9.5.03

Nú er bara spurning hvort Steinmal vilji lána mér kannski vöðlur... nei bara svona spá....
Bónus! Jú... framundan er Bónusferð bræðranna á Ásvallagötu! Veiveivei... hver veit nema að við kíkjum í ÍKeA í leiðinni

vei
Smáskilaboð!

Þau ykkar sem hafið hugsað ykkur að kjósa framsókn... vinsamlega gerið það í norðaustur kjördæmi...

annað er bara rugl... ég meina.... framsókn! for kræing át lát sko! hmmm
Sum sé... föstudagur í dag... á föstudögum nenni ég yfirleitt ekki að vinna... enda nánast komin helgi ... og menn eiga ekki að vera að vinna um helgar.... onei!
Mín fyrrum kærasta, þ.e. sú síðasta, en ekki þó sú síðasta, vonandi, sagði við mig um daginn að ég væri orðinn orðljótari...

hmmm

það finnst mér dáldið merkilegt...

jamm... und já...

Fyrir ykkur sem leiðist í vinnunni mæli ég með þessu
Samkvæmt könnunum eykst fylgi Sjálfstæðisflokks hjá konum... hvernig stendur á því... ekki getur verið að þessi leim bleðill sem sendur var út og á stoð „nú er tækifærið“ hafi haft áhrif.. ég meina.... er tækifærið nú hjá konum til að kjósa Sjálfstæðisflokkinn... hvað meina þeir... er ekki allt í lagi...

nei sumt skil ég ekki....

en eitt veit ég.... ég kýs Samfylkingu á morgun... enda ekki kona... hmmmm

8.5.03

Þrándur bauð í mat... við gulli neyðumst samt til að kaupa allt efnið í hann... jamm og já!
Jú... Þorri kominn í gang... mikið verður nú gaman að fylgjast með skrifum hans og bölvaður kjánaskapur að hafa ekki útbúið þetta um leið og þau Tóta fóru út. En betra er seint en aldrei... þannig að næstu tvær vikur mun ég fylgjast með úr fjarlægð áður en ég fer út og verð vitni af lífi Þokkalega í beinni útsendingu... æi hvað það verður gaman...

En það sem meira er... Þorri búinn að fjárfesta í miður á Primavera festival ... æ og ó mikið verður gaman það... ææ og óó

arg.... hvað ég hlakka til... arg arg.... ég öskra bara af gleði... argargarg
En svo ég fari nú að dæmi Sverris:

Þennan dag árið 1916 fæddist afi minn, Ólafur Þorsteinsson, í Háholti í Gnúpverjahreppi.

Blessuð sé minnig hans!
Sverrir ætti nú að hætta að svekkja sig á Samfylkingunni. Auðvitað á hann að svekkja sig á því að Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið við völd í 12 ár og ef vinstrimenn, sama hvaða nafni þeir nefnast, standa ekki saman í þetta sinn getur farið svo að við þurfum að þola önnur fjögur ár undir forsæti Davíðs Oddssonar og stuttbuxnadrengja hans.

Sverrir....... og þið hin, „alvöru vinstrafólkið“ eins og þið kallið ykkur... hættið að þessu bulli. Aðalmarkmiðið hlýtur að vera að fella ríkisstjórnina og mynda vinstristjórn í vor... slíkt verður ekki gert nema að Samfylking og Vinstir Grænir vinni saman... það þarf ekki að vera svo erfitt.

Og Sverrir: Þó að Samfylkingin tefli fram traustum leiðtoga þýðir það ekki að hún þjáist af málefnafátækt... þú hefur greinilega ekki kynnt þér málin kallinn minn!

