Ekki las ég Fávitann í gær svo að ég þarf að lesa tvöfalt í dag. Stefni á kósíkvöld uppí sófa með Fávitann í annarri og klappa Birtu með hinni.
Reit Fjalsi klukkan 15:21
Einhverntíma heyrði ég rokktexta sem sagði m.a. sætar stelpur hafa ekki hægðir. Svo heyrði ég í gær að fegurðardrottningin Manúela Ósk hafi verið frá keppni einhversstaðar vegna þess að hún var með svona líka pípandi niðurgang. Þannig að líklega hafa sætar stelpur hægðir eftir allt saman, amk fá þær drullu!
Reit Fjalsi klukkan 10:04
5.6.03
Annars byrjaði ég á helvítis Fávitanum í gærkveldi. Kláraði einntíunda. Sem er ágætt því nú eru níu dagar þar til ég á að klára! En þetta er alveg brilljant bók, hingað til. Vonandi verða næstu 630 síður jafn skemmtilegar!
Reit Fjalsi klukkan 11:36
Jamm. Hlutirnir gerast hratt. Í gær setti ég inn auglýsingu eftir húsnæði í Amsterdam á hinn magnaða vef iAgora. Í dag svaraði mér Silvia frá Ítalíu í leit að meðleigjanda! Ég sagði bara játakk. Nú er bara að bíða og sjá...
Reit Fjalsi klukkan 11:27
4.6.03
Sumt finnst mér skrítið. Reyndar margt. En eitt finnst mér afar einkennilegt. Það er þegar fólk skrifar eitthvað á borð við: „Kíkið á nýja lookið á síðunni!“ Hvað meinar fólk. Er talað um lok með löngu o-i eða hvað. Afhverju skrifa menn ekki bara lúkk fyrst þeir eru farnir að sletta svona. Hvort er tildæmis læsilegra: ég ætla að compleeta lookið og fá mér pizzu og coke eða ég ætla að komplíta lúkkið og fá mér pítsu og kók. Tja þetta er kannski smekksatriði en mér bara finnst þetta og maður á alltaf að segja það sem manni finnst.
Reit Fjalsi klukkan 09:45
3.6.03
Mér skilst að það sé góður mælikvarði á að sumarið sé komið þegar unglingar fara að sjást víða um daginu á fjórum fótum rótandi e-ð í blómabeðum. Samkvæmt því er sumarið komið, amk hér við Nýja Garð, því fyrir hér fyrir utan er allt fullt af svona skrýtnum unglingum í grænum pollagöllum með hrífur og sköfur.
Vei
Reit Fjalsi klukkan 15:23
Í gær var rúmið mitt heimt úr helju. Tja, kannski ekki helju! En amk þá fékk ég aftur gamla góða rúmið mitt frá því í sambúðinni forðum daga. Því miður komst ég ekki í háttinn fyrr en um klukkan sjö í morgun, en engu að síður. Hvílík dásemd sem þetta rúm er. Ég svaf loks eins og engill, hvernig sem þeir nú sofa, kannski sofa þeir alls ekki. Þetta er nú eitthvað annað en vindsængin sem ég er búinn að sofa á síðustu tvo mánuðu. Ég þakka engu síður Kidda og Karó kærlega fyrir lánið.
En nú taka við betri tíma í góðu rúmi. Ég ætti nú að bjóða einhverjum heim við tækifæri til að prófa gripinn!
Reit Fjalsi klukkan 15:01
2.6.03
Það er einhvernveginn þannig að þegar maður á að vera að gera eitthvað gáfulegt eins og að skrifa ritgerð þá getur maður fundið sér nánast allt annað að gera. T.d. að skrifa eitthvað bull í þetta fjárans dónalega blogg sem maður heldur úti af þeirri einu ástæðu að maður er svo fjandi einmana að maður bara verður að deila öllum hugsunum sínum með umheiminum. En þessi einmanalegu köll manns út á internetið gera mann bara meira einmana þar til maður leggst nakinn í gólfið, grátandi með leðurgrímu. Hvað er sorglegra en það? Tja, kannski að liggja nakinn í Austurstrætinu umvafinn í klósettpappír og kalla guð minn, guð minn, hví hefur þú yfirgefið mig. En bara kannski.
Og þetta allt gerir maður til að sleppa við að skrifa ritgerð sem maður hefði löngu átt að vera búinn að skila og getur ekki hætt. Finnur hjá sér einhverja dónlega þörf fyrir að skoða mbl.is óskaplega reglulega og stara kannski á hilluna fyrir framan sig eða finna textann af helvítis Johnny Cash laginu sem maður er að spila svona til að halda einbeitingu en maður vill samt geta amk hummað með fjandans laginu. Svo verður maður alltaf af og til að standa upp og fá sér kannski einn kaffibolla og þá vill svo til að mogginn liggur opinn inni á kaffistofu svo að maður les aftur allar fréttirnar sem maður var að enda við að lesa á mbl.is.
Já, það er einhvernveginn dónalega erfitt að skrifa ritgerð sem er eiginlega bara formsatriði því maður er fyrir löngu búinn að ákveða að hætta í þessu námi hérna heima fyrst maður er kominn inn í skólann í Amsterdam. Bara að klára þetta námskeið svona til að fá kreditið og að allur veturinn (þessi asnalegi vetur) fari ekki í súginn (megi hann samt að eilífu fara í súginn), Og mikið djöfull þurrkar þessi verksmiðjusápa inná klósti upp á manni hendurnar. Ég er bara allur að skrælna.
Jamm... þar með læt ég lokið þessari asnalegu færslu, tilgangslausri um ekki neitt (get hvort eð er ekki tæpað meira vegna handþurrks (hvernig á ég þá að geta klárað ritgerðina (mikið djöfull er ég orðinn snöggur að ritvéla))).
Reit Fjalsi klukkan 23:58
1.6.03
Sunnudagur. Hófst alltof seint eftir alltof langt djamm í gær. Endaði samt skemmtilega.
Áframhaldandi ritgerðasmíð og Birgitta á fullu á fóninum. Mikið er þetta júróvísjónlag annars slappt. Ekki skil ég afhverju fólk var að spá því góðu gengi. Líklegast var fólk bara að spá henni Gittu góðu gengi. Enda er hún fallegri en vorið!
Reit Fjalsi klukkan 20:58
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík