt. En stundum laumast maður út í sjoppu og kaupir handa sér sjálfum. Svo fer maður aftur heim og sötrar malt og minnist tarzanblaðanna sinna sem eru í geymslu heima hjá mömmu.
Reit Fjalsi klukkan 10:49
15.7.03
Ég fer sjaldan í kirkju. Ég held að helsta erindi mitt í kirkju undanfarin ár hafi verið jarðarfarir. Jú, einhver brúðkaup eru það líka. En í hefðbundna messu fer ég aldrei, eða því sem næst. Það er synd að maður skuli ekki fara oftar í kirkju. Tja, ég veit svo sem ekki hvort að það sé beinlínis synd. Hvort það standi skrifað einhversstaðar: Þú skalt fara í kirkju, annars skaltu syndugur maður vera! Eða eitthvað svoleiðis. En engu að síður er það leiðinlegt að maður skuli ekki fara oftar í kirkju. Það er að vísu ekkert leiðinlegt, enda á ég ekkert erindi í kirkju, nema einmitt til að fylgja ættingjum síðasta spölinn eða til að samfagna vinum og vandamönnum við guðlega fullkomnun sambands þeirra. Ekki fer ég í kirkju til að leita trúarlegrar fróunar eða upplifa guðsandann í hjartanu. Þannig að ég er í raun dauðfeginn að þurfa ekki að asnast þetta oftar í kirkju en raun er.
Reit Fjalsi klukkan 10:48
14.7.03
Þessi færsla átti að fjalla um bjór. Þessvegna fær hún titilinn 'bjór'. En svo nenni ég ekki að vera að skrifa eitthvað ómerkilegt um bjór. Þó svo að bjór sé merkilegt fyrirbæri.
Ég dansa ekki. Eða öllu heldur: Ég dansaði ekki. En núna dansa ég. Mér finnst gaman að fara á bar að dansa. Hins vegar er skelfing að fara á dansstaði til að dansa. Þó eru þeir, eins og nafnið bendir til, hannaðir sérstaklega til að dansa. En nei. Ekki nenni ég að dansa á dansstöðum. Frekar vil ég dansa á litlum börum sem eru alls ekki hentugir til dans. Getur verið að mér þyki bara gaman að dansa þar sem ekki er beinlínis ætlast til að fólk dansi? Ekki dansa ég í vinnunni og ekki dansa ég í bankanum. Ekki í kirkju og ekki í Bónus. Jú, reyndar dansa ég stundum í Bónus. Um daginn fór ég í Bónus og tók tvö, jafnvel þrjú lítil dansspor. Ekki beinlínis af gleði heldur meira svona spenningi.
En núna dansa ég og um helgina dansaði ég býsn, sér í lagi á laugardag. Það var ó, svo gaman!
Reit Fjalsi klukkan 12:03
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík