19.6.02

Sverðfiskur og bjór

Í gær tók ég vídeó ásamt Þorra þokkalega. Swordfish - kom mér á óvart og reyndist bara nokkuð þolanleg. Halle Berry fór var líka eitthvað að strippa þarna og í kjölfarið þokaðist hún upp um tvö sæti á T10-listanum mínum og vermir nú 7. sæti. Einnig hefur bæst við í hópinn Lisa Ekdahl sem er með mest seyðandi rödd í heimi. En hún kemur reyndar ekkert nálægt Swordfish. Svo er Maria Bello komin upp í þriðja sæti enda ofsa sæt.

18.6.02

Hva --- spáin mín er strax að falla. Ítalir dottnir út - eftir að hafa tapað fyrir Suður-Kóreu!!!! Svo sem ágætt að heimamenn nái að komast áfram en samt!!!! Ætli Mummi sé þá ekki nokkuð sár.

Þannig að Ítalía-Brasilía í úrslitum verður ekki að veruleika. En erum við þá að tala um Spán-Brasilíu í undanúrslitum. Tja, ef þeir vinna Suður-Kóreu og Þjóðverja (svona ef við gefum okkur að Þjóðverjar vinni Bandaríkin). Ítalir áttu nú að vera með mun sterkara lið en Suður-Kórea en svo fór sem fór sem þýðir að allt getur gerst. Spánverjar hljóta að passa sig á að vanmeta ekki Suður-Kóreu og ættu að vinna leikinn. Þjóðverjar eru stórhættulegir og spurning hvort Spánverjar hafi þá af. Ég efast reyndar um það. Ef ekki þá erum við að sjá Þjóðverja í úrslitum sem er nú ekki beinlínis stuð. Ef Spánverjar vinna hins vegar Þjóðverja er hætt við að allur kraftur verði úr þeim í úrslitaleiknum og lendi þeir á móti Brössum þar stefnir allt í nokkuð óspennandi leik. Ég held allavega áfram að gefa mér að Þjóðverjar vinni Bandaríkin og Brasilía vinni England. En ég ætla líka að skjóta á að Senegal hafi Tyrkina því ég hef fulla trú á þeim

Þá erum við að sjá Brasilíu-Senegal og Þýskaland-Spán í undanúrslitum sem gefur okkur aftur Brasilíu-Þýskaland í úrslit og Spán í þriðja sæti. Svo vonum við bara að Brasilía vinni Þjóðverja og verði heimsmeistarar
Á maður að spá Brasilíu og Ítalíu í úrslitaleik?

Að því gefnu að Ítalía vinni Suður-Kóreu nú á eftir (sem verður að teljast nokkuð líklegt) þá munu þeir mæta Spáni í 8-liða úrslitum. Sigur á Spánverjum er aftur á móti ekki alveg sjálfgefinn enda hafa Spánverjar verið afar sannfærandi í keppninni til þessa. Ítalarnir hafa þó sterkara lið og mér finnst þeir sennilegri til stórverka.

England Brasilía gæti þó orðið spennandi leikur því bæði lið eru sterk. Brassarnir eru þó mínir menn enda finnst mér Enska landsliðið hundleiðinlegt. þeir voru líka ákaflega slappir í riðlakeppninni. Ég er samt ennþá fúll eftir að þeir rúlluðu yfir Dani um daginn og vona að Brasilía negli þá.

Þýskaland - Bandaríkin í áttaliða úrslitum. Merkilegt og sýnir að Bandaríkjamenn eru smátt og smátt að sanna sig. Ég held þó að þeir megi sín lítils á móti þýsku maskínunni. Ég reikna því með því að Þjóðverjar mæti Ítalíu í undanúrslitum. Sá leikur gæti hinsvegar orðið stórskemmtilegur og stefni ég að að horfa á hann þann 25. júní (ef ég reynist sannspár!!!). Ég held þó að Ítalía ætti ná sigri í þeim leik. Ég vona það amk því mér hundleiðist þýskur fótbolti.

Senegal - Tyrkland. Ég ætla að spá Senegal sigri þar. Þeir hafa komið á óvart en að sjálfsögðu hlýtur frægðarförin að enda einhverntímann. Ég gef þeim þó einn sjens áður en þeir mæta Brössunum í undanúrslitum.

Og þar höfum við það

Ítalía - Brasilía í úrslit og þar held ég með Brasilíu. Sá leikur gæti þó farið hvernig sem er og allt eins víst að Ítalía valti yfir Brassana. En ég vona þó ekki.
Þá leika Þjóðverjar og Senegal um þriðja sæti. Það verður gott á Þjóðverjana sem þó ættu að ná sætinu.


Svo er náttúrulega möguleiki á England-Þýskaland í úrslitaleik.... það yrði þó líklega einn leiðinlegasti úrslitaleikur í sögunni og mig langar ekkert til að sjá hann