27.9.02

mynd dagsins
Í gær fóru fram hressilegar umræður í Kasljósi þar sem formenn stjórnmálaflokkanna mættust. Ég ætla svo sem ekki að tjá mig mikið um þær umræður hér að þessu sinni en í gærkvöldi las ég hinsvegar úttekt Deiglunnar á þættinum. Það var virkilega gaman að lesa hlutlausa umfjöllun um umræðurnar þar. Hvað fannst Deigluskríbentum: Jú, Davíð var bestur, klár og fyndinn enda maðurinn snillingur.

Ég er svo sem ekki þekktur fyrir að vera mikill stuðningsmaður Davíðs, enda er ég enginn stuðningsmaður hans. En kalt mat mitt: Davíð var bara alls ekki sannfærandi í þættinum. Ég hef alla tíð viðurkennt það að Davíð sé stórvarasamur í kappræðum og hefur hann oft og tíðum náð að dauðrota andstæðinga sína. En í gær sýndi hann lítið af þeim töktum. Hann sat makindalega í stólnum og vældi svo eins og smástelpa þegar honum fannst gagnrýnin á sig óvægin. Hin hnittnu tilsvör voru bara ekkert hnittin og ekkert nýtt eða áhugavert kom fram hjá honum. Jú, hann sagði reyndar að það væri í lagi að ræða Evrópumálin. Það er nýtt hjá honum.

Halldór var líklegast sá sem einna sterkastur kom út úr þessum þætti. Hann var yfirvegaður og rökvís. Evrópuumræðan náði að snúast eingöngu um hans orð og hann kom út sem góði kallinn í ríkisstjórn. Það er ljóst að Halldór er verulega að sækja á.

Össur og Steingrímur voru eins og alltaf. Steingrímur orðviss og rökviss en betur klæddur en vanalega. Össur náði að sprella í hinu liðinu og var duglegur við að gagnrýna ríkisstjórnina og benda á það sem þyrfti að laga. Hann náði meira að segja að passa sig í stríðninni að mestu leyti og var yfirvegaðri en oft áður.

Margrét Sverris, tja - hvað getur maður sagt?

24.9.02

Vandræðin með kötlu eru að mestu yfirstaðin.

Ég bendi á skrif mín um Schröder á Sellunni í gær. Þau ættu að vera ágætis leið til að drepa tíma.

Svo óska ég Tjörva og Önnu til lukku með soninn. Hann er stórglæsilegur eins og sjá má hér.

Survivor í gær og Bráðavaktin á morgun. Er dagurinn í dag þá einskonar millibilsástand?