Láttu ekki líta svo út að Vinstrihreyfingin grænt framboð hafi bara verið stofnuð sem svekkelsi útaf Samfylkingu.... hmmmmm...
Þannig er nú það. Kosningar ekki á morgun heldur hinn. Ég var að spjalla um daginn eitthvert lið um tvítugt sem var alveg á því að það ætlaði að kjósa Sjálfstæðisflokkinn og að Davíð væri sko kúl kall. Ég á nú doldið erfitt með að skilja slíka hugsun. Hvernig getur nokkru fólki sem gengið hefur í menntaskóla þótt Davíð Oddson æskilegur forsætisráðherra áfram? Mér er spurn. En svo fór ég að spyrja um málefnin og hvað það væri sem Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði að gera fyrir þetta unga fólk. Jú, sögðu þau .... lækka skatta! Jamm sagði ég ... og hvað fleira? Jú sögðu þau... eh ... hérna ... tja ... sko ......... Jamm sagði ég ... rosa gott að lækka skatta ... fá minna inn í ríkisrekstur og sneiða meira niður í heilbrigðisþjónustu og menntakerfi... jamm frábært! Svo spurði ég ... langar ykkur inn í ESB? Ja... sögðu þau ... amk þarf að lækka vöruverð hér til samræmis við það sem er í Evrópu... Jamm sagði ég ... og rétti þeim stefnuskrá Samfylkingarinnar... því Samfylkingin ætlar að lækka skatta .... þar sem það skiptir máli .... ekki að lækka enn frekar skatta hjá forréttindahópum eins og Sjálfstæðisflokkurinn hefur gert og ætlar að gera ... Því Samfylkingin vill athuga hvort aðild að ESB skili okkur aukinni hagsæld og sanngjarnara vöruverði ... Því Samfylkingin vill raunverulega auka tækifæri og frelsi ungs fólks ... með öflugu menntakerfi ... húsnæðislánakerfi .... auknu framboði leiguhúsnæðis ... hækkuðum námslánum ... afnámi skatta af bókum ... og svo framvegis ...

Vegna þess að Samfylkingin er eini alvöru kosturinn fyrir ungt fólk ... og alla hina líka!
Jú ... Rómeó og Júlía í gær ... nokkuð mögnuð sýning ... mun betra að sjá svona en þessar hefðbundnu uppfærslur ... enda er þetta leikrit alls ekki nógu gott nema að maður kryddi það verulega ... jamm ... svo sem hugljúf saga ... en óskaplega slappur söguþráður ... en sýningin góð

7.5.03

Líterinn/lítrinn hálfi er drukkinn.... af mér... því miður Pétur minn... gengur kannski betur næst... jamm... und já
Bjó til blogg handa Þokkalega. Nú er bara að bíða og sjá...

6.5.03

Hjössi... alltaf frjáls í fréttunum
Johnny Cash..... Helvítis snillingur bara
Djöfull er nýi kánterinn hans Gulla ógeðslega ljótur... þá var nú helvítis drekakánterinn flottari....


ég segi nú bara eitt: Mella!


Gullinn hrokkinn í gang... e-ð að kvarta yfir matleysi í ísskápnum... já, Gulli minn... svona er að búa í burtu frá m&p.... Annars ætti hann ekki að kvarta... ég vakti hann t.d. í morgun og bauð honum upp á nýlagað kaffi... ha... huggulegt hjá stráknum talandi um huggulegheit... þá var nú bara skrabblað á Ásvallagötunni í gær... vinirnir bara í góðum gír... með fallega tónlist og kertaljós... ha... það vantaði bara píurnar... reyndar kom steinmal... það var ágætt
Síðasta færsa er til heiðurs Blair, sem er fimmtugur í dag... megi hann fara fjandans til..........
Góðan daginn!

Aaaarrrg.... þetta er öskrandi snilld

5.5.03

Bókhlöðublogg...

jamm...

langt síðan

en þetta er allt að koma

neiiii
Pófum þetta
Jú... fréttirnar af Bjarka og Hildi hafa verið staðfestar. Það er hið virðulega vefrit Veiðifélagsins Kolbeins sem staðfestir fregnirnar. Jú.. alltaf hægt að treysta Kolbeini, og greinilega Katrínu.

Annars var Katrín stútfull af fréttum í morgun. Því systir hennar var að ala barn í þennan grimma heim. Ég veit ekki hvort ég eigi að hlæja eða gráta.

Ég amk brosi - enda gleðifréttir.
Ég var að fá nokkuð magnaðar fréttir af Bjarka og Hildi í Köben... ég þarf nú að fá staðfestingu á því þegar ég fer og heimsæki þau!
Keppnin um RiverRafting heldur áfram á meðal vina minna. Hver stendur uppi sem "besti vinur Hjartar" og fær að launum ferð niður Þjórsá?
Mánudagur...

Mér sýnist á öllu að ég sé að fara í leikhús á miðvikudag. Máski ég bjóði með mér einhverri huggulegri stúlku. Hmmm, en hverri?

4.5.03

Sunnudagur.

Líkt og væri laugardagur fórum við Ásvallagötugemlingarnir í sund ásamt Steinmahl... svo var meiningin að vinna e-ð... hef svo sem enn fátt gert af viti. en ég geri svo sem fátt af viti... jamm.. oft róa bátar á sjó.
Arg hvað var gaman á zweiundzwanzig á fös... jamm... er enn aumur í kálfanum eftir allt rokkið... jess... that is I... the big dancer...