22.3.02

Ég ætlaði á bretti í dag... jamm - týpískt - lokað akkúrat eina daginn sem ég hef tíma til að fara - það er náttúrulega fáránlegt að búa á landni sem kennt er við ís og komast ekki einu sinni á bretti um hávetur. Svo geta sumrin ekki drullast til að vera hlý. Jamm þetta er skítaland... en svo sem alveg ágætt svona inn á milli. Hvað um það kannski ég fari bara á bretti í Salt Lake City!!!
Talandi um strætó! Ég held að tvisturinn hafi keyrt yfir gamla konu þegar ég var á leiðinni í vinnuna í morgun. Fyrir utan elliheimilið á Vestugötu/Garðastræti. Ef tvisturinn er ekki á keyra gamalt fólk er hann að keyra yfir það. En það er kannski bara kúl. Samt - ég er búinn að vera að fylgjast með mbl.is og visir.is en engar fréttir af gömlu fólki sem keyrt hefur verið yfir. Kannski var þetta bara hraðahindrun!?
Mikið skelfilega er gaman að bera á parkettið heima. Á eftir ætla ég heima að lakka parketið heima hjá mér. En fyrst ætla ég að koma mér í stuð og fá mér einn bjór. Katrin er kúl... en þetta líka.
Vinum mínum í Röskvu [D] [M] [G] [S] er öllum umhugað um ráðningu nýs framkvæmdastjóra SHÍ enda allt fólk sem lætur hagsmunamál stúdenta brenna á sér. Vaka hefur lagt áherslu á að ráða faglegan framkvæmdastjóra. Brynjólfur og félagar fara varla að flaska á fyrsta kosningaloforðinu. Ja, nema að þau fylgi skoðun Þórlinds Kjartanssonar um að kosningaloforð skipti ekki máli!!!

21.3.02

Jamm - ég er að fara á ráðstefnu í Salt Lake City í apríl. Vei! Það verður þó ekkert fyllerí á manni því að í SLC ráða mormónar ríkjum sem hafa óbeit á brennivínsdrykkju. Þeir eru reyndar líka á móti kaffi, te, samkynhneigð og fóstueyðingum. Þeir bæta sér það þó upp með því að leyfa fjölkvæni. Jamm - það verður fjör í Salt Lake City... (kannski maður komist á bretti!!!)

20.3.02

Ég tek strætó í vinnuna. Tvistinn til að vera nákvæmur. Tvisturinn er nokkuð skemmtilegur vagn. Með honum ferðast, auk mín, gamalt fólk og stemmningin er nokkuð kúl. Klukkan hálffimm fyllist svo vagninn af fiskiilmi og nýbúum. Ekki svo að skilja að nýbúar lykti almennt eins og fiskar. En nýbúarnir sem taka tvistinn lykta eins og fiskar þegar þeir koma úr vinnunni. Þeir vinna nemlig á Granda - en þar er einmitt endastöð tvistsins - og nýbúanna!! Ég var einu sinni að rabba við ungan þjóðernissinna. Hann hafði eitthvað á móti nýbúum - aðallega vegna þess að þær kæmu hingað og tækju vinnuna frá okkur. En nýbúarnir taka akkúrat vinnuna sem við viljum ekki. Það er nokkuð ljóst í tvistinum klukkan hálffimm.
Þá er það ljóst. Ég er Fontur.




You're the FONT tag- some people ignore you, some people adore you. When you like someone, you like them a lot, but when you don't like them- watch out.

19.3.02

Í dag var auglýst staða framkvæmdastjóra Stúdentaráðs. Það er vonandi að fleiri sæki um en Eyþór Arnalds. Ég er ekki alveg viss um að hagsmunabaráttu stúdenta sé borgið í hans höndum!

18.3.02

Það er bráðfyndið að skoða frjalshyggja.is. Þar eru á ferð einhverjir ungir frjálshyggjugemlingar sem virðast halda að málstaður þeirra sér eitthvað traustari ef þeir minnast nógu mikið á kommagrýluna. Málflutningur þeirra minnir oft á málflutning hægri manna á kaldastríðsárunum. Er þetta árangur uppeldisstarfs HHG og félaga?? Engu að síður - bráðskemmtileg lesning fyrir alla áhugamenn um frelsi!
Merkilegur þessi heimur. Við María fórum á Austu Indíafélagið í gær til að fagna því að ég seldi íbúðina mína. Jamm fínt að fagna því enda mun fjárhagurinn hjá okkur eitthvað batna í kjölfarið. Nú langar mann bara til að eyða öllum krónunum og fara bara í heimsreisu. Ætli skynsemin verði samt ekki ofan á og maður enda á því að kíkja bara helgarferð til London. Það er svo sem alveg nóg heimsreisa í bili. En þetta var líka hálfgerð heimsreisa hjá okkur í gærkvöldi á Austur Indíafélaginu. Þetta er merkilegur staður - hann er svona í dýrari kantinum en samt í ódýrari dýrakantinum. Eða er hann dýr miðlungsstaður? Að minnsta kosti var þjónustan góð maturinn frábær og rauðvínið sem við pöntuðum með gjörsamleg snilld. Drostdy-Hof Merlot heitir það og er frá Suður Afríku. Jamm sannarlega vel heppnuð máltíð í gær!
Veikindin farin og heilsan að koma. Jamm - nú fer þetta allt að koma. Hvað er þetta annars með hi.is? Ég lenti á einhverju fjarnámskjaftæði loggaður inn sem einhver Hjörtur Þór Daðason. Er allt að brenglast þarna í háskólanum???