Skyldi siggabeib lika vera með shoe fetish??? Nja - bara að felta þessu fyrir mér!
Reit Fjalsi klukkan 15:33
Mér líst nú ekkert á rugludallana á Tilverunni þessa stundina. Svo virðist sem þessi ágæti vefur sé notaður sem áróðursmaskína fyrir vafasaman málstað sjálfstæðismanna. Það er nú spurning hvort að Tilveran eigi ekki að halda sig til hlés í kosningabaráttunni.
Reit Fjalsi klukkan 13:13
Arnór hefur visst shoe fetish. Það getur verið alveg mangað að sjá fótabúnaðinn hjá honum stundum.
Reit Fjalsi klukkan 11:35
Íslenska
Í gær fékk ég tilkynningu um að ég gæti hafið meistaranám í íslenskri málfræði. Skömmu síðar hitti ég liðið sem var með mér í B.A.-náminu hér fyrir um 4-6 árum. Tilviljun? En hvað um það.Jarðvegurinn fyrir Hollandi 2003 er þar með lagður og fátt annað en gott um það að segja.
Í gær bar ég líka út Sollu á Laufásveginn. Laufásvegur er merkilegur og langur vegur. Hann teygir sig frá MR að Landspítala. Það virðist líka vera viss fylgni milli húsnúmerahækkunar og íburðar húsanna sem við veginn standa.
Reit Fjalsi klukkan 11:26
23.5.02
Verðum við samt ekki að vera sammála um að sem slík er Episode II fín sem slík. Hér er náttúrulega ekki á ferð neitt þrekvikri í leikrænum tilþrifum en hún hefur allt sem góð Star Wars mynd þarf að hafa - Baráttu góðs og ills, geimflaugar, Jedi, Yoda, Anakin Skywalker, Obi Van, geislasverð, klón, ástarkonflikt, stjörnustríð, spennandi bardagaatriði, geimeltingarleiki, glæsilegar klippingar, flotta myndatöku, snjallar tæknibrellur og jú neim it. StarWars - Episode II - The Attack of the Clones --- hún er flott!
Reit Fjalsi klukkan 16:34
22.5.02
Nóri og Oddi byrjaðir að blogga. Það er dáldið merkilegt að þeir tveir eru jafnan nefndir í sömu andrá. Svona líkt og tvíburarnir Ármann og Sverrir. Enda eiga þeir það allir sameiginlegt að hafa keppt í Gettu Betur. Nóri og Oddi eru þó ekki tvíburar og ekkert skyldir að ég viti. Þeir eru heldur ekki virkir í Vinstri Grænum svá at ek hafi tekið eftir. Það gæri þó verið haugalygi hjá mér. Hvað um það - góðir gæjar og svo eru þeir líka íslenskufræðingar eins og ég og Ármann .
Reit Fjalsi klukkan 09:19
21.5.02
Ber það ekki vott um ákveðna skammsýni þegar fólk (sjálfstæðismenn) eru að agnúast út í framkvæmdirnar í Bankastræti og Skólavörðustíg. Að þusa og skammast yfir því að maður verði skítugur á að labba þarna og að fólk hætti að fara á laugaveginn út af þessu. Ég meina þetta lið er nú eitthvað klikk ha! Ég fæ ekki betur séð en að Bankastrætið komi stórbætt út út þessu og mun fallegra. Ég meina fegrunaraðgerðir eru ekki beinlínis fallegar meðan á þeim stendur en tilgangurinn helgar meðalið - ekki satt?
Reit Fjalsi klukkan 16:47
Hvað er náunginn að meina? Vill hann að veitingamenn fái ekki að setja fleiri borð á göturnar í góðu veðri. Kannski vill hann líka að menn fái ekki að vera fullir á Austurvelli!!!. Hmm, stundum skil ég ekki þessa sjálfstæðismenn!
Reit Fjalsi klukkan 16:12
Jæja - kominn gang eftir hið hræðilega hrun tölvunnar minnar. Hvílík skelfing að missa tölvusamband. En fjúh - I'm back!
Reit Fjalsi klukkan 09:28
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík