11.7.02
Fyrir mörgum árum var ég í líka í brúðkaupi á Tjörn. Það var í brúðkaupi móðurbróður míns og fyrrverandi konu hans. Hún varð að vísu þáverandi kona um það leiti. Þau sum sé skildu fyrir nokkrum árum.
Við skulum þó vona að hjónabandið hjá Erni og Petru (en svo heita brúðhjónin tilvonandi) endist betur.
En hvað um það --- helgin hefst snemma hjá mér - á einu stykki brúðkaupi ---
Annar aumingjabloggari hefur þó tekið sig á að undaförnu. Það er Páll Hilmarsson. Blogg Palla hefur verið nokkuð stopult en síðustu daga hafa komið nokkrar færslur. Í einni þeirra rifjar Palli upp þegar hann og fyrrnefndur Mummi reyktu fyrstu sígarettuna. Ég man þegar ég og Palli reyktum saman á Arnarhóli. Þar markast upphafið að reykingamennsku minni. Þá reyktum við Winston. Ég var þó fljótur að skipta yfir í Camel sem ég reykti meira og minna þar til ég hætti fyrir nokkrum árum. Það var einmitt hið einstaka bragð sem ég heillaðist af "the unmistakable CAMEL smoothness" auk þess sem útlit pakkans var hlýlegt og uppfullt af áhugaverðum smáatriðum sem maður þreyttist seint á að skoða. Ég get því skilið angur Palla yfir nýju pökkunum.
En ég þarf ekki að hafa áhyggjur af svoleiðis því ég hef ekki keypt mér Camel Filters í lengri tíma.
Það eru engin rök að Þorrablót geti ekki kallast Þorrablót þar sem það sé ekki haldið á þorra. Þannig eru til dæmis lítil vísindi stunduð í vísindaferðum, sumardagurinn fyrsti er yfileitt haldinn um hávetur og um verslunarmannahelgi eiga allir frí nema verslunarmenn. Þó svo að siðirnir breytist er óþarfi að breyta nöfnunum á þeim. Slíkt skapar aðeins vesen og leiðindi.
10.7.02
Það hefur líklega fáum dulist að hörmungarnar 11. september sl. gerðu fátt annað en að efla þjóðerniskennd og samstöðu á meðal Bandaríkjamanna. Gott og vel, líklega betra en að fjármálamarkaðir heims hefðu hrunið með tilheyrandi heimskreppu. Líklega má færa líkur að því að bjartsýn viðbrögð bandarískra stjórnvalda og áherslan á samstöðu hafi átt sinn þátt í að ekki fór allt til fjandans.
Þjóðerniskennd hefur svo sem alltaf verið ráðandi hjá Bandaríkjamönnum og þeim fundist þeir bestir í heimi, enda mesta herveldi heimsins og ríkasta "þjóð" í heimi. Eftir hryðjuverkaárásirnar síðasta haust hefur hins vegar steininn tekið úr. Með forsetann í fararbroddi slær þjóðir sér í sífellu á brjóst og öskrar "við erum best í heimi, allir aðrir eru okkur óæðri".
Ef forsetar annarra ríkja leyfðu sér að tala eins og George Bush yrði mönnum líklega um og ó. Ef voldugur stjórnmálamaður í Evrópu væri jafn duglegur að berja sér á brjóst og hreykja þjóð sinni álíka og Bush gerir yrði hann fljótt sakaður um þjóðernishyggju og talinn varasamur stjórnmálamaður. Ég nefni síðasta dæmi, Le Pen.
Evrópubúar eru nefnilega minnugir sögunnar og vita hvað getur gerst ef einn brjálæðingur hreykir sér á haug og öskrar í sífellu "við erum best í heimi!".
Þó að orð Bush virðist í fyrstu saklaus og alvanaleg þá er megininntak þeirra stórvarasamt. Hér er brot af ræðunni frá í gær:
"The American economy -- our economy -- is built on confidence. The conviction that our free enterprise system will continue to be the most powerful and most promising in the world. That confidence is well-placed. After all, American technology is the most advanced in the world. Our universities attract the talent of the world. Our workers and ranchers and farmers can compete with anyone in the world. Our society rewards hard work and honest ambition, bringing people to our shores from all around the world who share those values. The American economy is the most creative and enterprising and productive system ever devised."
9.7.02
Mikið lifandi skelfing er eldhúsið orðið flott --- amm, ekki laust við flottræfilshátt --- en hva ... maður verður að hafa fínt í kringum sig.
Guðmundur Arnlaugsson fer mikinn í síðasta bloggi. Hann er greinilega staðráðinn í að bæta upp fyrir aumingjabloggið í síðustu viku. Annars vorkenni ég honum ekki svo yfir sjónvarpsleysinu. Sjónvarpið er nefnilega allt of mikill tímaþjófur í mínu lífi. Sér í lagi er SkjárEinn gjörsamlega búinn að yfirtaka öll kvöld á virkum dögum. Þess þarf að breyta. Enda langt síðan maður hefur klárað bók.
Talandi um að klára bók. Fyrir stuttu hóf ég aftur lestur á bókinni Helter Skelter. Hún fjallar ekki um Bítlana heldur Charles Manson og morðin hans. Ég byrjaði að lesa bókina fyrir um tíu árum og hef svona flett í henni af og til síðan þá ---- með löngum hléum. Nú er spurning hvort að SkjárEinn fái að lúta í lægra haldi næstu kvöld svo ég klári Helter Skelter endanlega.
8.7.02
Amm -- var í Þjórsárdal -- var sem betur fer í hæfilegri fjarlægð frá skrílnum. Þjórsárdalur er stórkostlegur og þangað mæti ég ábyggilega aftur í bráð.
Gærdagurinn góður hjá mínum manni. Hafnaði í fjórða sæti. Lögn bið á enda en vissulega hafði maður allan tímann trú á kappanum. Ég er sannfærður um að næsta leiktíð verður mun betri hjá honunm og hann mun snúa aftur á meðal efstu manna - sannið til
Annars notaði Mummi greinilega helgina til að bæta upp fyrir algert bloggleysi í síðustu viku. lÍk og kanadíska kappaksturssnillinginn býð ég Mumma velkominn aftur.