13.4.02

Hjer i SLC er sol og blida og thokkalegur hiti --- en thetta er nu samt skrytin borg --- hjer er tildaimis ekki haigt ad fa sjer bjor med einfoldum haitti --- en vid Aki fundum nu samt eina goda knaipu sem svalar thorsta okkar a godan hatt --- en hvad um thad -- eg maili nu ekki med ad nokkur eydi friinu sinu hjer i borg mormonanna!

12.4.02

Komst loksins a Cyber Cafe hjer a TESOL --- Jamm Salt Lake City er borg borganna --- hjer skemmti jeg mer konunglega asamt mormonunum ----- en jeg virdist hafa misst af Olympiuleikunum!!!!

10.4.02

Í dag verður farið til Salt Lake - Jamm nú tekur við 12 tíma flug og hressileg heit... ætli ég kaupi mér ekki svo sem eitt krossgátublað til að duddast í á leiðinni..... vúhúúú

9.4.02

Ég sé að Mummi er eitthvað að tala um WIF (world in flames) Ég hef nú ekki gerst svo frægur að hafa spilað þetta spil en býð spenntur eftir að Mummi bjóði mér að spila með ---- Já - hann Mummi er merkilegt meinhorn.....
mummi félagi farinn að blogga - ég rambaði fyrir tilviljun á hann og skúla bróður hans. Ég skil nú reyndar ekki alveg hvað hann mummi er að babbla um - ég held það þetta sé NBA eða einhver djöfullinn --- mummi er náttúrulega frekar klikk --- en hann kann að meta góðan mat --- ég held hann yrði nú nokkuð sáttur við ítölsku matarveisluna í kvöld!!!
Ostabúðin er sniðug búð og Heilsuhúsið ekki síðra. Ég á heima nokkurnveginn niðri í miðbæ - það er sniðugt - ein mínúta í næsta kaffihús, ostabúðina, heilsuhúsið, kramhúsið, rakarstofuna, vídeóleigu, kjörbúð. Jamm - ég þarf sko engan helvítis bíl!!!

8.4.02

ahhh --- ítölks matarveisla að hætti hússins (hallveigarstígs) á morgun --- við byrjum á tómat og mozzarella ásamt feskri basil -- færum okkur svo yfir í spaghetti með krækkling og tómötum -- í seinni rétt verða svo lambakótilettur í salvíu með rósmarín kartöflum -- í eftirrétt tiramisu og espresso... svo verur náttúrulega brauð og salat með þessu og einhvert snilldar rauðvín - líklega hvítvín með forréttinum og 1. rétti... mmmmmmmmmm
http://hjossi.freepolls.com/cgi-bin/util/poll_admin?step=polls_archive&pollpath=001
Jæja krakkar ---- þá er ég farinn burt af þessu geocities - í bili - þetta drasl var bara ekkert að virka --- þá er bara að vona að þetta tripod dót virki --- annars fer nú að koma tími á að maður fái sér bara alminniliga netþjónustu og hætti þessu freebaserugli
Fermingar --- og veislur --- þetta er ekki góð blanda en maður fær þó ágætlega að borða. Í gær var ég í fyrsta sinn vitni að fermingarathöfn. Þetta var dálítíð magnað. Að vísu fór athöfnin fram í Fríkirkjunni í Hafnarfirði sem mér skilst að sé nú eitthvað léttari en helvístis þjóðkirkjan. En hvað um það þetta var ósköp notalegt og ekki laust við að maður trúði eitt stundarkorn. Og svo var náttúrulega veisla. Og bara þessi líka fína veisla - hjá tengdó sko. Jamm - þannig að í gær var ég saddur.