Mummi (sem finnst ég of sinister) hefur ekki ritað stafkrók frá því á mánudag. Af því tilefni fær hann titilinn Aumingjabloggari. Máski hann hafi bara ekkert að segja eftir að leiktíðinni hjá Boston lauk. Nema að hann sé bara að tapa sé í flokkstjórninni. En tilboðið stendur enn - útilega um helgina og ekkert múður!
Reit Fjalsi klukkan 10:13
Jamm -- það virðist ætla að kólna í pottinum í sumar. Jess!
Reit Fjalsi klukkan 09:09
4.7.02
Sem sagt kominn júlí og T10-listinn uppfærður fyrir mánuðinn. Ekki miklar breytingar. Mariah Carey, Natalie Imbruglia og Gwen Stefani koma þó nýjar inn. Amm, þær eru sætar.
Reit Fjalsi klukkan 17:23
Djöfulsins bull. Einhver rudda íþróttakennari dæmdur í 5 mánaðafangelsi fyrir að misnota nemendur sína kynferðilega á meðan Árni Johnsen fær 15 mánuði fyrir að svindla á kerfinu. Dómurinn yfir Árna er svo sem réttmætur en það er fáránlegt að íþróttakennarinn fái þrisvar sinnum linari dóm fyrir mun viðbjóðslegri glæp.
Reit Fjalsi klukkan 15:50
Ætli sé ekki fyndið að vera svona bloggseleb eins og Katrín.
Ég held að Katz ætti í alvöru að fara að kötta krappið... annars var ég nú akkúrat áðan að spá hvað fróun lægi eiginlega í þessu bloggbulli ... ég meina annarhver maður virðist vera að bloggbulla og netið er fullt af einhverju kjaftæði... ætli ég fari ekki í hið minnsta að kötta krappið og einbeita mér að darílþing... eða ekkva hehe
Jamm - mér er bara farið að lítast vel á Hjözzi-útfærsluna. Þetta ber svona keim að því þegar Stebbi Hill tók upp nafnið Stephan Hilmarz, það var þegar hann söng með Millunum. Spurningin er þá hvort nota eigi Hjözzi frjálsi eða frjálzi eða jafnvel Hjözzi Free. Svo má fara örlítið aðrar leiðir og nota Hjözzi Freedom, jafnvel Hjözzi Liberty - eða ekki. Hjözzi Liberal væri nær sanni - en gengur varla nema að ég væri heimdellingur. En kannski er bara Hjössi frjálsi málið.
Reit Fjalsi klukkan 10:49
Fletti upp www.lemon-lyman.com síðan liggur niðri eins og er en þetta virðist þó ekkert eiga skylt við aðáendaklúbb Josh Lyman.
Reit Fjalsi klukkan 10:02
Westwing
Hið ómögulega gerðist - Bráðvaktin er smátt og smátt að falla í annað sæti yfir bestu þáttaraðir sem íslensk-amerískt sjónvarp hefur uppá að bjóða. Westwing hefur stimplað sig svo rækilega inn í litlu sjónvarpssálina mína að Eriq LaSalle og Anthony Edwards mega fara að vara sig á gömlum kempum eins og Martin Sheen og Rob Lowe.
Reit Fjalsi klukkan 09:59
Ha - er útilega í Þjórsárdal um helgina - ætlar Hjözzi Frjálzi að mæta með gítarinn --- verður frelsið í dalnum endurvakið?!? Jamms þannig er það nú bara!
Reit Fjalsi klukkan 09:46
3.7.02
Ef ég man rétt heitir bandið Omd - bresk eðalpoppsveit sem þótti nokkuð góð á níunda áratugnum. Sumum þykir hún meira að segja góð enn þann dag í dag. Þeir eru þó fáir. Ég efa þó ekki að Ármann fílar hana í ræmur.
Reit Fjalsi klukkan 16:23
Þessi frétt er skemmtileg. Samkvæmt frétt mbl.is af sama máli var þessi "sérstaka tækni" einhver vatnsbyssa sem þeir skutu á pakkann með. Hvernig skyldu kökurnar hafa verið eftir þá meðferð.
Það sem er samt undarlegast við þetta er að kalla þurfti til sprengjusérfræðinga Landhelgisgæslunnar til að kíkja á pakkann. Treystir bandaríski herinn sér ekki til að ganga úr skugga hvort um sprengju hafi verið að ræða. Hmm - pæling!
Reit Fjalsi klukkan 16:12
Mummi hefur ekki alveg verið að standa sig síðustu daga. Kannski hann hafi svona mikið að gera - kannski ekki. En á meðan hann skrifar ekki neitt nota ég tækifærið og dissa hann. Nú svo er líka spurning hvort að hann sé geim í útilegu um næstu helgi. Hmmmm hvað segur Mummsó um það??
Reit Fjalsi klukkan 14:00
Jassko - sá Katrínu úti á götu um daginn. Á djamminu "eða ekkva". Fannst soldið svalt að sjá svona seleb - en svo fannst mér það bara ekkert svalt - hah - skrýtið maður.
Reit Fjalsi klukkan 12:19
Achsooo!
Reit Fjalsi klukkan 10:13
2.7.02
Það sannaðist í Soginu að sögur af veiði eru alltaf ýktar. Samkvæmt "áreiðanlegum" heimildum átti meðlaþyngdin á veiddum fiskum í sumar að vera um 1,5 kg. Kjaftæði. Samkvæmt veiðibókum var meðalþyngdin greinilega um 0,5 kg. En hvað um það. Að sjálfsögðu landaði ég stærstu bleikjunni þetta sinni. Eldaði hana svo í gær og jumms, hún bragðaðist vel.
Annars var nú svo rólegt í veiðinni að á tímabili voru menn aðallega að spá í pólitík og náttúrunni. Svo fór náttúrulega svolítill tími í að tæma úr öllum þessum bjórdósum sem rötuðu með í ferðina.
Jamms, það er gaman að drepa dýr!
Reit Fjalsi klukkan 14:02
1.7.02
Pabbi minn búinn að koma upp heimasíðunni sinni. Eins og við var að búast er rauður nokkuð ráðandi litur hjá honum. En hvað um það... margt áhugavert að lesa á síðunni.
Reit Fjalsi klukkan 13:44
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík