Stundum (yfirleitt) held ég að það sé ekki alveg allt í lagi með þetta Vökufólk (og afsakið alhæfinguna - ég vil síst ala á fordómum!). Nú er þessi fylking lýðræðissinnaðra stúdenta með eitthvað upphlaup vegna ummæla Sigrúnar sem er einn varamanna Röskvu í Stúdentaráði. Sigrún fjallar í vefdagbók sinni um Rússa nokkurn, sem ég hef heyrt úr nokkrum áttum að sé frekar ógeðfelldur náungi, og lýsir samskiptum sínum við hann. Rétt kann að vera að Sigrún kveði full fast að orði í skrifum sínum, þó ég leyfi mér að efast um að þau lýsi fordómum og mannhatri. Þó svo að ógeðfelldi maðurinn sé rússneskur tel ég að Sigrúnu hefði þótt hann alveg jafn ógeðfelldur hafi hann verið Íslendingur, Færeyingur eða Selfyssingur. Hún er varla að ala á fordómum í garð Rússa. Í versta falli koma í ljós fordómar hennar í garð fólks með gleraugu.
Hvað sem skrifum Sigrúnar líður, hvort þau hafi verið rétt eða röng, óþarflega hvöss eða sanngjörn, er nokkuð hæpin sú tilraun Vökufólks að tengja hana við stefnu Röskvu. Víst er það rétt að Röskva er ekkert annað en fólkið sem í henni starfar, en þar er á ferð fólk úr öllum áttum með mismunandi skoðanir, fólk sem á það sameiginlegt að vilja starfa að hagsmunamálum stúdenta undir merkjum félagshyggju.
Raddir Röskvu eru raddir fólksins í Röskvu. Röskva hefur enga eina rödd enda stendur að henni breiðfylking stúdenta. Það er hæpið að kalla persónulegar heimasíður fólks innan Röskvu "Röskvuvefinn" þrátt fyrir að vísun á þær síður megi finna á Röskvuvefnum. Sú tilvísun var sett til að kynna stúdentum það fólk sem starfar með Röskvu. Heimasíða Sigrúnar er ekki opinbert málgagn Röskvu heldur hefur hún að geyma vefdagbók hennar sjálfrar og er síðan vistuð á heimasvæði hennar ekki Röskvu.
Oft er seilst langt til að koma höggi á andstæðinginn. Því hef ég margsinnis orðið vitni að í samskiptum mínu við Vökufólk. Þessi málatilbúningur Vöku er Stúdentaráði til skammar og það sýnir fátt annað en dómgreindarleysi stúdentaráðsliða Vöku að vera að taka þetta mál upp á fundi ráðsins. Stúdentaráð er lýðræðislegur vettvangur stúdenta til að vinna að hagsmunamálum stúdenta, ekki til að vera í skítkasti og sandkassaleik. Ef Vaka vill standa undir því trausti sem stúdentar settu á hana í síðustu kosningum er mál að hugsa sinn gang og hætta þessu rugli.
Reit Fjalsi klukkan 15:22
28.5.02
Jamms - Zoe farin og allt gott um það að segja. Annars var maður að vona að Hershöfðinginn færi - en það er kannski bara stemmning að halda honum inni - ef hann kannski hættir að vera í þessari fýlu!!
Reit Fjalsi klukkan 12:48
27.5.02
Sólin skín inn um gluggann á fjórðu hæð í JL-húsinu og best að koma sér heim. Enda svo sem óþarfi að vera að vinna endalaust. Í þessum skrfuðum er tvisturinn að bruna framhjá en það er í góðu lagi því að ég er á hjóli. Rallarei og rallara.
Ég mæli með myndinni í færslu dagsins hjá Finni svona sem lýsandi dæmi um hvað ég er happíííí
Reit Fjalsi klukkan 17:20
Gleði og gaman - maður verður að teljast sáttur við úrslitin á laugardag. R-listinn heldur meirihluta og það bara nokkuð örugglega. Laugardagurinn var nokkuð pottþéttur og gaf tóninn fyrir komandi sumar. Svo er líka bara 4 dagar í London- París. Ferðahugurinn kominn í kollinn og kostur á kæti. Svo er maður líka búinn að pússa upp borðstofuborðið og bara dúndrandi hamingja með það. Jamms - það er gaman að vera til!
Svo er Lúlli líka orðinn lögverndaður!
Reit Fjalsi klukkan 12:55
Stöff
Vangaveltur og undarlegar hugmyndir ungs manns í Reykjavík