Jæja - Mummi virðist vera í nettum fíling! Áskoruninni er tekið og þá er bara að verða sér úti um spilið. Og Doppelkopf hljómar vel. Jamms kannski er maður spilafíkill. Annars erum við Mummi sammála: Hagaskóli er sillý stofnun. Mummi þreytist víst seint á að skrifa um NBA (sem er víst bandarískt körfuboltasamband). Því hef ég ákveðið að vera með í NBA-umræðunni hér á vefnum. Og þar sem ég er nýkominn frá Utah er við hæfi að velja sér liðið Utah Jazz til aðdáunar. Þar spila miklar kempur eins Karl Malone. Malone fékk árið 1996 útnefninguna einn af 50 bestu spilururm í sögu NBA. Jamm, engin aukvisi þar á ferð. Einnig ber að nefna rússneska nýliðan Andrei Kirilenko sem virðist eiga framtíðina fyrir sér innan NBA með 10,7 stig að meðaltali í leik á þessu leiktímabili. Nú er bara að fylgjast með hverna Djössurunum gengur á móti Sacramento í úrslitakeppninni. Fyrsti leikurinn á morgun verður spennandi. Sacramento hafa unnið alla leiki á móti okkur á þessu tímabili. Nú verður taflinu snúið við. Ég hef alla trú á mínum mönnum og bíð spenntur eftir úrslitum í fyrramálið. Áfram Utah
Reit Fjalsi klukkan 11:42
18.4.02
Jæja. Þar kom staðfesting á því. SÆNSKI KOKKURINN!!! júrdíbú búrdíjúrdí
Merkileg þessi pæling með kokkteilsósuna. Þetta er náttúrulega einhver geðsýki. Amk finnst mér kokkteilsósa ferlegur andskoti sem ég reyni að forðast. Kokkteilsósa er einmitt helsta ástæða þess að ég hætti að stoppa í þjóðvegasjoppum eins og Staðarskála - þess í stað reynir ég bara að keyra í einum rykk í Svarfaðardal. Nú eða þá stoppa bara úti í vegakannti og éta nesti sem ég hef þá smurt mér - svona eins og falleg húsmóðir í breiðholtinu. Afhverju hljómar líka húsmóðir í breiðhóltinu miklu minni húsmóðir en húsmóðir í vesturbænum? Meira að segja húsmóðir í grafarvogi hljómar betur en húsmóðir í breiðholti. Annars held ég að húsmóðir í Hafnarfirði hljóti að vera frábær húsmóðir. Samt kannski ekki eins myndarleg og húsmóðir í vesturbænum- hmmmm, pæling!
Reit Fjalsi klukkan 15:09
17.4.02
"Just when I thought I was out, they pull me back in."
Pinklady segist ekki alveg sátt við Godfather III - vissulega er hún síðri en hinar tvær en engu að síður mögnuð. En málið er nú bara það að þrátt fyrir að vera síst af þeim þremur stendur hún og fellur með hinum tveimur -- já, eða eitthvað svoleiðis. Mér finnst Godfather III hörkugóð konklúsjon - það er bara þannig að konklúsjon er alltaf leiðinlegasti parturinn í öllum myndum. Þarna erum við með heila mynd sem er ekkert nema konklúsjon og hún er samt bara fín --- það finnst mér helvíti gott!!
"All my life I kept trying to go up in society. Where everything higher up was legal. But the higher I go, the crookeder it becomes. Where the hell does it end?"
Reit Fjalsi klukkan 10:19
Mér finnst nú eitthvað vanta á þessa mynd hmmmmmmmm!!
Reit Fjalsi klukkan 09:53
Jahérna - ég er nú eitthvað að prufa mig áfram með nýtt lúkk --- hmmm þetta er nú ekki alveg að virka!!!
Reit Fjalsi klukkan 09:50
16.4.02
Hahahaha... Skrípaleikurinn heldur áfram. Mér finnst þetta amk fyndið - enda er Brynjólfur fyndinn kall - það er amk hægt að hlæja að honum. Er hann kannski frekar hlægilegur en fyndinn??
Síðasta föstudag var sum sé svokallað reunion hjá 76 árgangnum í Hagaskóla. Það eru víst 10 ár síðan við sluppum úr því helvíti. Ég var því miður staddur þá stundina úti í Utah svo að eðlilega komst ég ekki á viðburðinn. Ekki svo að skilja að ég hafi verið yfir mig spenntur að hitta gamla pakkið úr Hagaskóla en einhver forvitni greip mig og áhuginn vaknaði. En ég komst ekki og ég er svo sem ekkert að gráta það. Hefði ég verið á landinu hefði ég þó farið og beðið spenntur eftir að hitta þessar fáu sálir sem ég þó kunni vel við á þessum árum. Mér skilst þó að þeir aðilar hafi flestir látið sig vanta enda flestir með sömu skoðanir og ég á fyrrum skólafélögum. Mummi fjallar um þetta í síðunni sinni og svo nefnir Palli þetta líka. Ég þekkti einu sinni Palla, ég gæti meira að segja gengið svo langt að segja að við höfum verið ágætis vinir á sínum tíma. En það eru sem sagt tíu ár síðan og margt hefur breyst. Við Palli erum engir vinir lengur og heilsumst vart úti á götu. Kannski við höfum bara ekkert hvor við annan að segja. Við erum amk engir óvinir. Mummi og Palli voru líka góðir vinir í gamladaga en ég efast um að þeir hafi nokkuð hist undanfarin tíu ár. En hvað um það, nóg af Palla. Ég hugsa að eina ástæðan fyrir að ég var eitthvað spenntur fyrir þessu rejúníoni var akkúrat að hitta þetta fólk sem maður kallaði vini sína en hefur ekki hitt í tíu ár. En þetta lið hefur hvor eð er örugglega engan áhuga á að hitta mig eða aðra. Svo er líka Hagaskóli ömurlegur skóli.
Reit Fjalsi klukkan 14:27
Hvað um það - kominn frá SLC og jesús hvað það er leim borg. HA!! Mormónar eru nú ekki fjörugasta fólk í heimi en þeir byggja fallegar kirkjur - amk stórar kirkjur. Hvað um það - ef þú er á leið til SLC þá mæli ég með Port O' Call.
Reit Fjalsi klukkan 11:36
Lúkkið hjá Mumma að batna... bullið í honum er samt ekkert skárra. Mér finnst nú samt að mummi hefði átt að mæta á reunion... þrátt fyrir að þarna hafi verið meira og minna fólk sem maður fyrirleit á sínum tíma... en menn ÞROSKAST ekki satt Mummi!!! Hvað um það -- hér með skora á á Mumma í Pacific á næstunni. Og hvað er þetta með körfuboltann... hmmmmmmmmmm
Reit Fjalsi klukkan 11:23
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík