Tvær krákur sátu á grein og spjölluðu.
Kráka 1: Mér leiðist
Kráka 2: Förum þá á krá-ka : )
Reit Fjalsi klukkan 09:52
Til hvers að blogga? Til að létta á sálinni? Til að hleypa skrifþörfinni úr skrokknum? Til að drepa tíma í vinnunni? Hvað er blogg? Frásagnir? Vangaveltur? Bull? Kannski bull og vitleysa? Hver er ég og hvar er draumurinn? Kannski blogga ég fyrir þessar góðu sálir sem kíkja á vefinn minn daglega. Afhverju les þetta fólk bloggið mitt? Er ég svona merkilegur? Hefur þetta fólk áhuga á lífi mínu? Segi ég svona skemmtilega frá? Eða er það bara að drepa tíma í vinnunni? Hvað fær fólk tl að hnýsast í dagbækur annarra? Hvað fær fólk til að gefa dagbækur sínar út á Netinu? Þetta er allt hið undarlegasta mál. En á meðan enginn hefur svörin held ég áfram að skrifa innantómar setningar - tilgangslausar. Og fólkið heldur áfram að lesa innantómar setningar mínar - aftur og aftur og aftur.
Og afhverju rignir? Er ekki júlí? Hvað varð um sumarið?
Og hver er dullafulla manneskjan hjá Fjarhitun?
Reit Fjalsi klukkan 09:48
25.7.02
Merkilegt... eða sko eitthvað í þá áttina. Belgar eru greinilega ekki mikið fyrir málvísindi. Amk hef ég ekki fundið einn einasta skóla í Allri Belgíu sem kennir áhugavert Mastersnám í málvísindum. En óskaplega eru þeir duglegir að halda úti evrópskum fræðum. Það mættu hins vegar Hollendingar vera duglegari við en þeir hafa líklega meiri áhuga á málvísindum enda úr nógu að moða í þeim fræðunum þar.
Jamm - þannig að við María eigum nokkur vandkvæði með að finna skóla sem hentar okkur báðum fullkomlega. En það ætti nú að hafast á endanum.
Reit Fjalsi klukkan 17:59
Mummi spáir í alvöru að mæta á útihátíð Andansmanna. Því ég fagna. Hann spyr líka um inside information. Hvað get ég sagt? Þetta verður stuð stuð stuð og ég mæti með gítarinn og kortuspjaldið og svo verður kannski vaðið í Soginu. Og Mummi, þú þarft ekki að hafa áhyggjur af ferðafélaga. Þú getur t.a.m. komið með mér. Helbert dirt --- hmmm ef Pétur Maack mætir munu menn væntanlega verða vitni að dauða hans (að gefinni reynslu úr Þjórsárdal) við skulum þó vona að hann nái að tjalda í þetta sinn. Eplasnafsflaskan verður með í för og opnuð við hátíðlega athöfn (því á útihátíðum Andansmanna er viðburðurinn "Eplasnafsflaska formanns opnuð" orðinn fastur punktur). Nokkrir Andansmenn eru á lausu en hvur veit hvað gerst getur í rómantískri birtunni í Forsetalundi !? Ef þetta verður eitthvað svipað og í fyrra gerum við ráð fyrir sprungnum puttum mínum eftir gítarspil og vasklegri framgöngu Pippa við varðeldinn. Dirt, Mummi minn, get ég ekki gefið þér því þetta er sómasamkoma af bestu gerð og ég hlakka til að skála við þig í Lundinum og kannski dans við þig An-dansinss
Reit Fjalsi klukkan 09:04
heimagerðrabrandarkeppnismónólóg dagsins:
Eitt sinn voru tvær tölvur að spjalla saman. Segir þá önnur. Æh ég hef verið eitthvað svö slöpp að undanförnu. Ég er örugglega með vírus.
Reit Fjalsi klukkan 08:50
24.7.02
virkar þetta?
Reit Fjalsi klukkan 16:08
Þrátt fyrir annasaman dag tók ég mér smá tíma og lék net-kotruvið Finn Pálma. Reyndar spiluðum við tvær og skiluðum 1-1 jafntefli því ekki hefði verið við hæfi að við sigruðum hver annan, sem við reyndar gerðum.
Kotruspil mun líklega spila nokkurt hlutverk á Útihátíð Andansmanna um verslunarmannahelgina.
Um útihátíð Andansmanna má allt lesa á Andansmenn.com. En í stuttu máli er um að ræða hátíð fólksins í Þrastaskógi þar sem áhugamenn um áfengismenningu koma saman og spá í víni og drekka það svo.
Reit Fjalsi klukkan 15:44
Feikinóg að gera í vinnunni. Gef mér samt tíma í heimagerðrabrandarakeppnismónólóg dagsins:
Hvað sagði píanistinn við flygilinn?
Hah! Þarna lék ég á þig :)
Reit Fjalsi klukkan 13:48
23.7.02
Í tilefni af flippinu þá ætla ég að starta heimagerðumbrandarakeppnismónólóg hjá sjálfum mér. Fyrsti dagur:
Tveir kálfar vour að tala saman:
Kálfur 1: Pabbi minn sagði, áður en hann dó, að maður ætti ekki að bíta of mikið gras.
Kálfur 2: Pabbi þinn er steik!
Skellti mér sum sé aftur í Svarfaðardalinn um helgina. Í þetta sinn var María með í för. Gengum upp á Digrahnjúk með' fáum vandkvæðum. Svo átum við lömb og drukkum rauðvín. Hittum líka Lady Balfour.
Reit Fjalsi klukkan 10:33
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík