Hér í Nýja Garði er kexdólgur á ferð. Nýverið kom ég með að heiman stóran og fallegan Mjólkurkexpakka frá Frón. Svona til að maula með kaffinu. Að sjálfsögðu þykir mér við hæfi að bjóða með mér þegar svo býr undir enda gaman að sitja með vinnufélögunum, drekka kaffi og maula kex á meðan rætt er um málefni líðandi stundar, pólitík eða önnur hugðarefni okkar hugvísindafólksins. Hef ég ekki séð eftir þeim kexkornum sem farið hafa upp í munn og ofaní maga þakklátra kollega minna. En undanfarið hef ég tekið eftir undarlegum hlutum. Smátt og smátt hefur kexmagn nýjasta kexpakkans minnkað án þess að ég hafi komið þar nálægt. Í fyrstu þótti mér svo sem ekki skrýtið að einhver hungraður hugvísindamaðurinn hefði nælt sér í eitt kex svona til að slá á sárasta hungrið. En eftir því sem kexin urðu fleiri sem hurfu þótti mér málið sortna og þótti mér nóg um þegar kexpakkinn sálugi hafði hreinlega verið tæmdur einn morguninn er ég mætti til vinnu. Hafði þá horfið fjórðungur kexpakkans án þess að ég hefði boðið það neinum. Ég vil nú ekki kalla mig nískupúka og jafnvel mætti kalla mig gjafmildan á stundum. Til að mynda hefði ég allt eins getað tekið upp á því að bjóða allan pakkan góðum vinnufélögum mínum. En þegar níðst er svo á gjafmildi manns að eigur manns eru hirtar upp til agna verður manni nú brugðið.
Ekki ætla ég nú þó að gera veður út af þessu máli og hef ég þegar keypt nýjan kexpakka og hyggst gera hann mér og félögum mínum að góðu næstu dagana. En það verður fóðlegt að sjá hvort kexmagn pakkans nýja hafi rýrnað óeðlilega þegar ég mæti til vinnu eftir helgi.
Góða helgi
Reit Fjalsi klukkan 14:20
14.10.02
Ég fékk eftirfarandi tölvupóst um daginn:
Hi there!
I got your email from Jennifer and I just wanted to tell you strait up, I really like 2 F*CK!
She told me u're into f*ckin' too. Lets hookup for a juicy weekend (maybe even this weekend)
and cum together!
Click Here To See My Site!
can't wait to f*ck like rabbits,
Jen
Hver skyldi þessi Jennifer vera?
Reit Fjalsi klukkan 11:10
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík