3.1.03

Í kvöld verður síðasta jólaboðið. Ég ætla að kalla það "Síðasta Jólaboðið". Þá verður boðið upp á hangilærið sem María fékk í jólagjöf frá vinnunni. Vandræða jólagjöf! Þessa jólagjöf suðum við María í nótt. Það var í fyrsta sinn sem ég sauð hangikjöt (hmm). Það verður ágætt að slútta jólunum enda búin að taka sinn tíma og sjúga orku úr mínum litla skrokki. Hver var að tala um hvíld á jólunum? Næstu jól er ég að spá að sleppa öllum jólaboðum. Þau eru mestmegnis til ama.

Röskvufundurinn mikli var þó bæði til gagns og gaman. Nú eru málin farin á skrið!
Mig dreymdi í nótt að ég væri á ömurlegum tónleikum með Ossie Osbourne. Þeir voru í Laugardalshöll sem var í þetta sinn innréttuð eins og stóri salurinn í Háskólabíói. Reyndar voru þetta ekki tónleikar heldur svona einskonar uppistand hjá kallinum. En það dapurlega var að einungis voru um 30 manns mættir. Reyndar var orðið uppselt á tónleikana daginn eftir þar sem Motely Crue ætluðu að hita upp fyrir Ossie. En ég var sum sé staddur á þessum semítónleikum sem í raun var líka uppistand eða jafnvel svona frásögukvöld Ossie Osbourne. Ástæðan fyrir veru minni þar var sú að ég var einmitt að skrifa ævisögu Ossies. Jamm, draumar eru merkilegt fyrirbæri.
Hullboy farinn að blogga. Og það síðan 8. desember. Það er ágætt að frétta það svona á nýju ári. Hann fær þá að sjálfsögðu hlekk á sig svona til hliðar. Jújú, fyrsti hlekkurinn á nýju ári.
Árið!

Hvað var 2002? Ég held bara að ekkert nýtt hafi komið fyrir mig á síðasta ári. Jú, ég byrjaði aftir í námi. En það var svo sem ekkert nýtt heldur svona áframhald með smá svona previously kynningu í upphafi. 2001 var þó ár breytinga og eitthvað segir mér að 2003 verði það líka. Þá hefur 2002 verið svona milli bil (takið eftir bilinu á milli milli og bil).