11.7.03

Nú set ég í fyrsta sinn titil á bloggfærslu. Eftir töluverðar vangaveltur ákvað ég að nota titilinn "titill". Titlar eiga að vera lýsandi og finnst mér titillinn "titill" á bloggfærslu sem fjallar um fyrsta titilinn vera nokkuð við hæfi.

Það er skemmtilegt við oriðið titill að ef maður víxlar í því stöfum getur maður fengið út orðið tillit. Tillit er magnað að því leyti að það lest svo aftur á bak: tilliT. Það er einmitt akkúrat eins og það lest áfram.

Er ekki svo skemmtilegt að sjá sögnina lesast í 3.pers.et lest. Hugrún segir samt að það sé ekki hægt. En ég sé ekki betur en að mér hafi tekist það. Enda drengurinn ósköp klár. Þó hann fari fínt með það.
Jamm... og hérna kíki ég út um gluggann og sé sumarið og alla dásemdina. Hahaha... stundum líður manni þannig. Eins og sumrinu. Þá geislar sólin í hjartanu og svona og maður er eitthvað svo heitur sko, eins og sólbjartur sumardagur. Og blómin maður... inní manni og utaná.

En suma daga er rigning. Þá er maður ósköp tætingslegur og ruglaður.

En nú er ég bara farinn að blaðra eitthvað kjaftæði. Bráðum ætla ég að fara að segja eitthvað af viti. Eins og þetta:

Þegar maður lendir með andlitið á steini, þá er hætt við að maður meiði sig.
Jájá... auðvitað fór allt í skrall með nýja undrinu. Vinn að því um helgina og set þetta fallega tilbúna dót inn svona á meðan. Þá geta kannski líka sumir loksins lesið bloggið mitt án spurningamerkja. Þó maður sé svo sem óttalegt spurningamerki hjá þeim. Ekki satt!?
Varð bara að brófa svona css dót. Unaður á að horfa. Allt svo snyrtilegt og í fallegri röð og reglu. Enda er það nokkurnvegin það sem css stendur fyrir. Stílblað í röð eða hvað sem þetta kallast á íslensku.

10.7.03

Geðsjúklingur. Ég fékk bréf frá enn einni skvísunni sem vill leigja með mér íbúð. Ég svaraði henni og sagði að ég væri til í að skoða málið með henni. Í kjölfarið er ég búinn að fá frá henni á annan tug pósta. M.a. sjö pósta þar sem í hverjum pósti bættust við þrjú ný orð. Svona eins konar framhaldspóst. Svo poppaði upp póstur frá henni í dag þar sem hún segist vera komin með íbúð handa okkur í Leiden. Ef ég skil hana rétt. Ég á reyndar ekki auðvelt með að skilja margt frá henni. Hér er síðasta bréf:

What would you say if i will tell you i have a house in leiden and i have another girl intrested ? this is a 3 bedroom apartment.something very hard ot find in holland and in leiden.
We can also check other 3 rooms apartment.

You live there at the moment?


9.7.03

Ég var að fá stúdentanúmerið mitt hjá Universiteit van Amsterdam, 0317977. Þetta finnst mér bara nokkuð kúl númer. Þversumman 34 og svona. Jájá...
Sveitin og fuglarnir og flugurnar og loftið og lækirnir, vötnin um vorið, sumarið og sólin. Sveitin mín, blessuð sólin mín. Fífilbrekkar, gróin grund, flóatetur, fífusund. Gras og gil og urð og grjót.

Og svo .... haustið ...

8.7.03

Ég er orðlaus